Sauðafell og Norðurbjallar með Fossabrekkum á Hellismannaleið #Hekluslóðir
- Bára Agnes Ketilsdóttir

- Feb 24
- 7 min read
Updated: Feb 25
Tindferð nr. 353 laugardaginn 21. febrúar 2026

Fimmta tindferðin á árinu 2026 hélst á áætlun laugardaginn 21. febrúar en spáð var vindi og frosti sem þjálfarar vonuðu að yrði ekki eins mikið og raunin varð... en sólin mætti fyrri hluta dags og spáin rættist í raun...

Búrfell í Þjórsárdal...

Merkilegt að leggja af stað gangandi frá skiltunum á upphafskafla Dómadalsleiðarinnar... aksturinn tók 1,5 klst... með engu stoppi á leiðinni...

Hópurinn var mættur við Landvegamót nokkrum mínútum fyrir níu en enginn búinn að opna og því var keyrt áfram og lent upp úr hálf tíu eftir akstur kl. 08 frá Össuri...

Lagt af stað gangandi kl. 9:52... sólin komin upp og allt orðið gyllt...

Fjöldi jeppa og fjórhjóla voru mætt við Dómadalsleið og sjá má nokkra keyra hér upp eftir... þeir spóluðu ákveðið í gegnum skaflana á veginum...

Ljós vikur Heklu á leiðinni... og sást ágætlega í hann undan snjófölinni...

Sauðafell var framundan... og þjálfarar sáu ágætis leið upp þar sem við komum að...

Fyrsti helfrosni lækurinn af nokkrum þennan dag...

Botnfrosið nánast...

Fallegur blái liturinn í lækjunum þennan dag...

Við gátum farið beint upp brekkurnar...

Úr hlíðunum... Búrfell í Þjórsárdal í fjarska...

Blái himininn var með okkur allan daginn þó það væri úfið á Heklu...

Komin upp á brúnina á Sauðafelli þar sem sólin skein...

Sauðafellið í ágætlega víðfeðmt og nokkrir tindar uppi og við létum landslagið leiða okkur að hæsta tindi...

Rákirnar í grjótinu í stíl við rákirnar í snjónum...

Ískuldi og stífur vindur... spáin rættist á versta mögulegan máta... en við ypptum bara öxlum og vorum vel búin og nutum landslagsins...

Frábært fólk á ferð... mikil gleði... heilmikið spjall... og allir í góðum gír...

Magnað útsýni ofan af Sauðafelli... Sauðafellsvatn hér hvítt af snjó... og nyrðri hluti Norðurbjalla handan vatnsins...

Mögnuð birtan !

Fegurstu myndir dagsins voru teknar hér...

Sauðafellið mældist 501 m hátt...

Norðurbjallar hér útbreiddir... sjá dökku nibbuna hægra megin á hryggnum... þar upp klöngruðumst við seinna um daginn...

Fyrri nestispása dagsins var í gilinu hér vinstra megin í góðu skjóli...

Fínn nestisstaður...

Þetta var alvöru vetrarferð... og önnur í röðinni á þessumn vetri... því gangan á Heiðarhorn í Skarðsheiði milli jóla og nýárs var líka í harðneskju vetrarins...

Bára þjálfari átti óvænt afmæli þennan dag... hún er ekki með daginn á fb og því vissi enginn neitt... fyrr en pönnukökur og freyðivín var í boði í nestispásunni...

Hér búin að borða og allir sælir...

Batman hér í loftköstum af fjallgöngugleði... hann og Myrra eru perluvinir og þekkja hvort annað í gegn...

Gengið að Sauðafellsvatni...

Himininn lék listir sínar í vindinum og kuldanum...

Litið til baka... Sauðafell í baksýn hópsins... rákótt móbergið... sorfið...

Alls 14 manns...
Smári, Oddný T., Sighvatur, Silla, Birgir Martin, Guðný Ester, Gunnar G., Hjörtur, Guðjón, Ása, Helga Rún, Sjöfn Kr., Örn og Bára tók mynd... og Batman og Myrra voru hundar dagsins...

Sighvatur bauðst til að taka mynd með afmælisbarninu... takk elsku vinur !

Fjaran á Sauðafellsvatni leit úr eins og jeppaslóði í fjarska... en bar ummerki mismunandi vatnsyfirborðs í sandinum þegar nær var komið...

Litið til baka... Sauðafellið frekar flatt og lágt séð héðan í snjóbreiðunni...

Upp á norðurtagl Norðurbjalla...

Hekla í úfnum, vindsorfnum skýjum allan daginn... grátlegt því hún var skýlaus deginum áður í heiðbláum himni... en það var ekki hægt að kvarta... þessi vetur er búinn að vera eins og létt haust...

Valahnúkar og Hestalda líklega...

Norðurhluti Norðurbjalla...

Móbergstindurinn hvassi á Norðurbjöllum...

Auðvitað klöngruðumst við upp hann...

Útsýnið ofan af tindinum til suðurs eftir Norðurbjöllum...

