top of page
  • Facebook
  • Instagram
  • YouTube
  • Twitter

Sauðleysur í landslagi og útsýni á heimsmælikvarða

Tindferð nr. 315 sunnudaginn 15. september 2024.


ree

Eftir að hafa aflýst göngu á Sauðleysur einu sinni vegna dræmrar mætingar... líklega árið 2022... ákváðu þjálfarar að drífa sig upp eftir á sunnudegi þegar ekki var hægt að fara á Torfatinda og félaga kringum Álftavatn vegna jeppaleysis og veðurspán laugardeginu á undan... þetta var stutt ganga og myndi sleppa þó Bára væri að fara á næturvakt um kvöldið þar sem þjálfarar voru staddir í sveitinni sinni við rætur Fjallabaks...


ree

Veðurspáin var mjög góð... og þó það virtist kuldalegt á svæðinu með hvíta tinda um allt... þá fengum við glimrandi dag sem var með ólíkindum fagur hvað varðaði landslag og útsýni...


ree

Brottför úr bænum kl. 07 og komin að Helliskvísl við Landmannahelli kl. rúmlega tíu ða sunnudagsmorgni... grátlega fáir mættir... því þetta endaði í einni fallegustu göngu ársins...


ree

Fyrsti tindur Sauðleysa... kannski af því þetta virka ekki sem flottir tindar séð frá bílveginum... og nafnið er ekki beint "Hellismannatindar" eða álíka... þá var áhuginn ekki meiri á þessum fallegu fjallstindum... en þeir voru hvers skrefs virði...


ree

Reiðleiðirnar búnar að grafa sig vel ofan í jarðveginn hér...


ree

Nornabaugar...


ree

Við lögðum af stað kl. 10:23...og tókum stefnuna í skarðið milli syðstu tindana...


ree

Magnað skarð... og tindurinn þarna handan við vatnið var þriðji tindurinn á leiðinni... en hann virtist frá þessum sjónarhóli vera ókleifur... þjálfari hélt fyrst að þetta væri herbjarnarfell... en svo sáum við þegar ofar dró og við sáum samhengi landslagsins að svo var ekki... þetta var einn af okkar tindum... skyldi hann vera fær... ?


ree

Rauðufossar blöstu við í upphafi dagsins... sem og Rauðufossafjöll og Krakatindur var þarna líka og átti eftir að skreyta leiðina allan daginn...


ree

Sauðleysuvatn að birtast eftir því sem ofar dró... tindur þrjú við vatnið og fjær eru Hrafnabjörg...


ree

Snjór á fjöllunum og flestir ekki með keðjubrodda þar sem okkur leist þannig á færið... en það mátti ekkin muna miklu að við þyrftum þá í efstu hlíðum hér... en svo ekkert meira alla gönguna því allt varð mjúkt og sumarlegt þegar leið á daginn...


ree

Herbjarnarfell og Löðmundur... hvílík dýrðarinnar fjallasýn...


ree

Sauðleysuvatn...


ree

Rauðufossafjöll...


ree

Hryggurinn á fyrsta tindinum...


ree

Mögnuð leið...


ree

Þessi efsti kafli var í lagi en margir dagar í viðbót í frosti og snjókomu og hann er aðeins flóknari uppgöngu...


ree

Þessir fjallstindar komu á óvart...


ree

Þarna handan við var hins vegar sumar...


ree

Smá klettur hér sem fékk smá leik...


ree

Hann var ókleifur yfir...


ree

Við reyndum...


ree

Skil milli sumar og vetrar... innar á Fjallabaki var allt hvítt... og smalað var í snjó degi áður á svæðinu... hvílík óheppni...


ree

Fegurðin var með ólíkindum þennan dag...


ree

Síðasti tindur dagsins... ekki hvítur af snjó...


ree

En jarðvegurinn var mjúkur eftir sumarið... veturinn ekki búinn að læsa klónum sínum ennþá í hann... okkar reynsla er sú að fyrsti snjórinn er alltaf saklaus og einfaldur ofan á mjúkum jarðveginum...


ree

Löðmundur í allri sinni dýrð... sjá snjóinn innar...


ree

Herbjarnarfell... og vatnið... tökum öll þessi vatnafjöll næstu árin... búin með Löðmund, Sauðleysur og eigum eftir Herbjarnarfell, Hrafnabjörg, Dómadalsvatn, Lifrarfjöll ofl...


