top of page
  • Facebook
  • Instagram
  • YouTube
  • Twitter

Blækyrrð og lognværð á Hafrahlíð og Reykjaborg

Æfing nr. 837 þriðjudaginn 11. nóvember 2025



Árið 2025 fannst moskítóflugan í fyrsta sinn á Íslandi... ekki skrítið... í öllu þessu logni... og erum við nú ekki að kvarta... en það liggur við að við kunnum ekki lengur á vindinn... slíkt er hið lygna veður vikum og mánuðum saman meira og minna þetta árið... og finnst þjálfara þetta búið að vera svona síðustu tvö ár eða svo... en þó í mesta mæli nú, árið 2025...



Dagskráin miðast við erfiðan vetur sem hefur verið reynslan svona allavega aðra hverja þriðjudagsgöngu... stundum margar í röð... en nú er blíðskaparveður þriðjudag eftir þriðjudag... og því eru æfingarnar hálf léttar að okkur finnst... en yndislegar...



Mía er nýjasti Toppfarahundurinn... hún stendur sig með prýði og er algert ljós... en Siggi er að venja hana við fjöllin og félagsskap hunda og mann og það gengur vel... hér komin í bakpokann sem Siggi er með fyrir hana þegar vindurinn mætir eða aðstæður verða of erfiðar fyrir þessa litlu en dásamlegu písl...




Alls mættir 14 manns: Þorleifur, Örn, Siggi, Brynjar, Ragnheiður, Linda, Silla, Björg, Halldóra Kr., Hermína sem var að mæta í sína fyrstu göngu og rúllaði þessu upp, Guðjón, Hjörtur og Bára tók mynd en Batman og Ch voru þarna með líka...



Önnur orð... yfir lognið... sem tröllríður árinu 2025... íslenskan á skilið... að við leitum fanga hjá henni... og engum öðrum tungumálum... #áframíslenska


... og hvert orð hér fyrir neðan... á skilið heila línu... hvílík orðasmíð... hvílík gnægð... hvílíkur fjársjóður... á bak við hvert orð var sköpun einhvers... hugsun í lausnum... um hvernig ætti að koma orðum að því sem er... logninu... í veðrinu...


... þjálfari lofar að nota þessi orð hér fyrir neðan hér með... og hætta að skrifa alltaf einungis "logn"... við getum þetta... enga leti... nýtum þetta ríka og fjölbreytta tungumál okkar... íslenskan á það skilið...


Álablíða

blankalogn

bláalogn

blálogn

blíðalogn

blæjalogn

blækyrrt

blælygn [kvöld, nótt]

dauðalogn

dúnalogn

froststilla

glampandi logn

hann blálygnir

hann dúrar

hann gerir <logn>

hann hreyfir ekki vind

hann hægir

hann lygnir

hann lægir

hann sléttlygnir

hitastilla

hvítalogn

í blíða logni

í blíðalogni

í blæja blíða logni

í blækyrru veðri

í dúnalogni

í hvítalogni

í koppalogni

í kyrralogni

í logni

í rjómalogni

í stillilogni

koppalogn

kyrra

kyrralogn

kyrrur

ládeyða

lognblíða

logn er veðurs

lognfrost

lognhvítur [dagur]

lognkyrr

lognkyrra

lognkyrr [dagur, kvöld, nótt]

lognmolla

lognstilla

logn um allan sjó

lognveður

lognviðri

lognvær

lognvær [dagur, kvöld, nótt]

lognværð

lygna

lygnt

lygnt veður

lygn [veður]

renniblíða

rennilogn

rjómablíða

rjómalogn

selalogn

sléttalogn

spegillogn

speglandi logn

stafalogn

stilla

stillilogn

stillulogn

stillur

<storminum> er í logn slegið

svartalogn

<veðrið; storminn> lygnir

<veðrinu> slær í logn

vetrarstilla

vindlaust loft

vindleysa


Vá ! Hvílíkur snilldarinnar listi úr smiðju Árnastofnunar !



Æfingin reyndist alls 5,1 km á 1:43 klst. upp í 253 m á Hafrahlíð og 288 m á Reykjaborg með alls 274 m hækkun úr 73 m upphafshæð...


Ef klukkunni verður seinkað um klukkutíma... þýðir það myrkur á þó nokkuð fleiri þriðjudagskvöldum en nú er... og minni birtu almennt... og lægri sól almennt á öllum þriðjudagsæfingum... vonandi raungerist það ekki...



Hleðsla á jákvæðri orku, þakklæti, hugljómun, auðmýkt, lærdómi, vinsemd, virðingu, hjálpsemi, samstöðu... og fjölda fleiru... þessar göngur eru ómetanlegar... verum þakklát númer eitt ;-)

Comments


bottom of page