top of page
  • Facebook
  • Instagram
  • YouTube
  • Twitter

Miðdalur Esju á Dýjadalshnúk, Tindstaðafjall, Selfjall og Þórnýjartind #Esjudalirnir

Tindferð nr. 298 laugardaginn 16. mars 2024


ree

Eftir eina frestun á þessari ferð vegna veðurs og annarrar vegna dræmrar mætingar... lögðum við loksins í hann á þessa glæsilegu bröttu tinda í norðvestarverðri Esjunni...


ree

Tindstaðafjall var það... hér hægra megin með Tindstaðahnúki og Dýjadalshnúki... og Þórnýjartindur... vinstra megin... eftir því hvort maður lítur á hvorn tindinn sem er á þessum fjallshluta... en Selfjall var það einnig þarna uppi...


ree

Ganga tvö af átta um alla átta dali Esjunnar á árinu... ekki margir sem eru ákveðnir í að ná þessu... en þó nokkrir og áhugi þeirra keyrir okkur áfram... það væri alveg mergjað að ná þessum átta dölum og lægri tindum í fimm þriðjudagsæfingum... og ná þannig að ganga á alla tinda Esjunnar á einu ári...


ree

Kerlingargil var skrautið á uppleið...


ree

Miðdalurinn hér útbreiddur til austurs... Nónbunga í Eilífsdal innst hægra megin...


ree

Fjallavinir voru stór hópur á eftir okkur þennan dag... ekki í fyrsta sinn sem þau eru á sömu slóðum og við... mjög gaman að hitta þau svo uppi á tindinum þar sem við vorum að fara og þau að koma... þau lögðu bílunum sínum á betri stað en við... ef þarna er ekki hlið né merkt einkasvæði þá skulum við leggja þarna næst með leyfi bóndans...


ree

Kerlingargilið er ægifagurt...


ree

Það var sumarlegt niðri þennan dag... og enn sumarlegra þegar niður var komið í lok dagsins...


ree

Frábær mæting... alls 13 manns... við gleðjumst mjög ef við náum 2ja stafa tölu í tindferðunum nú orðið... aðeins öðruvísi en okkur áður brá þegar menn mnættu bara sama hvernig veðrið var eða hvaða leið var í boði...


ree

Tindstaðahnúkur... við höfum gengið beint upp hann á þriðjudagsæfingu og í tindferð á þessu svæði en þennan dag var hann ekki genginn per se út á þessa nös...


ree

Skil sumar og vetrar... Dýjadalshnúkur þarna efst framundan fyrir miðri mynd...


ree

Iðandi fuglalíf í gilinu og þeir heilsuðu upp á okkur fuglarnir...


ree

Dýjadalshnúkur framundan... hlýtt í veðri og engar áhyggjur af færinu... en allir með jöklabrodda og ísexi meðferðis ef ske kynni... og það munaði ekki miklu að það þyrfti að skella á sig broddunum...


ree

Fjallavinir komin hálfa leið upp...


ree

Komin í snjófærið...


ree

Smávegis snjómugga hér í nokkrar mínútur... en svo leið það hjá og himininn varð aftur blár... við vorum á skilum milli sólríks veðurs og skýjaðs úrkomuveðurs... allan daginn...


ree

Ennþá var færið mjúkt og gott...


ree

Kerlingargilið...


ree

Tindstaðahnúkur...


ree

Mergjaður staður að vera á... hér sést alveg niður gilið... nánast...


ree

Auðvitað tókum við hópmynd hér !


Kolka, Agnar, Gunnar, Jaana, Siggi, Linda, Oddný T., Sigrún Bj., Maggi, Birgir, Gulla, Örn og Steinar R. en Bára tók mynd og Batman er þarna fyrir framn hópinn...


ree

Aftur orðið bjart og fallegt...


ree

Fljótlega fórum við í keðjubroddana hér þar sem færið var svellað undir nýja snjónum eftir hlýjindi og frost til skiptis síðustu vikur...


ree

Fleiri karlmenn hafa verið í göngunum upp á síðkastið... árum saman var kynjahlutfallið jafnt en svo urðu konurnar mun fleiri... og á tímabili voru strákarnir í meirihluta... og nú er þetta nokkuð jafnt aftur...


ree

Litið til baka.. Miðdalur hér fyrir neðan...


ree

Frábær stemning og mikið spjallað...


ree

Miklu betra að athafna sig á broddunum...


ree

Frábær leið... hér upp og niður höfum við farið líklega tvisvar sinnum á þriðjudagskveldi...


