Ölfusalparnir Stekkatúnshnúkur, Lambhagahnúkur, Botnahnúkur, Álútur, Stórhálsafjall og Bjarnarfell frá Hveragerði
- Bára Agnes Ketilsdóttir

- Feb 4
- 6 min read
Tindferð nr. 351 laugardaginn 24. janúar 2026

Við höfum gengið á Botnahnúk / Botnafjall og Álút áður... en í þessari stóru hringleið var ætlunin að glöggva sig vel á öllu fjalllendinu ofan Hveragerðis sem ekki tilheyrir dölunum þremur sem við höfum gengið þvert og endilangt í mjög skemmtilegum tindferðum og þriðjudagsæfingum, m.a. um Gufudal (hinir eru Grænsdalur og Reykjadalur) þar sem Botnahnúkur og Álútur komust á kortið árið 2014... Tindferð 102 fjallasalur Gufudal

Við höfðum tekið eftir mjög fallegum örnefnum á hnúkunum ofan Hveragerðis... Húsatorfuhnúk, Stekkatúnshnúk og Lamhagahnúk... og tvisvar ætlað að ná þeim á þriðjudagsæfingum en alltaf verið eitthvað sem hindraði för... og svo togaði Bjarnarfellið alltaf í okkur svo þetta var orðin að tilvalinni janúartindferð þar sem við sáum fyrir okkur allt hvítt í ferskum snjó og sólina lágt á lofti að leika listir sínar á þessum dimmasta tíma ársins...

En það varð nú svolítið annað en svoleiðis... jörð auð og engan snjó að hafa... stífur vindur reyndar en annars tiltölulega hlýtt, úrkomulaust og bjart veður...

Við lögðum af stað úr bænum kl. 09... og af stað í gönguna kl. 9:39 eftir stuttan akstur yfir Hellisheiði...

Við gengum í raun of lengi á stígnum undir fjallsbrúnunum áður en við tókum vinstri beygju upp brekkurnar... en hugsuðum þá að það væri þess virði að ná meiri vegalengd út úr þessum degi... grunlaus um að þetta myndi lengja gönguna auk annars upp í 20 kílómetra...

Sólin kom upp rúmlega tíu... við Ingólfsfjall...

Útsýnið til Hveragerðis...

Við tókum vinstri beygju þegar upp var komið og stefnum á hnúkana vestast og ætluðum að enda á Húsatorfuhnúki í lok dags... en enduðum á að sleppa honum enda komið gott þegar Bjarnarfellið var að baki...

Stekkatúnshnúkur... eða Stekkjatúnshnúkur ? Á ekki að vera -j í eignarfalli þessa orðs... við erum ekki viss... stundum er stafsetningarvilla í kortum sem eltir og enginn leiðréttir en stundum eru nöfnin rétt þó þau virðist vera ranglega skrifuð...

Skálafell á Hellisheiði hér í fjarska trónandi yfir heiðinni og þjóðvegur 1 niður kambana... þarna niður hægra megin út af mynd ætlum við að koma í febrúar á leið frá Sleggjubeinsskarði...

Stefnan tekin á Stekkatúnshnúk og Lambhagahnúk...

Nokkrir hnúkar á leiðinni en okkur þóttu þeir eiga rétt á því að fá nöfn og telja í 100 fjalla áskoruninni... þessir tveir sem eru óþekktir, Stekkatúns- og Lambhagahnúkur... Stekkatúnshnúkur var fyrsti tindur dagsins og mældist 340 m hár...

Sólarupprásin í suðaustri...

Stóragil... hér upp ætlum við næst að fara... á þriðjudegi í lok ágúst á leið á Húsatorfuhnúk...

Upp Lambhagahnúk... tindur tvö þennan dag... Botnahnúkur vinstra megin á mynd... hæsti tidur Botnafjalls og án efa "löglegur" sem sérfjall í #100fjöll

Litið til baka á Stekkatúnshnúk ef ég man landslagið rétt...

Mjög stífur vindur og kaldur þegar hann blés...

Bjarnarfell kemur í ljós... og nyrðri hluti Ingólfsfjalls...

Lambhagahnúkur... í 400 m hæð...

Botnafjall eða Botnahnúkur var þriðji tindur dagsins...

Sýnin til Hveragerðis... skrítið að vera hér í janúar í sumarfæri...

Birtan gullin í sólarupprásinni... það var allt með okkur nema vindurinnn...

