Páskafimman 2025
- Bára Agnes Ketilsdóttir
- Apr 28
- 4 min read
Fimmtudaginn 17. apríl til mánudagsins 21. apríl 2025
Páskarnir í ár voru með eindæmum veðursælir og ekki annað hægt en fara út og njóta góða veðursins dögum saman. Enda var þátttakan í páskafimmunni okkar með eindæmum góð og þar af voru nokkrir nýliðar sem hafa ekki verið með áður í þessari páskavitleysu okkar... sem við ætlum að hafa út ævina... mælum svo með !
Alls melduðu níu manns inn sína páskafimmu og eru lýsingarnar mjög ólíkar og stórskemmtilegar hver og einasta ein. Hér koma þær í stafrófsröð:
Aníta:

"Páskafimman var geggjuð enda veðrið
Startaði þessu með páskafimmusólarhring þar sem fimm æfingum var dúndrað inn á 24 tímum en aðalpáskafimman var fjall á hverjum degi.
Frá 17:30 miðvikudag - 17:30 Skírdag:
Hot Body
Hot Barre
Hot Glute & Abs
Hot Power Yoga
Skokkað að Nípu í Esju og tekin krókaleið niður 3,29km 279m hækkun
Föstudagurinn langi: Litla Hekla 21,02km 1204m hækkun
Laugardagur: Nípa í Esju 2,97km 269m hækkun
Páskadagur: Kerhólakambur 7,07km 826m hækkun
Annar í páskum:
Hot Barre
Vífilsfell með Sjöfn og náttla vesen niðurgangi 6,11km 456m hækkun".
Ása:

Páskafimman hjá mér einkenndist að því að garðyrkjumaðurinn er búinn að vera veikur í alltof marga daga frá miðjum mars,,nú hefst 4 sýkllyfjakúrinn og vonandi nær hann að ská á þetta heilvíti.
Skírdagur fór í 8 klst vinnu í Listasafni Einars Jónssonar, hefði viljað trakka þetta þar sem það var klippt, rakað og blásið,, ,einnig rakaði eg allargrasflatir svo þetta var talsverð ganga,,giska á 6-8 km.
Föstudagurinn langi er heilagur og þa var hreyfingin í góðum göngutúr með Myrru, tæpir 2 klukkutímar.
Laugardagurinn var fullur af garðvinnu,, klipptir tré og runnar við 1 fyrirtæki, einn einkagarður og ein blokkarlóð.
Páskadagur er pínu heilagur og þar var bara 1 garður klipptur hjá einskonar ættingja síðan var tekinn einn hringur í folfi í Guðmundarlundi.
2 í páskum var langar vinnudagur,,, fellt fullt af trjám, snyrt hja einu fyrirtæki.
Endalaus útivera alla páskana en vissulega var stefnaná að útiveran yrði skemmtilegri en nú er framundan ganga um Skosku hálöndin og svo mæti ég aftur í þriðjudagsgöngur, og næ upp gönguþoli á mettíma.
Bára:

"Ég ákvað að ná að taka fimm ólíkar hreyfingar um páskana svona í tilefni af því að við erum með krossþjálfunaráskorunina á þessu ári og það tókst enda ekki hægt að óska sér betri páska hvað varðar veður en ég man hreinlega ekki eftir öðrum eins páskum nokkurn tíma þar sem hægt var að velja sér dag til að fara á fjall, ótrúlegt alveg. Upp úr stendur Toppfaragangan á Litlu heklu og Feðga og eftir á að hyggja sé ég eftir því að hafa ekki farið í aðra fjallgöngu um þessa páska. Einnig náði ég ekki að hjóla síðasta daginn þar sem við fengum óvænt frábæran leiðsagnartúr um Eyrarbakka á öðrum degi páska en það var þess virði að upplifa það og missa af hjólinu. Páskarnir 2025... þeir verða örugglega ennþá í umræðunni eftir 10 og 20 ár sem páskarnir þar sem sólin skein alla daga og ha, ?... var vindur ? ... ég man bara eftir sól og blíðu alla fimm dagana... svona næstum því, haha :-)
17/4: Ganga um sveitina okkar 1,4 km á 34 mín.
18/4: Fjallganga á Litlu Heklu og Fegða með Toppförum 22,2 km á 7:37
19/4: Lyftingar í ræktinni á Hellu og svo 200 m bringu- og skriðsund á 37 mín alls
20/4: Skokk í sveitinni 5,4 km á 38:30 mín. 21/4: Leiðsöguganga um Eyrarbakka 7,4 km á 2:42 klst."
Fanney:

