top of page
  • Facebook
  • Instagram
  • YouTube
  • Twitter

Múli og Bakhæðir um Stardal

Æfing nr. 888 þriðjudaginn 5. maí 2026


Ný leið var á dagskrá fyrsta þriðjudag í maí...


... í skítakulda, vindi og smá snjófjúki á kafla...


Farið var upp hæðina sunnan Stardals sem heitir Múli en þaðan var áhugavert útsýni að Leirvogsvatni og Henglinum hér í suðri...


Múli er marghnúkóttur og kemur á óvart... skemmtilegt fjall og létt yfirferðar...


Litið til baka... Mosfell, Stardalshnúkar, Esjan og Móskarðahnúkar í baksýn...


Frábær mæting eins og alla þriðjudaga síðustu mánuði... alls 14 manns... 7


Sjöfn, Siggi, Kolbeinn, Linda, Halldóra Kristins., Þorleifur, Örn, Birgir Martin, Sigríður Lísabet, Gunnar G., Guðjón, Hjörtur og Guðný Ester en Bára tók mynd og Batman var eini hundurinn...


Frá Múla er smá lægð áður en komið er á Bakhæðir sem hér blasa við... "ómerkilegra" gerist það varla... en þetta eru samt hæðir með nafn og því fá þær að standa og verða skráðar eins og önnur fjöll í safninu okkar... Stardalsá að safna til sín kvíslum og leggja af stað niður Stardal vinstra megin á mynd... vegurinn á myndinni er sá sem fer upp á skíðasvæðið í Skálafelli...


Snjóskaflarnir voru nokkrir þetta kvöld... og snjófjúk kom yfir okkur á köflum en annars réð sólin ríkjum í kulda og vindi...


Skálafell í Mosó hér útbreitt... við ætlum að ganga á það næsta sumar...


Litið til baka...


Frá Bakhæðum gengum við niður í Stardal þar sem hann byrjar innst milli fjalla...


Sólin það hátt á lofti að hún skein inn dalinn og yljaði okkur heilmikið...


Niðri í dalnum var meira skjól og hlýrra í kvöldsólinni en ella...


Svo var gengið meðfram Stardalsánni niður eftir alla leið... frábær leið !


Stardalsáin lumar á alls kyns fossum og klettum og smá gljúfri...


Heilmikill snjór á svæðinu ennþá... í byrjun maí...


Sumarið var meira þegar neðar var komið...


Sums staðar ennþá skaflar niður og yfir ána...


Yndislegur kafli og hlýrra og lygnara en fyrr um kvöldið...


Maíkvöldin eru dásamleg... þó oft geti þessi mánuður verið kaldur... eins og í ár... ólíkt 20 gráðunum í 10 daga í fyrra...


Komið er inn á malarveg þegar neðst er komið í dalnum og liggur sá vegur niður að hvíta húsinu...


Litið til baka...


Gljúfur Stardals er mjög fallegt neðst í dalnum...


Við fórum út á þennan tanga...


Fleiri en einn foss hér...


Mjög fallegt svæði... við verðum að koma hér að hausti næst...


Hópmynd í gljúfrinu.... þetta var svo fallegt...


Móskarðahnúkar og Skálafellið í baksýn...


Síðasti kaflinn að hvíta húsinu...


Það er allt í niðurníðslu... tómleiki kom yfir mann við að sjá þetta allt yfirgefið...


Alls 5,9 km á 2:03 klst. upp í 357 m á Múla og 265 m á Bakhæðum með alls 311 m hækkun úr 130 m upphafshæð...


Yndislegt kvöld og mjög falleg leið sem er hér með komin í safnið og verður svo sannarlega endurtekin síðar !

Comments


bottom of page