Páskafimman 2026
- Bára Agnes Ketilsdóttir

- 18 hours ago
- 4 min read
Fimmtudaginn 2. apríl til mánudagsins 6. apríl
Alls tóku sex manns þátt í páskafimmunni í ár og melduðu inn mjög skemmtilegar samantektir og var Sjöfn dregin út og fann sér inn hefðbundna tindferð að eigin vali að verðmæti kr. 7000. Hér koma samantektir þátttakenda, sendið mér línu ef það vantar einhvern eða ef fleiri vilja vera í þessari samantekt, bara gaman:
Aníta:

"Páskafimman… ég er á fullri leið með alls konar sem ég ætlaði aldrei að gera
Ég skelli skuldinni á áskoranaandleysi… ég var ekki búin að ákveða neitt og fannst það heldur glatað miðað við sæta sigra síðustu páskafimmuára. Núll hugmyndir. Jæks.
Fimmtudagur: Einn lítill sætur Úlli í ófærðinni; 3,44km og 200m hækkun. Ennþá núll bitastæðar hugmyndir.
Föstudagur: Litla Hekla og Hekla frá Ytri Rangá; 25km og 1680m hækkun. Ég vissi ekkert… en hinn persónuleikinn, þessi sem fær misvitrar hugmyndir, var kominn með þetta og sagði ekki frá.
Sjáið til… ég lagði af stað með meiðsli á mjöðm sem ég ákvað að væru mehhh. En sko… hálfa leið á Litlu Heklu var mín ferð þá þegar orðin söffer. Ég elska fkn söffer Meikar ekki diff. Ég sporaði aðeins minna en ég hefði gert. Nó big díl. Það var EKKI slegið af hraðanum og Graníta tekin á’etta.
Laugardagur fyrir læsta vöðva: Nú þurfti að græja og gera enda konan draghölt og kvalin. Grafarvogslaugin; nuddpottur og gufa. Og fyrst ég var þarna, best að prófa að synda… sem ég gat. Öndun brösótt í fyrstu, best að æfa það aðeins. Líkamsbeiting ekki að gera sig, best að æfa það. Nú jæja, komnir 1500m, best að taka 2000m því ekki get ég verið minni manneskja en Sighvatur og Birgir En… NB… bringusund með engar fkn froskalappir; endaði í 2025m.
Sunnudagur: Hugmynda-ég er stórhættuleg. Ég var alveg búin að fatta þetta með andskotans sundið. Anyways… tók trigger punkta nudd og yoga teygjur og skrapp svo lítinn sætan Úlla 3,44km og 200m í hækkun. Var ekki orðin góð.
Mánudagur: Hot Cardio Fit þrektími í morgunmat og svo fjölskyldan í hádegismat. Og hugmynda-ég heldur áfram að pressa. Synda 5km kona… jöst fkn dú it, búin með 2k og bara 3km eftir. Leiðindalevelið er rosalegt og ég þarf bókstaflega að hlaupa í laugina með fulla bumbu af vöfflum til að ná þessu áður en rekið er upp úr. Jessör of kors 3025m og ég þurfti allt powerið í alls kyns hugarleikfimi svo ég bókstaflega drukknaði ekki úr leiðindum.
Sundvígið er fallið.
Mögulega mæti ég með tómatsúpu í næstu göngu.
Páskafimman:
5 dagar
5,05km sund
7 æfingar (3xfjallganga, 1x yoga, 1x þrekæfing, 2x sundæfingar)
~32km með 2080m hækkun á fjöllum."
Bára:

Páskarnir voru í sveitinni eins og stundum áður og í fyrsta sinn í sögunni náðum við tveimur Toppfaragöngum, ekki eins og við höfum svo sem reynt það áður, en ákváðum að gera það núna þar sem svo margir vildu frekar fara á Skarðsfjallið en á Heklu, og þó þeir skiluðu sér á endanum flestir ekki á Skarðsfjallið, þá mættu auðvitað bara aðrir í staðinn sem gripu ljúfa og stutta göngu á páskadag í kristaltæru skyggni, algert yndi. Mjög flottir páskar en svolítið skrítnir þar sem veðrið var ekki upp á sitt besta á fimmtudag og mánudag á mjög ólíkan máta en hinir þrír dagarnir geggjaðir í sól og blíðu en þó reyndar vindur á sunnudaginn en einhvern veginn kom það ekki að sök á Skarðsfjalli. Þakklæti er efst í huga manns, ekkert af því sem við fengum um páskana er sjálfgefið... #Þakklæti
Fimmtudagur: Skokk í sveitinni 6 km á 37 mín.
Föstudagur: Litla Hekla og Hekla með Toppförum 25 km á rúmum 11 klst.
Laugardagur: Göngutúr í sveitinni 4,2 km á 50 mín.
Sunnudagur: Skarðsfjall með Toppförum 9,8 km á rúmum 4 klst.
Mánudagur: Göngutúr með Erni og Batman 3 km á 40 mín.
Björg:
"Páskafimman hjá mér hljómar svona með 4 daga vinnuhelgi
Fimmtudaginn..rölt um Kópavog og nágrenni. 8.10 km = 15 klst
Föstudaginn..gengið upp að Vífilsstaðavatni og þar um kring 10,4 km = 2,10 klst
Laugardaginn..Akrafjall..5,5 km = 2 klst
Sunnudaginn..Helgafell í Mosó..2.6 km = 48 mín
Mánudaginn..ganga 4 8 km ..= 50 mín..+ 30 mín í ræktinni."
Christina:

"Fimmtudagur, Mánudagur: inniæfingar með barninu
Föstudagur, Laugardagur: dró barnið á sleða á gönguskíðum
Sunnudagur: Hólmsheiði (Sporið) - 18,9 km."
Siggi:

"Fimmtudagur : Úlfarsfell 1 kls og 10 mín.
Föstudagur ganga í Reykholti 32 mín og sund í 25 mín Lágafellslaug.
laugardagur fjallganga Akrafjall 2 kls.
Sunnudagur fjallganga Helgafell og Mosfell 2,5 kls.
Mánudagur ræktin 1 kls."
Sjöfn:

"Fyrst sundið telst með, þá er ég með !
Páskarnir voru að venju allmengaðir af vinnu hjá mér, 3 vaktir. Og veðrið var ýmist bongó eða brjál, svo eiginlega var lítið svigrúm til stórra afreka. Heklugangan var vissulega alvöru, frábær dagur sem gleymist seint.
Svona hljómar fimman:
Fimmtudagur - sund 1000m
Föstudagur - Litla Hekla og Hekla 24,5 km
Laugardagur - sund 1000 m
Sunnudagur - Steinn og annað Esjuráp - 9,2 km
Mánudagur - sund 750 m
Það var svo mikil bræla á sundlauginni á annan í páskum, að mér lá við drukknun. Og svo voru eldingar um kvöldið - þá var nú eins gott að vera komin uppúr."
-------------------
Takk öll fyrir að melda inn ykkar fimmur. Það dýrmætasta við þessa áskorun er að festa í sessi þann vana að hreyfa sig í lágmark hálftíma alla páskadagana sama hvað annað gengur á... það er ávísun á betri heilu og betri líðan... sumt í lífinu er sígilt eins og þessi einfalda áratuga gamla fullyrðing sem stenst sannarlega tímans tönn...




Comments