top of page
  • Facebook
  • Instagram
  • YouTube
  • Twitter

Úlfarsfell í júní

Æfing nr. 854 þriðjudaginn 3. júní 2025


Norðanstormur reið yfir landið í byrjun júní með hvössum vindhviðum og miklum kulda og til viðbótar miklum snjóþunga á norþan heiða og þar sem spáð var slæmu veðri á esjunni þetta kvöld tímdum við ekki að fara Kúpuhrygginn þá og ákváðum að taka Úlfarsfellið í staðinn og geyma Kúpuhrygg í viku...


Það var nú bara ágætis veður á Úlfarsfell þetta kvöld en Esjan var ansi úfin og við hefðum án efa verið í mjög hvössu veðri þar ef við hefðum haldið áætlun...


Sjá storminn leika við Esjuna í fjarska... þarna var úfið og einn sem þjálfarar þekktu og var við Úlfarsfell hafði snúið við af Esjunni og farið á Úlfarsfellið þar sem var mun skaplegra veður...


Mættir voru: Ingunn, Sjöfn Kr., Olli, Örn, Þorleifur, Björg, Sigrún Bjarna, Linda, Silla, Hjörtur, Birgir, Sighvatur og Bára tók mynd og Batman var eini hundurinn...


Það var ennþá ein kúla á jólatrénu hans Kolbeins...


Yndisleg ganga upp á alls 4,6 km á 1:35 klst. upp í 318 m hæð með alls 370 m hækkun úr 54 m upphafsæð...


Kúpuhryggur Esju í næstu viku og það hlýtur að vera gott veður þá ! Ekki það að þetta er búið að vera mjög sólríkt og hlýtt til þessa fyrir utan þetta kuldakast að norðan síðustu daga...

Comments


bottom of page