top of page
  • Facebook
  • Instagram
  • YouTube
  • Twitter

Kirkjuhetta, Strútshetta, Sporðhetta og Jökulhetta um Eystri Hagafellsjökul #Jarlhettur

Updated: Oct 24, 2023

Tindferð nr. 282 laugardaginn 30. september 2023.


ree

Sjöunda gangan okkar á Jarlhetturnar var laugardaginn 30. september í fínasta veðri og skyggni og tók gangan óvæntan snúning þegar við komum að jöklinum þar sem tveir tindar voru gengnir og jökulsporðurinn á milll þeirra þveraður með ævintýralegri uppgötvun á íshellum og svelgum innan um hefðbundnar sprungur... og náðust með þessu þrjár nýjar Jarlhettur í safnið, Kirkjuhetta, Sporðhetta og Jökulhetta og í annað sinnið gengum við á Strútshettu sem við kölluðum fyrst Mið-Jarlhettur ásamt Kirkjuhettu þar til við fundum þörfina á að aðgreina þær enda alveg aðskildir tindar... en þess skal getið að Kirkjuhetta var ekki gengin alla leið á efsta tind í þessari ferð, þar sem við urðum frá að hverfa efst í klettunum en líklega eigum við að geta komist alla leið upp lónsmegin að vestan sem við munum gera á annarri ferð hér um slóðir á næstu árum...


ree

Fyrsta snjófölin lá yfir hálendinu þegar komið var upp á vegaslóðann að Skálpanesi í um 800 m hæð... hér sést yfir að Kili....


ree

Létt frost var í jörðu í Skálpanesi... en mjúkur jarðvegurinn undir svo við sáum ekki fram á að þurfa keðjubrodda í þessari göngu... lagt var af stað kl. 9:08 eftir 2ja tíma akstur úr bænum kl. 07... í 823 m upphafshæð...


ree

Leiðin frá Skálpanesi er niður í mót í átt að Jarlhettunum... með jökulinn á hægri hönd... mjög grýtt leið þar sem fóta þarf sig milli alls kyns stærða af hnullungum...


ree

Komin niður á sandinn og fyrstu Jarlhetturnar koma í ljós en þoka lá yfir þeim að hluta efst eða innst eða norðaustast...


ree

Litið til baka við sandröndina...


ree

Nyrstu Jarlhettur kölluðum við þessar í annarri Jarlhettuferðinni... þær voru gengnar með Rauðhettu og Innstu Jarlhettu árið 2010... Tindferð 82 - Nyrsta (toppfarar.is)


En allar Jarlhettuferðirnar eru hér: Jarlhetturnar| Toppfarar (fjallgongur.is)


ree

Hjarta ferðarinnar...


ree

Töfrar svæðisins tóku smám saman við...


ree

Hér hefur oft verið meira vatn... þurft að stikla yfir og sökkva í meyran leir... nú var allt þurrt nánast og stöku pollar...


ree

... sem voru frostnir....


ree

Strákarnir sýndu hvað í þeim býr þegar þetta grjót varð á leið okkar...


ree

... og við stelpurnar fjórar höfðum lúmskt gaman að... hlæjum sem mest og oftast... tökum okkur ekki of alvarlega... en það merkilega við þessa ferð var að í fyrsta sinn í langan tíma voru fleiri strákar en stelpur í tindferð... 7 strákar og 4 stelpur... þetta var eins og í gamla daga þegar strákarnir voru í meirihluta mættir meira og minna á tímabili...


ree

Brátt reis Rauðhetta úr þokunni...


ree

.... og við gengum inn í áhrifasvæðið hennar þar sem stór móbergsgrjót hafa brostið úr hlíðum hennar niður á sandana...


ree

Litið til baka...


ree

Hópurinn þéttur reglulega...


ree

Við gengum undir Rauðhettu og hálfan hring í kringum hana...


ree

Skyndilega opnaðist á syðri Jarlhetturnar þar sem Kambhetta stal senunni...


ree

Hvílík formfegurð... maður tekur alltaf andann á lofti...


