top of page
  • Facebook
  • Instagram
  • YouTube
  • Twitter

Skarðsfjall í Landsveit við Þjórsá

Tindferð nr. 355 sunnudaginn, páskadag 5. apríl 2026


Páskana 2026 sáu þjálfarar að lítill áhugi var á Heklu upp nýja leið og ákváðu að kanna áhugann á fara frekar á Skarðsfjallið á Suðurlandi... í Landsveit... steinsnar frá bústað þjálfara...


Mun fleiri vildu fara á Skarðsfjallið... en nokkrir voru samt ákveðnir í að fara á Heklu... svo þjálfarar ákváðu að gera bara bæði... enda ólíkir hópar og mikill munur á erfiðleikastigi þessara tveggja ferða...


Á endanum skiluðu þó ótrúlega margir sem kusu Skarðsfjallið sér ekki í þessa göngu á páskadag... en aðrir bættust við í staðinn og við enduðum ellefu manns... eftir átta manns á Heklu og allir fengu magnaða göngu um páskana sem var dýrmæmtast...


Mun snjóminna á Suðurlandi en á suðvesturhorni landsins þar sem höfuðborgarsvæðin kaffylltist af snjó í byrjun páska...


Sól og frost... og svolítill vindur... ekki alveg sama lognið og á Heklu en það kom ekki að sök þar sem þessi ganga var létt og ljúf... og við nutum í botn...


Lagt sf stað kl. 10 úr bænum... og kl. 11:35 við fjallsrætur...


Fyrst í gegnum skóg í suðurhlíðunum...


Og strax tók við mjög fjölbreytt og margtindótt landslag Skarðsfjall sem kallaðist á við Löðmund að Fjallababki á köflum...


Miðfellið í Skarðsfjalli hér á vinstri hönd... það var gengið í bakaleiðinni...


Búrfell í Þjórsárdal hér í fjarska..


Hekla og Litla Hekla í allri sinni dýrð... þarna vorum við tveimur sólarhringum áður en sama tæra skyggninu...


Við eltumst við ansi marga hnúka á Skarðsfjali og reyndum að fara víðan og góðan hring á þessu fjalli... Litli Víxlahnúkur og Víxlahnúkur...


Bjólfell og félagar sem við höfum gengið á oftar en einu sinni... en Vatnafjöll ofar eigum við eftir...


Tindfjallajökull efstur... er þetta Selsundsfjall ?


Eyjafjallajökull og Þríhyrningur...

Vor í lofti þrátt fyrir kuldann... undislegt að ganga í gróðri og heyra fuglasöng...


Litið til baka...


Innri hluti Skarðsfjallsins kemur smám saman í ljós... þar var meiri snjór...


Ágætis brekkur upp og niður allan daginn...


Háavarða framundan... Hrossahnúkar eru merktir nyrstir á fjallinu og líklega ekki þessir þá en erfitt að átta sig á því...


Meiri snjór... en ekkert í líkingu við fannfergið í fjöllunum við höfuðborgina...


Háavarða framundan...


Fallegur staður hér...


Var þetta ekki tilvalinn hópmyndastaður ?


Mættir voru alls 11 manns... Gulla og Silla efstar... svo neðar Friðrik gestur, Magga Páls., Sigrún E., Oddný T., Jaana, Maggi, Steinar R., Örn og Bára tók mynd...


Magga Páls er fyrrimynd fjölda manns í fjallgönguheiminum... það var heiður fyrir okkur að fá hana í göngu með okkur...


Hún var með húfu frá Nepal... eftir magnaða ferð til Grunnbúða Annapurna í Nepal... sem er svipuð og gönguleiðin í Grunnbúðir Everest nema þarna er meiri gróður... og þeir sem hefa farið báðar þessar leiðir... eru ekki sammála um hvor er fallegri..


Nestispása hér... í smá skjóli fyrir köldum vindinum...


Batman með matarílátið sitt...


Tindfjallajökull blasti við okkur frá nestisstaðnum... og Hekla... og Eyjafjallajökull...


Áfram var haldið upp á efsta tind Skarðsfjalls...


Litið til baka...


Útsýnið til norðurs... Búrfell og Hekla...


Þríhyrningur í suðri...


Komin á efsta tind... í 351 m hæð...


Fallegur dalur neðan við tindinn...


Norðvestari hluti fjallsins... við fórum þangað áður en við snerum til baka...


Auðvitað teygðum við okkur eins langt til norðurs og við gátum.. Þjórsá hér að koma í ljós...


Með Þjórsá í baksýn í norðurhluta Skarðsfjalls... Örn, Jaana, Friðrik gestur, Gulla, Magga Páls., Sigrún E., Silla, Steinar R., Maggi, Oddný T. og Kolka er með og Batman fyrir aftan og Bára tók mynd...


Niður á oddinn þarna...


