Æfing nr. 780 þriðjudaginn 21. nóvember 2023.
Einstaklega falleg leið liggur kringum Hvaleyrarvatn og upp á Stórhöfða þar sem kominn er nú góður stígur alla þessa leið og var þetta æfingin þriðja þriðjudaginn í nóvember þegar myrkur er frá upphafi göngu. Alls mættu 17 manns og nutu útiverunnar í roki og nöpru veðri sem slapp vel á þessari skjólgóðu leið nema helst uppi þar sem vel blés enda 12 m/sek þetta kvöld.
Alls 5,5 km á 1:20 klst. upp í 138 m hæð með alls 167 m hækkun úr 43 m upphafshæð.
Takk fyrir hressilega æfingu í krefjandi veðri á fallegri leið !
Nokkrar myndir úr göngunni hér fyrir neðan og nafnalisti við hópmyndina:
Mættir voru:
Aníta, Brynjar, Dína, Guðmundur Jón, Inga, Jón St., Karen Rut, Katrín Kj., Kristjana, Linda, Sighvatur, Siggi, Sjöfn Kr., Valla, Þorleifur, Þórkatla og Örn en Batman og Hetja léku sér aldeilis saman þetta kvöld.