ree

Nærmynd.... við gengum á Kambhettu árið 2019 og komumst nánast alla leið... skarð í klettunum stöðvaði för alveg upp á efsta tind... Tindferð 178 Jarlhettur (toppfarar.is)


ree

Skarðið milli Rauðhettu og Jarlhettutagla...


ree

Sérstakur grjótsveppur hér... við skoðuðum hann vel... þetta móberg er náttúrulega alger snilld...


ree

Komin í hjarta Jarlhettna þar sem hver tindurinn af öðrum blasti við... okkar tindar hægra megin efst... Lambhúshetta nær og svo Kirkjuhetta hægra megin fjær...


ree

Rauðhetta gnæfir yfir þessum hluta svæðisins...


ree

Það var engin spurning að taka hópmynd af henni hér...


Ingunn, Örn, Kolbeinn, Maggi, Johan, Sighvatur, Steinar R., Inga, Sigríður Arna og Agnar en Bára tók mynd og Batman var hundur dagsins...


ree

Hvílík formfegurð...


ree

Kambhetta að kíkja hér milli fjalla... Lambhúshetta hægra megin en hún er mjög skemmtileg og leynir á sér...


ree

Gróðurinn sem varð á vegi okkar fékk alla okkar virðingu... hrjóstrugt og hrátt landslag... hér höfum við aldrei heyrt í fuglum... aldrei séð sauðfé... lítill gróður... sandur, grjót, jökull og gruggugt vatn ræður hér ríkjum... en talandi um það í ferðinni að við hefðum aldrei heyrt í fuglum á þessu svæði... þá sáum við svo rjúpur í bakaleiðinni upp grjótkaflann að Skálpanesi...


ree

Við gengum um ólíkt landslag og ólíkan jarðveg...


ree

Kirkjuhetta framundan...


ree

Hér er hægt að gleyma sér við myndatökur og upplifun endalaust...


ree

Tvær fyrstu Jarlhettur dagsins... Strútshetta og Kirkjuhetta...


ree

Innsta Jarlhetta að reyna að hrista af sér þokuna... en hún náði því aldrei þennan dag því miður....


ree

Agnar fann ... hvað var þetta aftur ?


ree

Vestari tindaröð Jarlhettna... og brátt er enn vestari röð að birtast ef marka má þær sem við gengum á við jökulinn síðar um daginn...


ree

Austari tindaröðin með Kambhettu, Vatnahettum og Innstu Jarlhettu (í hvarfi) vinstra megin... og okkar tindar hægra megin... fjær hægra megin eru svo Krúnuhetta, Konungshetta og Stóra Jarlhetta en síðarnefnda sést samt ekki á þessari mynd...


ree

Strútshetta og Kirkjuhetta... við ætluðum að byrja á þeirri síðarnefndu...


ree

Furðuheimar Jarlhettnanna eru ólýsanlegir... þetta er eins og að koma inn í annan heim... heim hopandi jökuls þar sem grjótið byrjar... og gróður og dýralíf kemur svo síðar...


ree

Litir og form af öllum mögulegum stærðum og gerðum... eins og heill heimur í hverju grjóti... það er hægt að fara sérstaka grjótljósmyndaferð í Jarlhettur og koma til baka með einstakst safn sem myndi sóma sér vel á listasýningu...


ree

Þokan lék sitt hlutverk... ekki hér í fyrsta sinn með þokuna að læðast um þó okkur finnist í minningunni alltaf hafa verið sól og blíða í öllum göngunum...


ree

Kirkjuhetta var fyrsti tindurinn af fjórum þennan dag...


ree

Jökulvatnið við Vatnahettur varið að koma í ljós...


ree

Jökulsporðarnir farnir að sjást... við vissum það ekki þarna að við ættum eftir að ganga á þennan tind sem hér stingst upp úr jökllinum við miðja mynd... en viðenduðum á að nefna hana Jökulhettu og þá sem við gengum á stuttu áðr og er út af mynd Sporðhettu þar sem hún liggur eins og sporður inn með jöklinum...


ree

Kambhetta og félagar...


ree

Skarðið við tindinn að koma í ljós... sem studdi vel við sögusagnirnar okkar sem gengum þarna upp árið 2019...