ree

Sauðleysuvatn í allri sinni dýrð eins og gimsteinn... sjá grynningarnar við fjöruborðið og svo blámann þegar vatnið dýpkar...


ree

Víðlinsa...


ree

Reynt að fanga þetta með hópmynd...


ree

Maggi, Örn, Sighvatur, Sjöfn Kr., Aníta, Siggi og Soffía Helga... en Bára tók mynd og Batman var eini hundurinn...


ree

Önnur hópmynd en ekki tókst að ná landslaginu nægilega vel heldur hér...


ree

Hleðslurnar neðan við fjallið...


ree

Fyrsti tindurinn mældist 878 m hár...


ree

Hér hékk þyrla yfir okkur og við vorum eins og sýningargripir... ferðamennskan er að trufla göngurnar okkar reglulega núna með svona þyrluferðum ein uppi á hálendi... skrítin breyting en líklega óhjákvæmileg...

ree

Bratt upp og bratt niður... þannig var þessi ferð... það vantaði marga sem elska brattann...


ree

Hvílík formfegurð... litir, birta, áferð, andstæður...


ree

Fljótlega komin úr snjónum neðar...


ree

Vatnið svo djúpblátt...


ree

Hópurinn þéttur hér...


ree

Snjór í ekki mikilli hæð...


ree

Litið til baka...


ree

Það er auðvelt að elta næsta mann... allt annað að vera fremstur og þurfa stöðugt að taka ákvörðun um hvar á að fara... ef ekki er slóð... og ekki gps-ferill til að fara eftir... ekkert mál að ganga alltaf sömu leiðirnar... á göngustígum... með stikur til að varða leiðina... óvissarn og tilraunakenndin er krefjandi en okkur þykir hún skemmtilegust... og viljum halda okkur við í þessu eins lengi og við getum...


ree

Meðan hópurinn ar þéttur gerðu gárungar hópsins snjókarl... sem skreytti þennan hluta leiðarinnar...


ree

Við vorum stödd í töfralandi... engan verðmiða er hægt að setja á svona daga...


ree

Búin með fyrsta tindinn af fjórum... næstur var þessi lági eða þessir tveir lágu norðaustan megin...


ree

Héldum okkur við fjörur vatnsins ef það var hægt...


ree

Ákváðum að fá okkur nesti hér í sól og skjóli...


ree

Góður staður...


ree

Löðmundur blasti við úr nestistímanum milli fjallstindana... hann tapaði snjónum til helminga í sólinni þennan dag...


ree

Áfram höldum við tilraunum með alls kyns nesti...


ree

Nú var það mexíkóskur ostur, kex og vínber... dásamlegt.. vantaði bara freyðivínið...


ree

Svo tók sólin að skína og þá var allt svo gott...


ree

Þarna uppi vorum við stuttu áður...


ree

Jæja... áfram næsta tind...


ree

Hann var léttur...


ree

... og greiðfær...


ree

Ekki hægt að ganga fjörur vatnsins hér nema jú, með smá varkárni... minnti á suma kafla við Langasjó í fyrra...


ree

Síðasti tindur dagsins nú handan við vatnið... sunnan megin...


ree

Fyrsti tindurinn...


ree

Sátur og höfðar til austurs...


ree

Mjög skemmtilegt landslag á þessari leið allan tímann...


ree

Langasáta og félagar...


ree

Brugðum reglulega á leik...


ree

Birtan þennan dag... hún var með allra besta móti... allt svo skært og litríkt...


ree

Fylling í öllu og allt svo formfagurt...


ree

Tindur tvö af fjórum... hann mældist 675 m hár...


ree

Smá hópmynd...


ree

Sjá gilið eða skorninginn hér... sérstakt landslag...


ree

Hópmynd þrjú...


ree

Alveg ný og gullfalleg sýn á þetta sérstaka svæði...


ree

Þriðji tindur dagsins... við vorum handviss um að komast upp á þennan hinum megin... þjálfari var búin að liggja yfir kortum og sjá út leið... en ekkert var til aflestrar á veraldarvefnum um göngur á þessi fjöll... og eini sem við vissum um að hafi gengið hér var Þorvaldur hátindahöfðingi sem fór í kjölfarið á því að við aflýstum okkar ferð árið 2023...


ree

Birtan breyttist stöðugt...


ree

Ekki hægt að velja úr myndunum... allt svo fallegt...