"Hér er Páskafimman mín. Ætlaði að vera með fimm mismunandi æfingar, en svo veiktist ég seinnipartinn á laugardag þannig ég lufsaðist í gegnum síðustu tvo dagana. En náði þó amk einni geggjaðri fjallgöngu."

Hafrún og Steinar:

"Páskafimman okkar Steinars:
117/4: Guðfinnuþúfa 3,7 km á 1:04 klst.
18/4: Úlfarsfell 4,1 km
19/4: Hjólatúr 10,7 km á 47:46 mín.
20/4: Akrafjallshringur á páskadag 13,3 km á 3:26 klst.
21/4: Kringum Helgafellið í Mosó 6,3 km á 1:28 klst.
Lilja Rós:

"Ég ákvað að vera með í páskafimmunni þó hún hafi ekki verið íburðamikil hjá mér, líkt og hjá svo mörgum fjallaljónum hér í þessum hóp.
Eftirköst af flensu og hósti hafði ahrif á valið og markmiðið því einungis sett í að ná 30 mínútna göngu að lágmarki daglega."
17/4: Ganga um Kópahvoll 48 mínútur.
18/4: Lö....ng föstudagsganga 73 mínútur.
19/4: Gengið til dótturinnar í stað bílsins 34 mínútur.
20/4: Hundarölt 42 mínútur.
21/4: Sjávarsíðulabb 57 mínútur."
Smári:

#Páskafimman 2025, dagur 1 af 5.
Hljóp. Braut met. Vúhú!
Fattaði ekki að taka myndir. Geri betur á morgun.
#Páskafimman 2025 dagur 2 af 5.
Hjólaði inn í fjörð. Braut ekki neitt. En það var gaman á þessum annars langa föstudegi.
#Páskafimman 2025 dagur 3 af 5.
Hentist upp að Kríuvötnum.
Tók hringinn í kringum þau.
Hentist aftur niður.
#Páskafimman 2025 dagur 4 af 5.
Skrapp á Geirseyrarmúlann,
tók kálfana með,
útsýnið engan gerði fúlan,
með því betra sem ég hef séð.
Gleðilega göngupáska!
#Páskafimman 2025 dagur 5 af 5.
Fór með krakkana (og einn hund) á nýju varnargarðana.
Stórbrotið útsýni. Mögnuð smíði. Garðarnir bjóða upp á frábæra útivist.
Ég vona að allir hafi átt góða páska.
17/4: Hlaup 8,7 km
18/4: Hjól 9,9 km
19/4: Ganga 5 km
20/4: Ganga 2 km
21/4: Varnagarðalabb 3km
Þórhildur:

"Ég náði nú ekki heilli fimmu ég var í einhverri miðlífskrísu á fimmtudaginn og föstudaginn , hafði nú samt haft áætlanir um að hreyfa mig sem ekkert varð úr. En ég er glöð að síðustu 3 dagana þá hreyfði ég mig. Þannig að þetta var páska-þrenning hjá mér Gaman að fylgjast með ykkur sem náðuð heilum fimmum, vel gert."
19/4: Helgarhlaup hrz2 11,9 km á 1:39 klst.
20/4: Móskarðahnúkar 7,1 km á 2:01 klst.
21/4: Hjólatúr að Hvaleyrarvatni 7,9 km á 1:22 klst.
-------------------------------
Takk öll fyrir þátttökuna elskurnar ! Frábær ástundun þetta árið og svo gaman að sjá hjá öllum ! Höldum þessu áfram næstu árin út ævina... páskar eru tækifæri... til að hreyfa sig fimm daga í röð og njóta frísins í botn :-)
Smári var dreginn út og vann sér inn eina hefðbundna tindferð að eigin vali sem hann getur nýtt sér þegar honum hentar, bara melda inn vinninginn í næstu ferð :-)
Comments