ree

Eðalfólk á ferð... og forréttindi að ganga í þessum félagsskap..


ree

Bláminn í himninum kominn aftur...


ree

Ekki þörf á jöklabroddunum en það mátti ekki miklu muna...


ree

Fínasta æfing og þjálfun í þéttum brekkum þennan dag...


ree

Litið til baka...


ree

Síðustu metrarnir upp á Dýjadalshnúk...


ree

Komin upp í skarðið...


ree

Dýjadalshnúkur í 736 m hæð...


ree

Magnað útsýnið niður í Blikdal fremri hlutann...


ree

Blikdalur með Smáþúfum og Arnarhamri...


ree

Niður að Fjallavinum sem voru á leið upp...


ree

Hér áðum við og borðuðum nesti með ægifagurt útsýnið allt í kring...


ree

Síðustu metrarnir...


ree

Yndisleg nestisstund...


ree

Mögnuð birtan þennan dag... og skýjafarið með ólíkindum...


ree

Við nutum þess að vera í hlýrri marssólinni...


ree

Út á ystu nöf á Dýjadalshnúki...


ree

Akrafjallið í aksýn Oddnýjar og Steinars... forréttindi að eiga svona göngufélaga...


ree

Þá var það Tindstaðafjall... hér hittum við Fjallavinina og spjölluðum heillengi við þau... bestu batakveðjur til Þórðar sem vonandi nær sér vel af meiðslum eftir liðþófaaðgerð fyrir jól :-)


ree

Við nutum hverrar stundar í þessari léttu ferð... jú, hún var létt því hún var ekki 26 km eins og fyrir viku síðan ! :-)


ree

Fjallavinir á Dýjadalshnúki...


ree

Upp Tindstaðafjallið...


ree

Komin upp á meginlandið og hér með var þetta bara ganga um um brúnirnar beggja vegna og svo niður aftur í lok dags... alger lúxus...


ree

Arnarhamar og Smáþúfur...


ree

Við stóðumst ekki mátið að taka hópmynd með Fjallavinina í baksýn á fyrsta tindinum af fjórum þennan dag... meiri fylling í landslagið þegar fólk er með... frábær mynd !


ree

Tindstaðafjallið var 776 m hátt...


ree

Nú sáum við innsta hluta Blikdals... hann er hvorki meira né minna en 7 kílómetra langur aðra leið.. alls 14 km ganga ef maður tekur þennan dagl fram og til baka og dsleppir fjöllunum... en um 25 km ef fjallgarðurinn er allur tekinn... eins og við ætlum að gera í apríl eða maí...


ree

Blikdalurinn... Selfjall sem var tindur þrjú þennan dag...


ree

Sterkir litir....


ree

Mjög falleg birta...


ree

Selfjallið var næst... 796 m hátt...


ree

Mikið spjallað...


ree

Fallegar brúnirnar niður í Blikdal...


ree

Vá... sjáið þið þennan klettastöpul...


ree

Magnaður !


ree

Afstaðan...


ree

Maggi ákvað að fara út á hann...


ree

Var ekki lengi að því...


ree

Geggjað !


ree

Svo fórum við bara þegar myndatökurnar voru búnar... og Maggi kom sér sjálfur aftur upp... enga stund að því !


ree

Síbreytileg birta og skýin léku stsærsta hlutverkið þennan dag...


ree

Draumaheimur fjallgöngumanna...


ree

Nú tóku við fjallsbrúnir Miðdals... norðan megin...


ree

Miðdalur hér og mynni Eilífsdals...


ree

Miðdalur... Sandfell og Eyrarfjall... og svo Hvalfj0rðurn með fjallsásrum sínum... Reynivallahálsi, Meðalfelli og svo Nónbungu...


ree

Sólin var að mestu með okkur þennan dag...


ree

Þessi blámi... hann er hugbreytandi...


ree

Nú var komið að rimanum... mjóa... sem aðskilur Selfjall frá Kistufelli... nyrðra... en við slepptum hæsta punkti á því til að rekja okkur frekar meðfram brúnunum í Miðdal... Kistufell nyrðra verður tekið á Blikdalshnringnum...


ree

Magnað landslag !


ree

Litið til baka...


ree

Gott að vera í keðjubroddunum og þurfa ekkert að hafa áhyggjur af því hvort svell sé undir eður ei...


ree

Riminn framundan...


ree

En fyrst aðeins aftur að brúnunum...


ree

Sagan af gömlu sólgleraugunum hans Birgis...


ree

Mikið erum við heppin að geta átt svona dag... enginn starandi í símann... allir á staðnum í huga og líkama...


