Bleikhóll, Ketilstindur, Skarðatindur og Miðdegishnúkur á eintómu klöngri !
Æfing nr. 900 þriðjudaginn 8. september 2026

Fjögurra tinda æfing var 8. september í blíðskaparveðri...

Sólin ágætlega hátt á lofti til að byrja með þegar við röltum á Bleikhól...

Frábær mæting og tvær að koma í sína fyrstu göngu með hópnum... þær Ásdís og Rakel...

Bleikhóll skartar grösugu hjarta... hér séð ofan frá tindinum... og þaðan sáum við graslaga kross með... höfum ekki tekið eftir honum áður...

Frá Bleikhól fórum við upp í fjallgarð Sveifluhálss...

En hálsinn sá er botnlaust ævintýraland fyrir þá sem vilja brölta og klöngra sem mest...

Þægilegt gönguland neðar... en uppi er móbergið með lausagrjótið að þvælast fyrir manni milli þess sem mosaþembur og slétt berg hvíla líkama og sál milli verkefna...

Bleikhóll hér lítill í samanburði við fjallshrygg Sveifluhálss... en hann er fallegur séð frá þjóðveginum...

Mætt... í lausagrjótið... ofan á móberginu...

Byrjað var á Ketilstindi... erfitt að átta sig á hvaða tindur er hvað... allir nafnlausir mneða Stapatindur og Miðdegishnúkur og því höfum við myndast við að hafa nöfn á öllum þessum tindum... en þetta er það ruglandi að það var stundum erfitt að átta sig á hvar við vorum nákvæmlega... og það var allt í lagi...

Þetta er einfaldlega magnaður fjallshryggur...

... sem býður upp á endalaust klöngur...

Hér snerum við þó við þar sem Erni leist ekki á að koma þeim hér yfir sem eru óöruggastir í þessu brölti...

Endalaust hægt að leika sér hér og kanna nýjar slóðir... hér fórum við upp í 348 m hæð...

Veðrið var með besta móti... logn, sól og hlýtt...

Heilmikið brölt hér niður og um að gera að prófa sjálfur nýja leið ef maður treystir sér...

Skarðatindur var næstur...

Sést hér... mjög falleg leið á milli tinda... en alls staðar lausagrjót ofan á móberginu...

Göngur erlendis í sumar og hér innanlands í umræðunni... sem of Vertu Úti þættirnir á RUV sem við erum mjög þakklát fyrir... mættu þeir vera helmingi lengri og margfalt fleiri... og mörg okkar eru líka að horfa á Garp Elísabetarson með sína skemmtilegu þætti um fjallgöngur...

Ketilstindur hér í baksýn...

Klettar um allt... óskaplega fallegt...

Skarðatindur hér framundan og aftan hans var Miðdegishnúkur...

Við höfum farið hér niður... en nú fórum við upp í mót... og snerum við...

En skemmtilegt var þetta...

Og sérstakt landslag... eins og gjörningur...

Þjálfarar voru sannfærðir um að hafa farið hér niður hægra megin... en okkur leist ekki á uppleiðina... og sáum þegar heim var komið að við höfðum farið hér niður í febrúar 2013... með allt á kafi í snjó... sem hefur líklega verið betra og svo er oft annað að fara niður en upp...

Einstakt landslag...

Litið til baka...

Mjög skemmtilegt landslag...

Örn leitaði að leið...

En við snerum við eftir torfæran kafla ofar...

Ekki alveg okkar stíll... en betra að hafa vaðið fyrir neðan sig í 16 manna hópi...

Komin neðan við tindinn hér þar sem við snerum við...

Vorum með gps-slóð þar sem við fórum upp á hann norðan megin...

Jú... hefðum við ekki getað farið þarna upp... aldrei að vita... eitt af því skemmtilegasta við þennan fjallgarð... endalaus leiksvæði...

Fórum svo upp hér... heilmikið klöngur og flestir fóru alla leið...

Fólkið í þessum klúbbi er hreinlega magnað !

Mjög skemmtileg leið...

Gott brölt hér...

Hér áðu nokkrir meðan flestir kláruðu upp...

Fallegt sólarlagið...

Síðasti kaflinn upp...

Miðdegishnúkur sést hér fjær...

Magnað útsýnið ofan af Skarðatindi... hann mældist 385 m hár...

Dásamlegt að klöngrast í þessu veðri...

Birtan þetta kvöld... bara veisla...

Miðdegishnúkur sem hér sést var síðasti tindur kvöldsins...

Hollt brölt og klöngur hér niður aftur...

Fórum þrjár leiðir til að nýta tímann best...

Hvílíkur staður...

Gott að æfa svona klöngur sem mest á þriðjudögum...

Vesturhryggur Sveifluhálss... þegar við gengum hann endilangan árið 2015 þá kölluðum við hann Móhálsatindar til aðgreiningar... Tindferð 115 Móhálsatindar á Rey

Miðdegishnúkur var næstur...

Mosaklædda geilin er tilvalin uppgönguleið...

Hér var nestispása þar sem Björg fékk góðan plástur hjá Ásdísi á stórt svöðusár á mjöðminni þegar hún rann í lausagrjótinu á móberginu eins og Linda lenti í stuttu áður... og til að toppa óhappastemninguna í öllu þessu klöngri þá fékk Ásdís ágætis grjót í hnéð í fyrstu brekkunni... svo við sögðum að nú væri komið gott... þrjú óhöpp og ekki meir takk fyrir... en áfram hélt klöngrið...

Létt og lungamjúkt reyndar hér...

Fallegt að sjá þessa leið að sumri til..

Efsti kaflinn upp...

Léttari tindur en Ketilstindur og Skarðatindur hvað varðar klöngur og torfærur...

Hæsti tindur kvöldsins... 432 m hár... og útsýnið eftir því... en hér var sólin farin og búið að þykkna upp... slagveður á leiðinni...

Útsýnið til Kleifarvatns...

Frábær hópmynd...
Hjörtur, Erik, Sighvatur, Einar, Linda, Siggi, Örn, Gunnar, Kolbeinn, Sjöfn Kr., Guðný Ester, Silla, Ásdís og Rakel en Bára tók mynd og hundarnir voru fjórir... Batman, Messí, Mía og Loki... átta karlmenn og átta konur... hlýja og væntumþykja...

Niður aðra leið af Miðdegishnúki en við komum upp...

Fínasta leið... en lausagrjót á móbergi en mun erfiðara yfirferðar niður í mót en upp í mót...

Áfram hélt klöngrið... alla leið niður.... þetta átti ekki að vera létt æfing greinilega...

Við mundum vel eftir þessari leið oftar en einu sinni hér niður...

Og höfum farið mjög svipaða leið hér þó nokkuð oft á öllum árstímum...

En lausamölin ofan á móberginu var seinfarin í þetta skiptið...

Vorum heillengi hér niður... en höfum farið þetta nokkrum sinnum...

Keðjubroddar hefðu verið góður hér, haha :-)

En allt kom þetta með þolinmæði og æðruleysi... við allavega duttum ekki og fjórða óhappið lét ekki á sér kræla á þessum í raun erfiðasta kafla kvöldsins...

Farið að rökkva síðasta kaflann en sluppum án höfuðljósa... þau eru nú mætt... á þriðjudögum...
Alls 5,3 km á 3:21 klst. upp í 403 m hæð með alls 437 m hækkun úr 150 m upphafshæð
Heldur lengra en við ætluðum í tíma en ekki vegalengd... ekta Sveifluháls... við áttum að vita þetta... svona er þessi Sveifluháls... og það er geggjað !





Comments