ree

Hjólför að vatninu... veiðimenn... kvenþjálfari hefur veitt hér með föður sínum í eldgamla daga... þá var gist í Landmannahelli... í skála þar sem kojurnar voru 4ra hæða ef ég man rétt... eða veiddum við í Löðmundarvatni ? ... man það ekki, man að vatnið var bak við fjöllin...


ree

Þá hófst klöngrið upp brattasta tindinn af öllum fjórum... þessi ferð var alger veisla...


ree

Fyrsti tindurinn úr rótum þess þriðja...


ree

Bergið og klappirnar magnaðar á þessum tindi...


ree

Herbjarnarfell...


ree

Aftur komin í snjóinn... norðan megin í fjallinu...


ree

Fínasta leið til að byrja með...


ree

Jú... Herbjarnarfellið... við sáum góða leið... förum árið 2025...


ree

Ofar jókst brattinn...


ree

Hrafnabjörg og Hrafnabjargarvatn...


ree

Herbjarnarfell og Löðmundur...


ree

Landmannahellir... langasáta...


ree

Mosinn gaf gott grip...


ree

Komin upp á þriðja og næst síðasta tindinn... hann mældist 787 m hár...


ree

Útsýnið allt öðruvísi en af honum handan vatnsins...


ree

Sauðleysuvatn... kyngimagnað að sjá !


ree

Hér blasti Hekla við...


ree

Við vorum heppin að vera hér á sunnudegi þessum... hvar voru allir... afhverju vorum við svona fá... óskiljanlegt...


ree

Síðasti tindurinn blasti nú við í seilingarfjarlægð...


ree

Næsta fjall eftir ár...


ree

Þá var að finna leið niður... það var ekki sjálffundið...


ree

Getur þetta verið Hnúðalda þarna handan við allt vinstra megin við miðju ? Já, líklega...


ree

Krakatindur og Hekla í fjarskanum...


ree

Hópmynd fjögur...


ree

Niðurleið sunnan megin leit ekki mjög spennandi út...


ree

Útfallið úr Sauðleysuvatni... og síðasti tindurinn...


ree

Örn fann þessa fínu leið niður... í grýttri og lausri skriðu... en jarðvegurinn var mjúkur og votur svo þetta var í stakasta lagi...


ree

Hrafnabjörg þarna handan við...


ree

Heilmiklir skaflar hér...


ree

Sumarið var niðri...


ree

Komin í mjúkt grasið og mosann...


ree

Hekla að verða skýlaus...


ree

Sauðleysukvísl... þetta var alger vin í eyðimörkinni... klárlega vinalegasti staðurinn á hringleiðinni og nestisstaður næst þegar við förum hér ef af verður...


ree

Töfrar...


ree

Fegurðin í kvíslinni var með ólíkindum...


ree

Reyndum að fanga þetta á ljósmyndum...


ree

Vá... hvílíkur staður... og við máttum bara vera þarna eins og ekkert væri... ef maður bara nennti að keyra og ganga af stað...


ree

Ef menn vantar innblástur... þá er ráð að fara af malbikinu... og út í óbyggðirnar... innblásturinn er ekki í miðbæ Reykjavíkur...


ree

Náttúran skákar manninum margfalt...


ree

Margfalt...


ree

Svo lygilegt að þessar myndir fá allar að vera... það fegursta í þessari ferð var þessi lækur... og svo fjallasýnin allt í kring... þessi ganga var með þeim fallegustu...


ree

Það var hægt að gleyma sér lengi hér...


ree

Litið til baka... á næst síðasta tindinn í norðri...


ree

Fyrsti...


ree

Og við lögðum af stað á þann fjórða og síðasta...


ree

Þriðji...


ree

Hrafnabjörg...


ree

Þessi síðasti tók ágætlega í... það var áreynsla að fara svona upp og niður fjóra tinda... þessi ganga var ekki létt... hún var flóknari og meira mál en við áttum von á... sem er náttúrulega mikill fengur...


ree

Hekla að verða skýlaus...


ree

Þriðji Sauðleysutindurinn... Herbjarnarfell... Löðmundur að verða snjólaus... fyrir framan okkur...


ree

Hrafnabjörg... og vatnið þeirra... árið 2026... þá göngum við hringinn... eða 2025 og Herbjarnarfellið verður 2026... sjáum til...


ree

Nafnlausir tindar og Lambaskarð þarna á milli hægra megin... Hellismannaleið fer hér um...


