Latur, Latsfjall og tögl og hagldir í kvöldsólarkyrrð
- Bára Agnes Ketilsdóttir
- Apr 23
- 2 min read
Æfing nr. 848 þriðjudaginn 22. apríl 2025

Nú skoðuðum við höfðann sem rís alveg við Suðurstrandaveg sem heitir Latur og töglin hans sem heita Latstögl á korti… en efsti hluti þessa móbergshryggjar heitir svo Latsfjall og þjálfara fannst drepfyndið að kalla svo hnúkana norðan þess “hagldir” í viðleitni til að minnast þessa orðatiltækis úr bændasamfélaginu að hafa tögl og hagldir eða vera með allt á hreinu eða undir stjórn (heybagginn)… því nú gengum við á alla hnúkana frá upphafi til enda og höfum þar með góða yfirsýn yfir Latsfjall og alla þess hnúka og bungur…
Logn og sólarblíða og himininn svo ægifagur að það var með ólíkindum… fundum gjá sem var lítil útgáfa af Lambafellsgjá og bröltum yfir úfið Ögmundarhraun og virkilega nutum útiverunnar í ljúfu andrúmslofti og sumargleði sem fangaði okkur ein í heiminum þarna…
Alveg dásamlegt kvöld upp á 6,8 km á 2:41 klst. Upp í 156 m hæst með alls 293 m hækkun en við verðum eiginlega að skrá Lat sem sér tind þó þetta sé bara einn brattur klettur… en fagur er hann og fangar alltaf augað þegar ekið er um Suððurstrandaveg… og nú erum við búin að ganga loksins á hann… ekki slæmt kvöldverk á æfingu vikunnar…
Skarðsheiðin endilöng tveimur dögum síðar… við vorum sammála því sem mættum að láta slag standa og grípa góðu veðurspána sem er á sumardaginn fyrsta… úr því það er svo rigning um helgina…
Ljósmyndir úr göngunni hér fyrir neðan og nafnalisti undir hópmyndinni:



































Mættir voru 11 manns: Þorleifur, Örn, Linda, Lilja Rós, Sjöfn Kr., Siggi, Björg, Silla, Þórhildur og Guðný Ester en Bára tók mynd og Batman var eini hundurinn þetta kvöld...












































Gullið töfrakvöld sem var með ólíkindum fagurt... takk innilega fyrir okkur elskur...
Comments