ree

Nestispása við rætur Kirkjuhettu...


ree

Lagt í hann... Innsta Jarlhetta vinstra megin... Rauðhetta með skýjahulu í efsta tind og loks Lambhúshetta hægra megin...


ree

Kambhetta og Vatnahettur...


ree

Brekkur Kirkjuhettu voru greiðfærar til að byrja með þó brattinn væri þó nokkur strax í byrjun...


ree

Litið til baka...


ree

Krefjandi að fóta sig í lausgrýti ofan á móberginu... þessi fjöll eru ekki auðveld viðfangs...


ree

Kambhetta og félagar... þær stálu senunni oft þennan dag...


ree

Strútshetta svo sunnan bíðandi róleg eftir okkur...


ree

Kambhetta...


ree

Komin að klettunum... sem fyrr er lítil sem ekkert gengið á þessa tinda í Jarlhettum... nema á Stóru Jarlhettu og svo Stöku þeir sem nenna að leggja smá lykkju á leið sína á þá Stóru og svo hafa einhverjir gengið á Stöku Jarlhettu sem er hæst og með þeim nyrstu en þó hún sé hæst er hún líklega mun minna gengin en sú Stóra sem er án efa lang vinsælust... lítið er gengið á aðrar Jarlhettur og við skiljum ekkert í því... þær kölluðu ákveðið á mann í fyrstu Jarlhettugöngu okkar og þá strax ákváðum við, árið 2011 að ganga á alla þessa tinda ef þeir leyfði... hvað annað ?


ree

Hér tók málið að vandast og verkefni Arnarins var að finna góða leið hér upp... hann þreifaði fyrir sér á fleiri en einum stað...


ree

Neibb... hér er ekki fært upp...


ree

Snúið við og reynt að finna aðra leið...


ree

Þetta hlýtur að vera fært... við spáðum öll í þetta sem er það skemmtilegasta við svona könnunarleiðangra...


ree

Við sáum nokkra fýsilega staði til uppgöngu og reyndum að velja þann vænlegasta...


ree

Hér upp á milli klettanna... það hlyti að vera fært...


ree

Örn, Maggi og Agnar voru fljótir upp en þessi rauf var krefjandi og brattinn var mikill ofar...


ree

Við hin reyndum að finna leiðir og Kolbeinn of félagar efst vinstra megin fóru í raufarnar þar og út eftir í von um að opnaðist þar en svo var ekki...


ree

Mynd tekin ofan við raufina... hér var brattinn orðinn mikill og syllurnar hölluðu allar niður á við sem var of mikil slysahætta að mati Arnarins og efst var of hár veggur til að koma öllum hópnum upp um... svo hann sneri við...


ree

Maggi og Agnar reyndu fyrir sér ofar og hefði verið mjög gaman ef þeir hefðu náð upp á tindinn en þeir komust ekki þrátt fyrir einbeittan vilja til þess... vel gert hjá þeim... þeir hefðu átt skilið að komast þar sem þeir þrjóskuðust við...


ree

Við játuðum okkur sigruð... og með vangaveltur um að "við hefðum örugglega komist upp þarna hægra megin"... lækkuðum við okkur og ákváðum að við myndum finna færa leið þarna upp síðar...


ree

Nyrðri hópurinn sem reyndi að sjá mögulega leið upp þeim megin...


ree

Niðurleiðin var krefjandi gegnum lausagrjótið... og við eltum svo hundasporin neðar...


ree

Mergjað ævintýri og einhvern veginn svo gaman þó snúa þyrfti við...


ree

Strútshetta var næst... á hana gengum við árið 2013 í engum vandræðum...


ree

Litirnir... formin... fegurðin... það er hægt að gleyma sér í smáa samhengi landslagsins við Jarlhettur ekkert síður en stóra samhengi móbergstindanna þarna...


ree

Litið til baka...


ree

Skarðið milli Kirkjuhettu og Strútshettu...


ree

Kambshetta með skarðið sitt...


ree

Aftur fann Kolbeinn merkilegan hlut úr heimi manna...