ree

Hekla og Valahnúkar og Helliskvíslin og Hellismannaleið...


ree

Stutt á tindinn...


ree

Krefjandi... en best að anda að sér orkunni frá fjöllunum...


ree

Krakatindur og Hekla og Hestalda... við eigum Hestöldu eftir... hún er komin á listann...


ree

Hellismannakvísl og Valahnúkar...


ree

Falleg útsýnisbrún hér...


ree

Afstaðan í landslaginu...


ree

Niður að vatninu...


ree

Hópmynd hvað... sex ?


ree

Sauðleysuvatn frá síðasta tindinum... þeim fjórða...


ree

Hvílíkur staður...


ree

Við vorum mjög lánsöm að ná þessari göngu fyrir veturinn... sérstaklega af því það vantaði gönguna um fjöllin sem varða Laugavegsgönguleiðina...


ree

Þetta var mikil sárabót...


ree

Síðasti tindur dagsins og sá fjórði var hæstur og mældist 941 m hár...


ree

Sighvatur, Maggi, Siggi, Sjöfn Kr., Aníta, örn, Soffía helga og Batman... hvílíkir snillingar... Bára tók mynd... og syrgði það hversu fá við vorum...


ree

Botnlaust þakklæti fyrir að búa á Íslandi... og geta farið í svona dagsferðir... í september...


ree

Nesti tvö... á síðasta tindinum...


ree

Í sólinni með fjallasýn sem var á heimsmælikvarða...


ree

Riddarapeysumynd...


ree

Tilraunakenndur fíflaskapur...


ree

Þessi líklega best :-)


ree

Skyndilega brast á með snjókasti...


ree

Útsýnið til fyrsta tindsins þennan dag... þarna upp hrygginn fórum við... ótrúlega flottur fjallahringur... sem fáir hafa farið... og líklega erum við svo upptekin af því að ná öllum fjöllunum á þessu svæði að við munum alltaf keyra upp eftir til að eltast við aðra tinda en þá sem þarf að endurtaka... mælum með þessum !


ree

Niðurleiðin var líklega best niður hlíðarnar sunnan megin en ekki austan megin... miðað við landslagið sem blasti við frá fyrsta tindinum...


ree

Takk fyrir okkur Sauðleysur... áður en við færum niður...


ree

Já... ekki gott niður hér... förum aðeins vestar...


ree

Komin hringinn sem gaf sífellt annað útsýni og aðra fjallasýn... það var eitt það flottasta við þessa leið...


ree

Jú... fínasta leið hér niður... bratt en gott hald og hvergi hættulegt...


ree

Sumarið tók á móti okkur niðri...


ree

Yndislegt í síðdegissólinni...


ree

Niður mosarennuna...


ree

Litið til baka...


ree

Helliskvísl...


ree

Fyrsti tindurinn og leiðin okkar um morguninn...


ree

Flottur er hann...


ree

Fremstu menn komnir niður...


ree

Tindur eitt...


ree

ree

Sátubarn...


ree

Rauðufossafjöll...


ree

Komin í bílana... allir fóru yfir nema þjálfarabíllinn sem er hybrid...


ree

Batman var ekki að skilja að hann þyrfti að vaða Helliskvíslina en eigendur hans fengu far yfir... hann fór því fleiri en eina ferð yfir til að skilja hvað væri í gangi...


ree

Síðasti tindurinn og sá fyrsti.. ekkert við þessa tinda séð héðan frá... segir til um dýrðina sem þarna leynist... ef maður bara reimir á sig skóna... og leggur af stað... upp í þessi fjöll...


Alls 12,0 km á 5:27 klst. upp í 941 m hæð með alls 1.093 m hækkun úr 573 m upphafshæð...


ree

Hekla vinkaði vinalega þegar keyrt var í bæinn... og lofaði rennifæri upp að Skjólkvíum í nóvember... þegar við ætlum að ganga á hana...


Takk elskurnar fyrir að mæta... það var mikill fengur að þessari ferð... í jeppaleysi þjálfara þetta sumarið... og ómetanlegt að fá svona fallega göngu síðsumars... þið eruð best... áfram við... úthaldið, einurðin, þrautsegjan, staðfestan... að gefast ekki upp... að æfa ekki afsakanir... að láta sig hafa það... og uppskera svona dag... sem gleymist aldrei...



Comments


bottom of page