ree

Hvílík birta ! Tindstaðafjallið...


ree

Sandfell og Eyrarfjall...


ree

Þórnýjartindur þarna lengra aðeins kíkjandi á bak við... Nónbunga svo best áberandi í sólinni...


ree

Ekki hægt að fanga þessa síbreytilegu birtu nægilega vel...


ree

Geggjuð sólgleraugun hans Birgis...


ree

Fjallsbrúnirnar ofan við Miðdal voru magnaðar...


ree

Það var sko nóg stoppað og myndað og staldrað við í rólegheitunum að njóta...


ree

Gaman að fá aftur jafnt kynjahlutfall... önnur dýnamík fylgir strákunum og hún er nauðsynleg í svona hópi...


ree

Spáð í næsta sumar og alls kyns spennandi ferðir og margt annað í umræðunni...


ree

Riminn...


ree

Sjá hvernig skýin lágu yfir efsta hluta Esjunnar og suðurhlutanum...


ree

Kolka skvísa... svo fallegur hundur...


ree

Flottur kafli...


ree

Í og úr keðjubroddunum... þetta var svoleiðis dagur...


ree

Hér var ætlunin að taka hópmynd... en þá hvarf sólin...


ree

Svo stutt í hana samt...


ree

Litið til baka...


ree

Vestari hluti Þórnýjartinds... spurning hvar hinn eiginlegi Þórnýjartindur sé... Þórnýjarfjall væri nærri lagi og svo nöfn á tindana báða sem rísa ofan Miðdals og Eilífsdals...


ree

Hrikalegar fjallsbrúnirnar allt í kring...


ree

Frábær hópur...


ree

Snjóhengjur efst í klettabeltunum...


ree

Nokkur svona þröng gil voru á þessum kafla...


ree

Kolka hér...


ree

Eins gott að fara varlega...


ree

Hér hvarf sólin á kafla... eini sólarlausi kaflinn að ráði í ferðinni... nema kannski snjómuggan á uppleið við Kerlingargilið...


ree

En bjartur og skemmtilegur kafli engu að síður... svellað færið og dulúðin áþreifanleg...


ree

Maggi og Jaana með Kolku og Oddnýju þarna á bak við...


ree

Sjá svellið...


ree

Við gáfum okkur betri tíma en nokkurn tíma til að skoða þessar brúnir vel... mjög gaman...


ree

Snjóhengjurnar voru svakalegar...


ree

Fórum út að hverja nös...


ree

Jaana tók stórkostlegar myndir í þessari ferð... eins og svo oft áður...


ree

Hundarnir tveir voru alveg með í þessu útsýnistúrum út á brúnirnar svo stundum var ð okkur um og ó...


ree

Svakalegt snjómagnið...


ree

Sko... þessi klettanös þarna... er örugglega mögnuð að sumri til... fyrir myndatökur...


ree

Litið til baka...


ree

Afstaðan...


ree

Gunnar Viðar Mont Blanc fari í júní 2024...


ree

Þarna fórum við svo út á...


ree

Jamm... eins gott að fara varlega...


ree

Litið til baka... við vorum þarna aðeins fyrr...


ree

Þórnýjartindur var síðasti tindur dagsins...


ree

Niður í mót í átt að tindunum sem rísa yfir dölunum í norðri...


ree

Norðvesturtindurinn.. hér ætlum við upp á þriðjudagskveldi eða sunnudegi einn daginn...


ree

Sáum fínustu leið...


ree

Nesti hér og gott að setjst niður aðeins...


ree

Þokuslæðingur meðan á nestispásunni stóð...


ree

Lítið eftir nema koma sé niður bröltið um Þórnýjartind.. jú... og svo voru allir kílómetrarnir eftir til baka á láglendinu...


ree

Leiðin að baki hér...


ree

Miðdalurinn...


ree

Takk fyrir okkur mögnuðu fjallsbrúnir...


ree

Bröltið niður Þórnýju var ekkert mál... farið hér nokkrum sinnum að vetri sem sumri... og alltaf fært...


ree

Litið til baka...


ree

Reynt að ná góðri hópmynd... í betra skyggni hefði þessi verið mögnuð !


ree

Þriðjudagarnir eru til að æfa þetta klöngur hér...


ree

Æfum klöngur sem oftast... þannig viðhöldum við færninni í því...


ree

Aftur smá snjómugga hér í okkrar mínútur en við tókum ekki eftir henni því að var orðið svo hlýtt...


ree

Litið til baka...