Mjög hvasst hér uppi og vert að fara varlega upp og niður...

Fyrstu menn komnir niður...

Klöngrið... þetta var létt yfirferðar... vindurinn var verkefnið...

Síðustu menn uppi... Sighvatur og Silla...

Norðurbjallar hér áfram allur þessi hryggur út í enda... og hæsti hlutinn í ca 20 - 30 mín fjarlægð... lengst til vinstri á mynd...

Þetta var fljótfarnara en við áttum von á...

Litið til baka...

Það sem það er gott að ræða heima og geima..

Farið að styttast í hæstu tinda dagsins...

Litið til baka...

Hæsti hluti Norðurbjalla...

Leiðin sem beið okkar niður af Norðurbjöllum yfir á Hellismannaleið... mjög giljótt landslag... við fórum sunnan við Ófærugil... vissum að það yrði til trafala...

Helga Rún er fjórða konan í sögu Toppfara með barni... komin 16 vikur á leið... og tók þessa 20 km löngu göngu í ísköldum vindi... aðdáunarvert hreint út sagt ! Hinar sem gengið hafa með okkur... með barn í maganum eru allavega Lilja Sesselja, Irma, Arna og nú Helga Rún... ég gæti verið að gleyma einhverjum... látið mig þá vita svo ég geti leiðrétt þetta !

Hér sunnar enduðu Norðurbjallar... og dalur tók við og Suðurbjallar teygja sig svo út eftir... en á þá fórum við yfir en ekki alveg á hæsta tind þó í fyrra á leið á Litlu Heklu... en best að taka hæsta tind Suðurbjalla á leið á Heklu um páskana... ef við nennum... sú ganga er mjög löng... og kannski betra að spara orkuna... látum veður og stemningu ráða för !

Norðurbjallar mældust 560 m háir...

Aftur hópmynd hér á hæsta hluta dagsins...

Þjálfarar... göngur lentu á afmælisdegi beggja núna í febrúar og í ágúst síðastliðnum... óvíst hvort við göngum það mörg ár í viðbót að þetta gerist aftur... en aldrei að vita !

Jæja... þá hófst niðurleiðin... tilraunakennd eins og alltaf... ekkert sjálfgefið að það væri fært hér niður í gilinu fjær... en við erum búin að læra að það er best að láta vaða og breyta um stefnu ef þarf á staðnum...

Jú, jú, þetta var vel fært í grýttu landslagi...

Litið til baka...

Skemmtileg snjóbrekka tók svo við neðar...

Ágætis skaflar hér...

Sjá snjóinn...

Við tók giljótt landslag með frosnum lækjum í botninum... allt annað landslag en ef enginn væri snjórinn og kuldinn...

Gil tvö... Örn var að vona að þessi sandhryggur myndi fleyta okkur yfir áfram á meginlandinu.. en Ísland er allt sundurskorið af giljum...

Frosinn lækur... og mjög hált... við hefðum getað farið í keðjubrodda... en það hentaði ekki í öllu þessu grjóti þess á milli... og stundum hentum við möl út á til að fá betra hald...

Fínt að fá smá klöngur... hækkunin var helmingi meiri en áætlun sagði til um... enda varaði þjálfari við því... gps-forritið segir ekki rétt til um uppsafnaða hækkun þegar þjálfarar búa til svona könnunarleiðangra...

Áfram til vesturs milli gilja... með Norðurbjalla í baksýn...

Gil þrjú...

Áfram að Hellismannaleið sem ný styttist óðum í... fagrir litir í þessari sandauðn...

Ófærugil hér vinstra megin... það er þess virði að skoða það einn daginn...

Gil fjögur... hér fengum við okkur nesti tvö í vindi en ætluðum helst að vera í skjóli...
nenntum ekki niður aftur í skjólið !

Komin að Hellismannaleið... þessir bláu bergklumpar voru kunnuglegir þeim sem hafa gengið hér...

Lentum á fallegum stað á Hellismannaleiðinni... þar sem lækurinn úr Ófærugili dreifir vel úr sér áður en hann sameinast Ytri Rangá...

Skyndilega voru stikur sem sýndu að við vorum komin á þekktar slóðir...

Við eltum stikurnar upp með ánni hér með... 2,4 km í Fossabrekkur þegar við hófum gönguna um þessa leið...

Enn einn svellaði lækurinn...

Falleg leið og einstakir litir hér í sandinum... þessi ljósi vikur...

Komin að Fossabrekkum... fegursti staðurinn á fyrsta legg Hellismannaleiðarinnar... stærri hluti Rangár ytri hér að koma niður um fossana... en Hellismannaleið heldur sér austan við minni kvíslina...

Slóðinn er hér niður í sandinum... þetta slapp án keðjujubrodda í hjörnuðum snjónum og nokkuð hörðum en þó smávegis eftirgefanlegum sandinum...

Allt aðrir litir en að sumri til...

Mjög gaman að koma hér...

Við gáfum okkur góðan tíma...