Nestispása í smá skjóli... undir tindi Botnahnúks sem mældist 488 m hár...

Búrfell í Grímsnesi vinstra megin í fjarska... Hestfjall sem er á dagskrá í nóvember líklega hægra megin...

Litið til baka á Botnahnúk...

Álútur var fjórði tindur dagsins... sá glæsilegasti fyrir utan Bjarnarfellið... leiðin á hann úr Gufudal er litrík og formfögur... hann er á dagskrá á þriðjudagskvöldið sumarið 2027...

Hengillinn... Tjarnarhnúkur, Lakahnúkur og Hrómyndartindur hægra megin... Kýrgilshnúkur og Litla Skarðsmýrarfjall vinstra megin en á þau ætlum við í febrúar...

Ingólfsfjall...

Farin að nálgast Álút...

Loksins smá vatn að drekka fyrir hundana efst á heiðinni...

Litið til baka...



Botnafjall / Botnahnúkur í baksýn...

Komnir á Álút... fremstu menn...

Vatn lak úr snjósköflum efst milli hnúka...




Komin á Álút... á honum var skilti sem vísaði á hinar ýmsu gönguleiðir á svæðinu... hann mældist 502 - 514 m hár eftir því hvaða tæki fær að ráða... látum 502 m standa...

Hér var mjög hvasst...

Það leit úr fyrir að við yrðum bara 8 manns í þessari göngu þegar þjálfarar staðfestu brottför... en svo bættust nokkrir við á föstudagseftirmiðdag og um kvöldið og við enduðum í 16 manns sem var frábært...
Siggi, Hermína í sinni fyrstu tindferð, Hjörtur, Ragnheiður, Björg, Aníta, Sjöfn Kr., Örn, Linda, Smári, Birgir, Frímann, Gulla, Erik í sinni fyrstu tindferð og loks Tína en Bára tók mynd.
... og hundarnir voru þrír... Baltasar, Batman og Gutti...

Við drifum okkur niður af Álúti og tókum stefnuna á Stórhálsafjallsem hér blasir við... en þjálfarar voru næstum því... búnir að stytta gönguna þarna vegna vindsins sem tók verulega í... en það sem gerðist næst...

... var að það lægði þegar dró niður í dalinn og komið var blíðskaparveður undir Stórhálsafjalli... ótrúleg veðrabrigði og skjóli líklega að þakka frekar en breytingu á veðri því spáð var auknum vindi ef eitthvað var þegar liði á daginn...

Hér var heilandi að ganga með afsakandi goluna eins og Kalman orðar það...



Nestispása hér í miðjum dalnum í mun betra veðri en í fyrri pásunni...

Upp brekkurnar á Stórhálsafjalli...

Útsýnið af því var alveg magnað til Þingvalla... hér komin upp á efsta hlutann sem mældist 365 m hátt...

Botnssúlurnar... snjólitlar í lok janúar... hver myndi trúa þessu fyrir nokkrum árum síðan ?

Kálfstindar... Hlöðufell hvítt af snjó og í sól aftar...

Ingólfsfjallið norðvestan megin... hingað koma fáir...

Bjarnarfellið var næst... við tókum stefnuna suður á það... Húsatorfuhnúkur hér hægra megin...

Hestfjall sem bíður eftir okkur í nóvember... í léttri og stuttri dagsgöngu...

Heilmikill dalur hér á milli...


Gljúfur milli fjalla...

Litið til baka á Stórhálsafjall...

Húsatorfuhnúkur...

Upp Bjarnarfellið...



Bjarnarfellið mældis 374 m hátt...

Útsýnið til fyrri tinda dagsins... Botnafjalls og félaga...

Leiðin til baka af Bjarnarfelli... Húsatorfuhnúkur fyrir miðri mynd...

Litið til baka... Stórhálsafjall í sólargeislunum...

Ágætlega víðfeðmt fjall...

Sólin enn ágætlega hátt á lofti...

Ingólfsfjall...

Syðri hluti Ingólfsfjalls...

Eina alvöru brekkan í allr þessari ferð var hér í smá brölti niður þar sem fara þurfti varlega í frosnum jarðveginum með grjótið rúllandi...

Í miðri brekku settumst við niður og þéttum hópinn og sólin skein svo hlýtt á okkur...



Litið til baka upp Bjarnarfellið...

Fallegur kaflinn hér...