ree

Þrjár langar snjóbrekkur með svelluðu færi undir biðu okkar... og þeir sem renndu sér þær niður voru ekki lengi að því... en það var aðeins meira krefjandi að brölta þær á keðjubroddunum...


ree

Geggjað gaman að láta sig bara gossa !


ree

Engar smá brekkur sko !


ree

Hlátrasköllin glumdu...


ree

Jebbs... svellið sem stundum var undir snjónum...


ree

Þetta var ótrúlega gaman !


ree

Áfram niður...


ree

Litið til baka... sólin stutt undan...


ree

Síðasta brekkan...


ree

Svona gerist þegar maður rennur alla leið á grjót... grátlegt... nýlegar buxur hjá Lindu... vonandi hægt að gera við þær...


ree

Takk fyrir okkur snjóbrekkur í Þórnýjartindi...


ree

Mun tafsamara að fóta sig frekar en að renna... hvað þá ef maður var búinn að fara úr keðjubroddunum og þurfti að setja þá aftur á sig...


ree

Nú var leiðin einföld niður...


ree

Og við vorum fljót yfirferðar...


ree

Beint niður í sól og sumar...


ree

Skyndilega lagaðist allt skyggnið og vels ást á tindana efst... ef við bara hefðum verið aðeins seinna á ferðinni þarna uppi... en það var ekki á allt kosið... við fengum mergjað útsýni fyrr um daginn...


ree

Eilífsdalurinn... ytra megin...


ree

Og innra megin...


ree

Dásamlegt..


ree

Fjalllendið að baki...


ree

Skálartindur í Eilífsdal...


ree

Við tóku rúmir 4 kílómetrar í bílana...


ree

Mjög skemmtileg leið í sumri og sól...


ree

Við nutum í botn...


ree

Og horfðum á tindana þar sem við vorum fyrr um daginn...


ree

Hvílíkar andstæður...


ree

Áfram hélt stríðið milli sólargeislana og skýjahoðranna áfram þarna uppi...


ree

Fjallsbrúnir dagsins þarna uppi...


ree

Sveitin var ljúf... og minnti á hvað bíður okkar í sumar...


ree

Þórnýjartindur þarna uppi... eða sem sé norðveturtindurinn á fjallinu...


ree

Tindstaðafjall...


ree

Hér upp einn daginn... við sáum leið...


ree

Magnað !


ree

Hestar enn og aftur á okkar leið... þeir eru ómetanlegur félagsskapur í göngunum... elsku ferfætlingarnir...


ree

Þeir hlupu með okkur...


ree

Takk fyrir okkur fallega sveit í Miðdal...


ree

Fegurðin var botnlaus...


ree

Hér fór að hitna verulega og við fækkuðum vötum...


ree

Flott hópmynd í lok dags... sumarsælustemning...


ree

Síðustu metrarnir í bílana...


ree

Tindstaðahnúkur og Kerlingargil... mun minni snjór en um morguninn... sumarið var að hafa betur...


ree

Litið til baka...


ree

Bílarnir...


ree

Sumarsælan var svo mikil á þessum kafla að maður verður að leyfa öllum þessum m yndum að vera með... til að gleyma þessu ekki...


ree

Yndislegt... og klukkan bara rétt rúmlega þrjú... og stuttur akstur heim... vá hvað þetta var dásamlegt... kosturinn við Esjuna... ferðirnar styttast um 2 - 3 klukkutíma vegna lítils aksturs...


ree

Við ætluðm ekki að tíma heim... viðruðum daginn og teygðum og fengum okur nesti og spjölluðum heillengi...


ree

Enginn að flýta sér... nægur tími... við vorum að njóta þess að vera til...


ree

Alls 14,0 km á 6:34 klst. upp í 834 m hæð með alls 809 m hækkun úr 134 m upphafshæð...


ree

Spjall og teygjur...


ree

... og mikið hlegið...


ree

Keyrandi heim í sólskini... Tindstaðafjallið hér...


ree

Flott í nærmynd... uppgönguleið okkar hægra megin við stóra skaflinn á Dýjadalshnúki...


ree

Dýjadalshnúkur og Tindstaðafjall séð úr Blikdalsmynni...


ree

Nærmynd...


ree

En svo skall á rigning þegar keyrt var inn á þjóðveg 1... ótrúlegt.. hvílík veðrabrigði á nokkrum mínútum... við vorum stálheppin með daginn... takk öll fyrir alveg mergjaða og mjög dýrmæta ferð á Esjuna... næst er það Eilífsdalur um páskana... ef veður og áhugi leyfir...



Comments


bottom of page