Nafnlausi fossinn ? Ef hann ber nafn þá væri gott að vita það !

Alveg frosinn virtist okkur !

Langt liði á gönguna og sumir óþreyjufullir að klára gönguna... það voru rúmir 2 km í bílana héðan... en Guðjón og Smári fóru að fossinum og nokkrir eltu þá upp eftir á meðan hinir nutu fossana...

Bára og Oddný fóru í keðjubroddana og gengu upp lækinn...


Hjartað...

Við ætluðum bak við fossinn... en komumst ekki...

Hjartað... á sjálfri konudagshelginni... þetta var magnað !

Best að halda áfram... stutt eftir í bílana og degi tekið að halla...

Birtan mjög falleg í síðdeginu...


Fiskurinn í Ytri Rangá... Birgir, Smári og fleiri komu auga á eina svona sem var eins og Ísland í laginu...


Frostið var mikið... en daginn eftir kom slagveður... og vikuna eftir þessa helgi kom loksins rysjótt veður... líklega síðan í lok desember...

Komin upp úr gilinu...

Og aftur ofan í það stuttu síðar... en hér kom enn einn lækurinn frosinn niður að ánni...

Og svellið var slíkt að allir urðu að fara í keðjubroddana...

Þetta var svellsvalt... og ágætis grip í þessu... ekki eins varasamt og það leit úr fyrir... hundarnir léku sér að þessu...

Svo endaði svellið hér...

Magnaður staður !

Sjá svellið koma hér úr einu gilinu meðfram ánni...

Túrkísblámi svellsins...

Nú tók við þröngt gilið á minni kvísl Rangárinnar sem endar í smá lóni þar sem vatnið kemur upp úr jörðinni... en einhverra hluta vegna náðum við að fara framhjá þeim stað enda er stikaða leiðin ekki alveg að þessum stað... sem er mikil synd... því leiðin býður ekki upp á marga skoðunarstaði en þessi upptök eru sannarlega þess virði að flíka þeim á svona stikaðir gönguleið...

Við afréðum því að þvera þornaðar lækjarfarveginn ofan við Rabngárbotnana og strauja í bílana þar sem menn voru orðnir þreyttir og þvældir eftir stífan ískaldan vindinnn í rúmlega sjö klukkutíma... þjálfarar hefðu viljað skoða þessi upptök... fara svo yfir og að upptökum á stærri kvíslinni sem kemur ofan Fossabrekkna... en sú kvísl greinist í fleiri ofar og kemur öll undan jörðinni... við verðum eiginlega að skoða þetta aftur síðar...

Komin í bílana klukkan 17:24... enn dagbjart... og allir í banastuði og sumir svo fullir þakklætis að það snart þjálfara mikið... því ekki var þetta þægilegt veður... né besta skyggnið... en þó gott skyggni... og leiðin í lengri kantinum en þjálfarar lögðu upp með 17-20 km á 7 klst...

Litið til baka... menn að spjalla tveir og tveir saman síðasta kaflann...

Alls 19,8 km á 7:34 klst... mörg tæki mældu þetta tæplega 21 km... upp í 501 m á Sauðafelli og 560 m á Norðurbjöllum með alls 1.079 m hækkun úr 236 m upphafshæð... en Guðjón benti pent á að hækkunin væri sú sama og um Fimmvörðuháls... og vegalengdin um 4-5 km lengri... VEL AF SÉR VIKIÐ !
Bíllinn hant Hjartar var rafmagnslaus þegar við komu í bílana en Sjöfn gaf honum starf af höfðingskap göngufélaga sem standa saman þegar á reynir... annars gekk þessi ganga svo vel að það var lygilegt að hafa í alvöru gengið 20 km í þessu veðri... aðdáunarvert með meiru... og mjög dýrmæt æfing fyrir Ofurgöngu ársins... Sveinstind í Öræfajökli... Sprengisand... og mörg fleiri ævintýri sem klúbbmeðlimir stefna á í sumar með Toppförum eða öðrum... hérlendis og erlendis...

Pant... njóta óvissunnar... fara ótroðnar slóðir... kanna ókunn lönd... ná 20 km göngu í stað 17 km... fá yfir þúsund metra hækkun í stað 500 m... koma veðurbarinn og frosinn... sterkari og sprækari... nærður á sál og líkama aftur í bæinn... og geta aldrei útskýrt fyrir öðrum... afhverju nákvæmlega þessi barningur... þessi kuldi... þessi vindur... þessi harðneskja... þessi auðn... þessi kaldranleiki... þessi tæming og hleðsla á orku í senn... var það besta... sem maður gat hugsað sér að nota laugardaginn í...
Gps-slóðin hér: https://loc.wiki/t/251803113?wa=sc
Myndbandið hér: Sauðafell, Norðurbjallar, Fossabrekkur og hluti af Hellismannaleið við Heklurætur 210268
Takk elsku vinir fyrir samveruna þennan afmælisdag... og afreksdag í febrúar... þið eruð BEST !




Comments