ree

veðurmælingartæki sem skotið er á loft á hverjum degi af Veðurstofunni til að mæla veður... man ekki hvað þetta heitir...


ree

Brekkan upp á Strútshettu...


ree

Nú sáum við suðurhlið Kirkjuhettu... jæja, allt í lagi... hún er ekki fær upp hérna megin... en sjáið þið aflíðandi hallann vinstra megin.... hún er kannski fær þeim megin veltum við fyrir okkur...


ree

Litið til baka... jökulvötnin hverfandi og botninn á vötnum sem einu sinni voru til blasa við allt hér...


ree

Kambhetta og Vatnahettur...


ree

Fínasta leið hér upp og mun auðveldari en á Kirkjuhettu...


ree

Rauðhetta og Lambhúshetta nær... Bláfell á Kili í skýjunum fjærst...


ree

Krefjandi jarðvegur á uppleið eins og á Kirkjuhettu...


ree

Jökulvatnið sem umlykur Kirkjuhettu og lúrir við seinni Jarlhetturnar sem rísa þarna undan jöklinum innst...


ree

Skemmtilegt klöngur í móberginu sem líka getur gefið gott hald...


ree

Örn tekur mynd til baka með hópinn að koma upp hrygginn...


ree

ree

Fínasta leið...


ree

Lónið ofar... svo fallegt...


ree

Klettabeltin í hryggnum sem liggur frá Strútshettu yfir á Sporðhettu...


ree

Hryggurinn upp á Strútshettu...


ree

Litið til baka með Kirkjuhettu í baksýn... Innstu Jarlhettu fjær í skýjunum... Jökulhettu vinstra megin... Rauðhettu hægra megin í skýjunum og Lambhúshettu lengst til hægri...

ree

Sporðhetta við jökulinn ofarlega vinstra megin... Jökulhetta handan við jökulsporðinn og Kirkjuhetta og Innsta Jarlhetta hægra megin...


ree

Þessi klettur virkar eins og manneskja þegar maður er staddur neðar og horfir upp... við upplifðum þetta alveg eins árið 2014... Í konfektkassa um Jarlhettur þar (toppfarar.is)


ree

Litið til baka...


ree

Snillingar þessir félagar... mikið erum við lánsöm með klúbbfélaga...


ree

Síðasti kaflinn upp...


ree

Litið til baka...


ree

Vatnahettur og nú sést í Stöku Jarlhettu þarna neðar á sléttunum...


ree

Hópurinn kominn upp...


ree

Komin í 891 m hæð á efsta tindi Strútshettu... Krúnuhetta, Konungshetta og svo Stóra Jarlhetta koma í einni röð þarna vinstra megin...


ree

Jökullinn mikið hopað á þessu svæði frá því síðast...


ree

Mynd frá 13. september 2014...


ree

Mynd frá 13. september 2014...


ree

Lítill jökull eftir á þessu svæði...


ree

Útsýnnið 2023...


ree

Sporðhetta og Jökulhetta að byrja að koma undan jöklinum 13. september 2014...


ree

Hópmyndin frá árinu 2014 til gaman... Í konfektkassa um Jarlhettur þar (toppfarar.is)


ree

Jarlhettutöglin við norðurenda lónsins við Kambhettu og félaga... Bláfell á Kili í skýjunum...


ree

Við nutum útsýnisins...


ree

Hópmynd... grátlegt að það skyldu ekki vera fleiri...


Maggi, Inga, Ingunn, Sighvatur, Örn, Sigríður Arna, Batman, Kolbeinn, Steinar R., Agnar og Johan og Bára tók mynd...


ree

Líka tekin mynd í þessa átt af fjöllunum sem biðu okkar... Sporðhetta og Jökulhetta...


ree

Jæja... niður og í átt að jöklinum...


ree

Allt þurrt hér og skrítið að sjá... við mundum ekki hvernig þetta leit út síðast en fundumm að það var ekki svona... það vantaði meiri jökul...


ree

Litið til baka...


ree

Áður þarna handan við klettana í skjóli... hér var nefnilega talsverð köld gjóla...


