top of page
  • Facebook
  • Instagram
  • YouTube
  • Twitter

"Krýsuvíkurtindur", Hetta, Hverafjall og Hattur í töfraveröld Sveifluhálss

Æfing nr. 853 þriðjudaginn 27. maí 2025


Sveifluhálsinn er óþrjótandi auðlind gönguferða og hringurinn þetta kvöld var svipaður og við fórum fyrir nokkrum árum síðan... um miðbik hryggjarins þar sem jarðhitinn er mestur og litadýrðin alveg einstök...


Fyrsti tindur kvöldsins var í raun nafnlaus en við höfum nefnt hann "Krýsuvíkurtind" til aðgreiningar frá öðrum tindum í kring... hér á mynd...


Tindur tvö var svo Hetta sem er nafn á kortum og sérlega smekklegt... sérstaklega með nafninu Hattur sem var steinsnar frá...


Litið til baka yfir á "Krýsuvíkurtind"...


Hetta er brött en vel gróin og einstaklega fallegur staður...


Útsýnið úr hlíðum Hettu til suðvesturs yfir Vigdísarvelli að Krýsuvíkurmælifelli...


Þessa náttúrusmíð höfum við ekki upplifað áður þó oft höfum við verið hér... grónar mosaþembur á Hettu...


Útsýnið ofan af Hettu er einstakt... þessi staður kallaði á hópmynd eins og í síðustu ferð árið 2020...


Grænavatn og Gestsstaðavatn...


Mættir voru alls 13 manns... Arnarvatn þarna niðri vinstra megin og Kleifarvatn hægra megin...


Silla, Sighvatur, Ása, Guðný Ester, Bjjörg, Helgi, Linda, Guðjón, Sigrún Bjarna., Örn, Oddný T. og Hjörtur en Bára tók mynd og Batman, Kolka og Myrra léku á als oddi...

Þarna var hryggurinn sem Agnar skoppaði eftir endilöngum síðast... nú var hópmynd þar... eins og kubbar... minnti á Perú...


Skemmtilegt að klöngast sem mest...


Áfram var haldið og nú í átt að Hverafjalli...


Niður hér þar sem nestispásan var í sól og svo skugga en friðsælu veðri...


Hverafjall... hvílíkir litir...


Þetta er töfralandslag...


Við fórum varlega og reyndum að raska sem minnstu...


Litið til baka til norðurs...


Hattur var svo fjórði tindur dagsins... hér ofan af Hverafjalli...


Hverfjallið er þverhnípt sunnan megin en við höfum látið okkur hafa það en tafsamt er það svo það endaði á að Bára tók nokkra betri leið vestar og norðar en þessi leið er samt svo holl og góð !


Ekkert mál... tekur bara tíma að fara varlega...


Hér nutum við litadýrðarinnar og formfegurðarinnar...


Einstakt !


Litið til baka á Hverafjall af Hatti... en kannski er þetta allt saman Hverafjall samt...


Hryggir í öllum litum á þessu svæði... þessi er bleikur...


Bláu og hvítu hryggirnir...

Dásamlegt stemning í þessari göngu og mjög nærandi að hittast og spjalla um allt milli himins og jarðar... og gleyma sér algerlega... núvitund... hugvíkkun... næring...


Til baka að byggingunni sem er í niðurníðslu... grátlegt alveg...


Alls 5,8 km á 3:07 klst. upp í 396 m hæð með alls 449 m hækkun úr 179 m upphafshæð...


Töfraveröld og ekkert annað ! Takk innilega fyrir okkur elskurnar !

Comments


bottom of page