Gljúfurá... hvorki meira né minna... en maður skildi nafnið eftir að maður sá gljúfrið ofan af Stórhálsafjalli...
Þjálfari bað menn að taka vaðskó meðferðis þar sem kortin sýndu vatnsföll sem erfitt var að átta sig á hvort þyrftu vöðun... við náðum alltaf að stikla yfir en í blautu árferði gæti þurft að vaða í dalnum þarna milli fjalla... Siggi prófaði nýjar vaðgræjur frá Temú...

Og við horfðum á hann í græja sig fyrir vöðunina...

Þær virkuðu vel þessar vöðlur, settar utan um skóna og vörðu vel...

Bjarnarfellið glæsilegt að sjá...

Annað vað á leiðinni... Selá... og Selárgljúfur heitir gljúfrið sem við gengum upp með... en það er líklega ekki það sama og við sáum ofan af Stórhálsafjalli... það gljúfur er innar uppi á heiðinni sýndist okkur...

Upp með gilinu...

Hér kom smá snjófjúk yfir okkur og þjálfarar afréðu að sleppa Húsatorfuhnúki... fyrirséð að við myndum vera 19 - 20 km alls og yfir þúsund metra hækkun svo það var ráð að láta gott heita með sjö tinda þennan dag... en við dauðsáum eftir því... það voru 300 m í hnúkinn en jú, reyndar nokkur hækkun...

Við urðum að sýna því tillitssemi að í hópnum voru nokkrir nýliðar sem ætluðu að mæta í létta göngu... það var ekki lagt upp með 20 km heldur 12-14 km... en nýliðarnir voru samt ekkert að kvarta... nutu þessa í botn...

Það var því svolítið grátlegt að sleppa Húsatorfuhnúki... af því eftir á þótti okkur þessi ganga mergjuð og söguleg... og Örn fór að kalla þetta "Ölfusalpana" sem okkur fannst fallegt nafn á þennan fjallfarð... þessi hnúkur átti skilið að vera með í þessari hringleið svo ef einhver eltir gps-slóðina... þá mælum við með að fara fyrst á hann og Bjarnarfellið og taka öfugan okkar hring... bara hugmynd...

Það létti aftur til eftir þetta undarlega snjófjúk...

Frosnir pollar...


Örn fann leið sem var ekki alveg eins austarlega til baka og á uppleið... hér er líklega Vallagil...

Ingólfsfjall...

Gil hér sem við ákváðum að skoða með niðurleið um...



Ófært austan við gilið en vel fært vestan við það...

Snerum því við stuttan spöl og kræktum fyrir gilið...


Mjög falleg leið... við sáum ekki nafn á þessum stað á kortunum...

Hveragerði og Skálafell á Hellisheiði...

Skoðum þetta betur síðar... á þriðjudagsæfingu...

Komin á stíginn sem er undir öllu hamrabeltinu ofan við bæinn... vel gert að gera þetta fallega útivistarsvæði kringum bæinn...

Við strunsuðum þennan kafla hver á sínum hraða...

Mættum einu sinni heimamönnum í göngutúr... þetta er mjög vinsælt útivistarsvæði...

Komin að sundlauginni...

Litiðt til baka upp alpana í Ölfusi...

Og lengra til suðurs... mjög fallegir hamrar...

Yfir Varmá á brú...

Náðum 20 km á strava en 19 km á gps-tækinu...

Alls 19,4 km á 6:43 klst. upp í 502 m hæst með alls 1.035 m hækkun úr 30 m upphafshæð... eftir að þessi gps-slóð fór í Basecamp... oftast lækkar talan við það... ekki spyrja mig afhverju... við erum endalaust að velta þessu fyrir okkur... hvort forritið fækki punktunum, lengi bilið millli þeirra í tíma og vegalengd og þá sléttist úr ferlinum... líklega er það skýringin... alls kyns sannleikur í boði á okkar tímum...

Frábær dagur í alla staði... ekki einn af okkar allra bestu... undir meðallagi... en dýrmæt hreyfing og þjálfun í vegalengd og yfirferð...

Fjallgarðurinn sem við gengum þegar litið var yfir svæðið á leið keyrandi upp kambana...

Frábær ferð og dýrmætt með meiru að ná 20 km göngu í lok janúar... og ná þriðju tindferðinni í þessum fyrsta mánuði árið 2026... sem byrjaði náttúrulega með svakalegum hvelli á Heklu þann þriðja... greinlega magnað ár framundan !
Gps-slóðin hér: https://loc.wiki/u/77475?wa=uc








Comments