Húsfell á þriðjudagskveldi í janúar
- Bára Agnes Ketilsdóttir

- 1 day ago
- 1 min read
Æfing nr. 881 þriðjudaginn 27. janúar 2026

Sextán manns mættu á Húsfellið í lok janúar í smá dagsbirtu í byrjun... en auðu færi, stífum vindi, sumarfæri og úrkomulausu... og rúlluðu upp þessu fallega felli sem er fjærst bílastæðunum á svæðinu...
Hörkugóð æfing þar sem gengið var rösklega enda á láglendi að mestu með smávegis brölti upp á sjálft fellið... og verður að segjast að nýliðar klúbbsins standa sig með prýði og mæta bæði í erfiðar þriðjudagsgöngur og tindferðir þessa dagana...
Mættir voru: Erik, Steindór, Snorri, Halla, Silla, Gunnar, Guðný Ester, Hjörtur, Guðjón, Chr og Örn og Bára tók mynd en á miðri leið sneru Halla og Snorri við þar sem Halla þurfti að mæta á fund klukkan átta... og í staðinn bættust Tína og Frímann við hópinn uppi á tindinum svo við vorum í raun alls 16 manns.
Alls 10,6 km á 2:46 klst. upp í 311 m hæð með alls 329 m hækkun úr 91 m upphafshæð.
Ljósmyndir úr göngunni hér en í þessu myrkri og snjóleysi er myndefnið alls ekki gott og því af litlu að taka en við tókum aðra hópmynd í lok göngu þar sem mætingin breyttist :-)





Takk fyrir gönguna snillingar !








Comments