ree

Fínasti nestisstaður...


ree

Gott að spjalla og spá í hlutina saman...


ree

Útsýnið til Krúnuhettu og svo tekur líklega Stóra Jarlhetta við og Konungshetta sést ekki... fjær eru svo fjöllin við Langjökul að sunnan og við Laugarvatn...


ree

Jökullinn uppi á fjallsásunum...


ree

Áfram var haldið eftir næringu...


ree

Greiðfært og við strunsuðum þetta...


ree

Mjög fallegur kafli ef litið var niður á hægri hönd...


ree

Kirkjuhetta umlukin lóninu... væri gaman að ganga meðfram þessu lóni einn daginn...


ree

ree

ree

Gaman að spá í landslagið...


ree

Nú sást Rauðhetta... eins og hún er tignarleg... þá roðnar hún í samanburði við Innstu Jarlhettu...


ree

Jökulhetta hér... sem við ætluðum ekki að ganga á... en enduðum á því fyrir hvatningu frá Sighvati... Innsta Jarlhetta í skýjunum allan daginn... eins og hún er tignarleg og hefði skreytt gönguna og myndirnar mikið...


ree

Sporðhetta framundan...


ree

Vínrauð sandströnd... hvar sér maður svoleiðis eiginlega ?


ree

Sérkennilegur rauður litur í landslaginu... minnti á Heklu... ferskt grjót að líta dagsins ljós...


ree

Jökultjarnir og ís undir sandinum...


ree

Magnað !


ree

... og við fengum að ganga hér niður... langt í frá sjálfgefið fannst manni... maður var fullur lotningar... slóðir sem fáir ef nokkrir hafa komið...


ree

Við gerðum okkur grein fyrir því að þetta væru forréttindi...


ree

Sporðhetta og Jökulhetta... fyrst kölluðum við fyrri tindinn Jökulhettu af því það var nafnið sem við höfum í huga á tindinn sem okkur grunaði að væri að koma þarna undan jökli...


ree

Ísinn...


ree

Rauða bergið...


ree

Hryggurinn að Sporðhettu... hún fékk það nafn því hún liggur við jökulsporð og rennur eins og sporður undan jöklinum...


ree

Skemmtileg brölt í grófu grjóti til að komast að henni...


ree

Litirnir hér voru aðeins öðruvísi...


ree

Litið til baka...


ree

Sporðhetta framundan...


ree

Fínasta leið upp hrygginn...


ree

Sanddrýlin við jökulinn...


ree

Lambhúshetta og Kirkjuhetta og Kambshetta...


ree

Rauði liturinn.... grá bergið... brúna mölin og frosinn pollur...


ree

Þornaður lækjarfarvegur að hluta...


ree

Sanddrýlin...


ree

Sporðhetta leyndi á sér...


ree

Meira landslag en áhorfðist úr fjarlægð...


ree

Litið til baka...


ree

Lambhúshetta, Kirkjuhetta með einkennandi línu þar sem bergið breytist og loks Kambhetta... með vínrauðu sandströndinni...


ree

Frábær leið... hrunið úr hlíðinni vinstra megin...


ree

Sporðhetta mældist 760 m há...


ree

Jökulhetta hægra megin... hún fékk það nafn því okkur fannst hún vera svo mikið í jöklinum... og við veltum vöngum yfir nafni á þessa hér... og þjálfari endaði á að finna Sporðhettunafnið á sunnudeginum, daginn eftir gönguna...


ree

Jökullinn hér liggjandi að Sporðhettu...


ree

Við gáfum okkur góðan tíma...

