Hafrahlíð og Reykjaborg í örum vorleysingum
- Bára Agnes Ketilsdóttir

- 7 hours ago
- 2 min read
Æfing nr. 886 þriðjudaginn 7. apríl 2026

Eftir undarlegt fannfergi á suðvesturhorni landsins í byrjun páska afréðum við að geyma Dauðadali, Hádegishnúk og Stóra Reykjafell baksviðs og fara á Hafrahlíð og Reykjaborg í staðinn enda veðurspá ekki sérlega góð...

Vorið mætt og var óðum að bræða allan þennan snjó sem kyngdi niður á skírdag...

Sniðgengum stíginn upp hér og tókum höfðann sem er sunnar og nánast snjólaus...

Smávegis blautur skafl hér...

Hafrahlíðin mældist 263 m há... Reykjaborg hér framundan...

Dásamlegir göngufélagar og gott að hittast eftir ævintýri páskana... Guðjón tók sem dæmi einn síns liðs fyrsta legg Þverunarinnar frá Reykjanesvita í Leirdal... magnað hjá honum !

Lítill snjór nema í norðurhlíðunum...

Reykjaborgin mældist 303 m há... vindur og smá úrkoma en autt færi að mestu og hlýtt... við gátum ekki kvartað... og tókum fagnandi á móti vorinu...

Mættir voru:
Helgi, Erik, Halldóra Kr., Sigríður Lísabet sem var að mæta aftur í klúbbinn eftir hlé, Örn, Siggi, Linda, Sjöfn Kr., Hjörtur, Björg, Guðjón og Kolbeinn... og Batman mætti ásamt einum gestahundi með Lindu sem ég man ekki hvað heitir... og Bára tók víst mynd...

Mót vindinum til baka... við ætluðum að sniðganga snjóskaflinn milli tinda... en enduðum á að skóflast yfir hann innarlega...

Já... það voru leirlækir... slík voru hlýindin...

Úlfarsfellið í sólarskímunni hér...

Miklir snjóskaflar hér og lækirnir rennandi undir... stundum fórum við í gegn langa leið og sumir rennblotnuðu...

En dásemdin leyndi sér ekki... þessi leið er óskaplega falleg...

Sjá bunandi lækinn hér niður brekkurnar... ótrúlegt magn af vökva leystist upp þessa dagana...

Lækirnir flæddu vel yfir bakka sína...

... og yfir snjóinn...

Gilið fallega fullt af snjó...

Vegurinn allur í lækjum sem runnu yfir hann... og í skóginum stigum við niður í gegnum rennandi blautan snjóinn vel upp að hné á köflum... sjaldan séð annað eins...

Skyndilega voru svona kaflar erfiðir...

Skaflarnir voru á floti...

En birtan... og hlýjan í loftinu... yljaði og gaf okkur innblástur...

Alls 5,5 km á 1:49 klst... upp í 263 m hæð á Hafrahlíð og 303 m á Reykjaborg... með alls 298 m hækkun úr 84 m upphafshæð...
Verum góð hvort við annað... hugsum í lausnum en ekki hindrunum... ævintýrum en ekki úrtölum... sláum ekki á puttana hvert á annað... samgleðjumst... hvetjum... styðjum... hrósum... verum glöð... og þakklát... þakklát númer eitt...




Comments