Óborganleg litaveisla á Háhrygg í Dyrafjöllum
Æfing nr. 901 þriðjudaginn 22. september 2026

Það voru komin sex ár síðan við vorum hér síðast... árið 2020 og svo árið 2015... ótrúlegt... en árleg ganga í fjöllum Hengilsins er nauðsynleg til að næra sálina... því þessar slóðir eru einstakar...

Þetta kvöld fengum við eins og svo oft áður á þessu svæði rysjótt en sólbjart veður í birtu sem undirstrikar vel töfrana í þessum fjöllum...

Hengillinn hér... Vörðuskeggi trónandi í kvöldsólinni... hér er litið til suðurs frá fyrsta kaflanum á leið inn nafnlausan dal milli Háhryggjar og Dyrakambs...

Eins og í hin fyrri skiptin... létum við afvegaleiðast á stígnum of langt... framhjá sjálfum Háhryggnum og þurftum að snúa af stígnum og ganga upp á hrygginn... en það var auðvitað stórgróði því þannig áðum við okkur í meiri hækkun og skemmtilegt brölt á leið sem var annars á stíg að mestu og lauflétt... en það var ekki annað hægt en hlæja að þessu... þegar þjálfarar sáu í gps-forritinu að þeir höfðu í þriðja sinnið farið of langt... sérstaklega fyndið af því í gps-forritinu er líka þeirra eigin könnunarleiðangur frá árinu 2010 sem sýnir vel að úr skarðinu er best að halda sig uppi og ganga þaðan upp á Háhrygg en ekki niður í dalverpið austan við hann eins og við gerðum... í þriðja sinnið...

Þingvallavatn sést hér... og skúraleiðingarnar fangast vel á þessari mynd... það var rigning og sól til skiptis þetta kvöld... en aðallega sól samt...

Fínasta brölt hér upp...

Lausagrjót efst og gott að æfa klöngrið...

Mögnuð birta...

það voru margir mættir og mikið spjallað... en maður hefði getað gleymt sér algerlega í ljósmyndun þetta kvöld... og verið helmingi lengur... en það var reyndar ekki í boði þar sem myrkrið beið handan við hornið...

Hér kom tvöfaldur regnbogi... og í hlýrri haustlitadýrðinni breyttist þessi kvöldganga í algera litaveislu sem gerast vart fegurri á fjöllum...

Mættir voru alls 17 manns... Erik, Gunnar G., Guðjón, Hjörtur, Ása, Einar, Örn, KMolbeinn, Sjöfn Kr., Linda, Birgir Martin, Björg, Silla, Oddný T., Rakel og Sighvatur en Bára tók mynd og Batman, Kolka, Loki og Myrra voru hundar kvöldsins og það voru óvenju mikið hundalæti í þeim...

Háhryggur hér framundan hægra megin... fjær vinstra megin eru Hátindur og Jórutindur sem við höldum mikið upp á... dalurinn hér vinstra megin genginn til baka á stíg... en hann virðist vera nafnlaus sem er miður...

Sést smávegis í Þingvallavatn...

Sterkir litir í haustlitunum og kvöldsólinni...

Háhgryggur mældist 459 m hár...

Þessi ganga var óskaplega ljúf og svo falleg að það var ekki hægt að láta hundalætin trufla okkur...

Hugmynd af litum í riddarapeysu...

Mjúkt brölt eftir öllum hryggnum og niður norðan megin...

Skúraleiðingarnar voru komnar yfir á fjöllin norðan Hrómundartinds... þarna eru margar magnaðar kvöldgöngur og tindferðir að baki...

Sjá vindinn á Þingvallavatni...

Fórum hér niður í dalinn...

Reyndum að finna skjólsælan stað til að fá okkur nesti...

Litadýrðin svo mikil að hún fangaðist ekki nægilega á mynd...

Ekkert skjól niður í dalnum... vindurinn sópaðist niður hann...

Hér ætluðum við að borða... en hér var sópur...

Hvílíkt landslag ! Við fengum okkur smávegis nesti hér við klettana...

Nú var gengið til baka út dalinn til suðurs... á stíg allan tímann...

Himininn slóst við jörðina um athygli og aðdáun yfir litadýrðinni... þetta var alveg ótrúlega fallegt...

Leiðin um þennan dal er mun fegurri til suðurs en norðurs... mælum með að fara í þessa átt... því rafmagnsstaurar og línur menga útsýnið til norðurs...

Já... þetta var lygilegt...

Stígarnir voru stikaðir að hluta og liggja um allt svæðið... yfir skörð milli fjalla og dala... og það var gott að hafa gps-slóðina til viðmiðunar því mjög auðvelt er að afvegaleiðast...

Klettaborgin eykst þegar norðar dregur...

Og bleika kvöldsólin jók enn í áður en hún hvarf með öllu...

Hér væri hægt að staldra lengi við og skoða hellisskútana og klettana...

Síðasti kaflinn...

Sjá klettana vinstra megin... minnti á fjöll erlendis... Josemite þjóðgarðinn... Slóveníu... Alpana...

Já... forvitnilegt að fara þarna og skoða betur...

Þegar komið var upp í skarðið ofan við bílana var sólin farin og farið að rökkva...

Á þessu korti voru ekki einu sinni stígarnir sem við gengum um... og ekkert nafn á dalnum... synd að hafa ekki nafn á þessum töfrastað... nema Sporhelludalir eigi hreinlega við hann ásamt fleirum... eða Dyradalir... svolítið erfitt að átta sig á þessu...

En það verður samt ekki af þessu svæði tekið að skilti, stikur og stígar eru til fyrirmyndar...

Klettarnir gnæfðu yfir okkur og á svona stundum skilur maður vel óttann og tröllasögurnar frá því fyrir rafmagnið...

Bílarnir þarna niðri... við sluppum við myrkrið... sem var dýrmætt því nóg er af því bíðandi eftir okkur næstu mánuði...
Alls 6,0 km á 2:13 klst. upp í 459 m hæð með alls 317 m hækkun úr 360 m upphafshæð...
Það er einfaldlega ólýsanleg gæfa að hafa svigrúm, getu og heilsu til að upplifa jafn litmikla og formfagra kvöldgöngu eins og þessa... verum þakklát númer eitt... #þakklæti





Comments