+

ree

Skriðjökullinn hér komandi niður.... en árið 2014 lá hann út í lónið... og við héldum að við yrðum að snúa við af þessum tindi til baka þegar við bjuggum til ferðina... við gerðum ekki ráð fyrir að komast hér yfir hvorki á jökli né á sandi...


ree

Sjá hér myndina frá 2014 þar sem jökullinn liggur út í lónið... ótrúlegt að sjá...


ree

Jökullinn skríðandi niður...


ree

Litið til baka...


ree

Mjög gaman að spá og spekúlera...


ree

Dýrðin... Lambhúshetta, Kirkjuhetta, Kambshetta og Strútshetta "frá jöklinum"...


ree

Sporðurinn á Sporðhettu alla leið að Strútshettu...


ree

ree

ree

Sanddrýli að koma upp...


ree

Sprungur og svelgir og hellar í jöklinum...


ree

ree

ree

Niður af Sporðhettu...


ree

Hey... eina hópmynd hér af því einn daginn verður þessi jökull farinn...


ree

Mögnuð leið hér niður á jökulinn...


ree

Litið til baka...


ree

Litirnir...


ree

Bergið...


ree

ree

Hundurinn Batman fór beint úr á jökulinn og hikaði aldrei... og við einhvern veginn eltum hann...


ree

Hann fór heillangt upp eftir...


ree

... og við eltum...


ree

Litið til baka... magnað hvernig jökullinn lá upp við...


ree

Við tók töfraheimur jökulsins þar sem við tókum botnlausar myndir og hver og einn gleymdi sér en hér hefðum við getað verið tímunum saman að upplifa og mynda og anda og horfa...


ree

Sprunga...


ree

Var þetta öruggt... það var við frostmark svo við töldum það... en fórum varlega...


ree

Svelgir og holur...


ree

Botnlaus heimur fegurðar og uppgötvunar...


ree

Jökulröndin...


ree

Hér dropaði stöðugt úr...


ree

Bara hér hefði verið hægt að vera lengi...


ree

ree

Hjarta...


ree

Rennandi vatn undir...


ree

Kíkt undir jökulhelluna...


ree

Þjálfari tók myndband af þessu sem var einstakt...


ree

Við urðum að halda áfram en það var erfitt...


ree

Sighvatur stakk upp á að fara á hinn tindinn handan við jökulinn og Örn tók vel í það... útúrdúr og viðbót... en þetta lá beinast við og ekkert vit í öðru en nýta ferðina...


ree

... ef við gætum þá einhvern tíma komið okkur fyir jökulinn... :-)


ree

Endalaust myndefni... látum myndirnar tala sínu máli...


ree

ree

ree

ree

ree

ree

ree

ree

ree

ree

ree

ree

ree

ree

ree

ree

ree

ree

Tilraun til að fanga töfra jökulsins á hópmynd...


ree

ree

ree

ree

ree

ree

ree

ree

ree

ree

ree

ree

ree

ree

ree

ree

ree

Loksins komum við okkur af stað yfir á hinn tindinn... en það var erfitt... við hefðum getað verið þarna í klukkutíma í viðbót...


ree

Lítið mál að ganga hér og í raun saklausara en þegar við fórum aðeins út á jökulinn árið 2012 í blálokin á göngunni... það var alveg magnað líka... Tindferð 82 - Nyrsta (toppfarar.is)


ree

Hjarnið...


ree

ree

ree

ree

ree

ree

Komin á Jökulhettu... við veltum öll vöngum yfir nafni á þessar Jarlhettur ef þær fá að kallast með hinum sem hinar eiginlegu Jarlhettur... og Jökulhetta kom alltaf upp í hugann... en það var nafnið sem átti að vera á hinni... en þessi var meira Jökulhetta...


ree

ree

ree

Kyngimagnað landslag og við vorum svo smá...


ree

Vínrauða ströndin og Sporðhetta þarna niðri...


ree

Inga, Kolbeinn, Maggi, Örn og Steinar R...


ree

Komin upp á Jökulhettu í 815 m hæð... Innsta Jarlhetta í skýjunum handan við skriðjökulstunguna...


ree

Jökullinn var umfangsmikill að sjá héðan...


ree

Sprungurnar láu alveg upp að "fjallinu"...


ree

Jökullinn að Innstu Jarlhettu...


ree

ree

Til Lambhúshettu...


ree

ree

Kirkjuhetta, Strútshetta, Krúnuhetta og Stóra Jarlhetta...


ree

Magnað að vera hér...


ree

Jökullinn alveg upp að Innstu Jarlhettu...