Mesti snjórinn í norðurhlíðunum... þessi munur er mjög áberandi þessa dagana í fjöllunum eftir mikla snjókomu í marsmánuði... þar sem sólin hefur nað að bræða mikið suðurhlíðarnar...


Kolka er svo svöl... ekkert vesen... ekkert kjaftæði... púðluhundar eru næst greindastir allra hunda... á eftir bordercollie... það er eiginlega ekki aftur snúið þegar maður hefur kynnst því að eiga greindan hund... sem skilur nánast alltaf hvað er í gangi... er í takt við allt í kringum sig og leysir sjálfur úr alls kyns hindrunum... Kolku var t.d. misboðið þegar við ætluðum að hjálpa henni yfir eina girðinguna... hún hélt nú ekki og vildi bara fá pláss til að hoppa sjálf ! Ég meina, þó hún þyrfti hjálp við hsstu girðinguna... þá þurfti hún sko ekki hjálp við þær sem á eftir komu...


Hagafell... handan við Þjórsá... það er komið á vinnulista...


Skemmtilegur snjórinn á þessum kafla...


Yfir á norðvesturhnúkana...


Við gátum rennt okkur smávegis...


Kolku fannst þetta geggjað !


Enn fleiri brekkur og hnúkar... Hrossahnúkar heita þessir sem eru í norðurhlutanum..


Meiri snjór til að leika sér í...


Litið til baka...


Hestfjallahnúkur er líka kominn á vinnulistann...


Búrfell við Þjórsárdal... þjálfarar hafa hug á leið upp gilið í suðvesturhlutanum við Þjófafoss... komum því á kortið við tækifæri..


Litla Hekla og Hekla... uppgönguleiðin okkar frá því á föstudeginum langa blasti við okkur... ótrúlegt að hafa verið þarna tveimur dögum áður...


Komin á hæsta tind í norðvesturhlutanum...


Virtum fyrir okkur Þjórsá og umhverfið þar sem Hvammsirkjun mun rísa... þjálfarar munu fara hér reglulega og fylgjast með þar sem þetta er steinsnar frá sveitinni þeirra...


Þjórsá...


Nú var snúið við...


Yndislegur kafli tók við með vindinn í bakið... eða algeru skjóli... og sólin skein skært og hitaði allt upp...


Friðrik og Silla... spjall og vangaveltur eru eitt af því besta við fjallgöngurnar...


Fórum meðfram girðingunni niður eftir fjallinu...


Miðfellið þarna í fjarska framundan... hvössu brúnirnar sem blöstu við í byrjun dags...


Litið til baka jupp á Háuvörðu...


Frábær hópur á ferð... yndislegur félagsskapur...


Stelpumynd... og Kolka með...


Strákamynd... og Batman með...


Upp Miðfellið...


Fundum þetta forláta hlið sem gerði okkur kleift að fara betri leið...


Litið til baka...

Hrossahnúkar vinstra megin.. og Háavarða hægra megin...


Hekla... við fáum ekki nóg af henni... eigum eftir uppgönguleið austan megin frá Mundahrauni... hún verður skoðuð í sumar !


Komin upp á Miðfellið...


Hér blasti við undirbúningurinn fyrir Hvammsvirkjun... vinnubúðir og riastór bílastæði fyrir vinnuvélar... nýr vegur ofl...


Þjórsáin og bærinn Hvammur...


Hvílík dásemd þessi páskadagur...


Kolka léttleikandi fremst á mynd með Hrossahnúka og Háuvörðu í baksýn...


Aftur yfir nýrri girðinguna...


Og áfram meðfram eldri girðingu...


Niður af Miðfellinu... farið að vera snjólítið... í suðurhlíðunum... bílarnir þarna niðri...


Þríhyrningu talsvert nær en áðan...


Litið til baka upp Miðfellið...


Síðasti kaflinn í klingjandi vori...


Yfir þetta gil að bílunum...


Gegnum smávegis skóglendi...


Að stiganum yfir girðinguna við veginn...


F26... hér keyrum við alltaf á leið í Dómadal eða í Hrauneyjar... eða á Heklu og fjöllin á hennar áhrifasvæði... #Hekluslóðir


Komin í bílana...


Alls 9,0 km á 4:09 klst. upp í 351 m hæð með alls 556 m hækkun úr 96 m upphafshæð... ljúfur og yndislegur dagur og klukkan korter í fjögur... framundan rúmur klukkustundarakstur í bæinn... í dagsbirtu... þetta var aldeilis vel þegið á páskadegi...


Hjartansþakkir elskur fyrir þennan ljúfa göngudag... loksins er þetta fjölbreytta fjall komið í okkar bækur... en við eigum líklega eftir að ganga það aftur að sumarlagi... og sjá Hvammsvirkjun komna lengra á veg...



Comments


bottom of page