ree

Fjallahundurinn Batman enn að glíma við veikindi sem honum tókst svo að yfirstíga næstu vikurnar...


ree

Niður af Jökulhettu til baka... kringum jökullónið sem var framar öllum vonum...


ree

Við ætluðum ekki að trúa því að þetta hefði fengist úr úr þessari göngu... fjórar Jarlhettur... og þar af þrjár nýjar...


ree

Vínrauða ströndin...


ree

Litil til baka upp Jökulhettu...


ree

Við tók greiðfær leið sem við tókum á strunsinu efrtir langan dag...


ree

Sporðurinn við Innstu Jarlhettu...


ree

Hvílík forréttindi...


ree

Næst verum við að fara á hana og horfa hér yfir og bera saman myndirnar frá 2012...


ree

Síðasta klöngrið niður...


ree

Litið til baka...


ree

Sporðurinn...


ree

Það var kalt í veðri og nýbúið að snjóa á hálendinu fyrir þessa ferð...


ree

Kirkjuhetta... sjá bergið sem liggur ljósara utan í henni... stórmerkilegt... verðum að skoða þetta betur næst...


ree

Krókar og kimar Innstu Jarlhettu...


ree

Jökulhetta þegar litið var til baka...


ree

Gróðurinn eljusami... botnlaus virðing frá okkur...


ree

Kambhetta að nálgast aftur...


ree

Rauðhetta kominn í ljós...


ree

Hvílík leið...


ree

Strútshetta og Kirkjuhetta aftur og nú á leið til baka...


ree

Kambhetta... það var farið að þyngjast verulega yfir og stutt í rigninguna...


ree

Rauðhetta framundan...


ree

Stórkostlegar myndir teknar í þessari ferð eins og öllum Jarlhettuferðunum okkar...


ree

Hvílík fegurð !


ree

Bergið...


ree

Litið til baka...


ree

Hópurinn þéttur upp úr dalnum...


ree

Ljóst grjót rennandi niður af Innstu Jarlhettu...


ree

Framhjá Rauðhettu...


ree

Tignarleg í nálægð...


ree

Litið til baka...


ree

Framhjá töglunum...


ree

Aftur að móbergshnullungunum...


ree

Sandbreiðan að brekkunni síðustu...


ree

Litið til baka...


ree

Rauði liturinn í Rauðhettu um allt...


ree

Hér tók við rigning sem fylgdi okkur alla leið í bílana og jókst sífellt...


ree

Einhverjir fóru í regnföt sem var skynsamleg ákvörðun... þeir sem hikuðu voru orðnir blautir þegar þeir ætluðu að klæða sig í og þá tók því ekki... svo við komum flest rennblaut í bílana eftir þessa göngu...


ree

En það var allt í lagi... við spjölluðum mikið á þessum kafla og skemmtum okkur konunglega...


ree

Litið til baka...


ree

Loksins... sást í bílana... við vorum ólýsanlega fegin... 3ja kílómettra kafli upp þessa brekku í rigningu...


ree

Alls 20,6 km á 8:23 - 8:27 klst. upp í 891 m hæð með alls 874 m hækkun úr 823 m hæð...


ree

Tækin gáfu mismunandi tölur eins og alltaf...


ree

Batman var rennandi blautur og mjög hrakinn... hann átti eflaust ekki góðar tvær stundir hér í bílnum á leið heim... elsku skinnið...


ree

Alls 20,6 km á 8:23 - 8:28 klst. upp í 891 m hæst á Strútshettu með alls 874 m hækkun úr 823 m upphafshæð.


Stórkostleg ferð um slóðir sem mjög fáir ef nokkrir hafa farið um... á glænýja tinda sem eru að koma undan jöklinum... ólýsanleg upplifun...


Næsta Jarlhettuferð verður 2025 um syðri hlutann... nema Örn bjóði upp á aukaferð á Innstu Jarlhettu haustið 2024... það er í sigtinu ef áhugi og veður leyfir...



Myndbandið af ferðinni hér:


Jarlhettuferðirnar okkar allar hér: Jarlhetturnar| Toppfarar (fjallgongur.is)

 
 
 

Comments


bottom of page