top of page
  • Facebook
  • Instagram
  • YouTube
  • Twitter

Þóristindur, Dálkur og Hattur á Veiðivatnaleið

5 hours ago
7 min read

Tindferð nr. 368 laugardaginn 19. september 2026


Það var kominn tími á þennan tind...


Þessi gæi... sem stelur senunni þegar keyrt er um Hrauneyjaleið frá Landmannalaugum... hér eftir Frostastaðavatnsgönguna 15. ágúst síðast liðinn...


Mild og kyrrlát veðurspá... og hún rættist... með sólina svoítið að skína í gegnum háskýjaðan himininn...


Þetta skilti var til fyrirmyndar við bílastæðið við Þóristind... íslenskan í fyrsta sæti... og svo enskan... annað er gaaaaaalið... og ótrúlegt að ferðaþjónustuaðilar sjái það ekki sjálfir...


Þóristindur séð frá fyrstu skrefunum frá bílastæðinu... lögðum af stað kl. 10:37... vorum tæpa 2 tíma í Hrauneyjar úr bænum... og 15 mínútur frá Hrauneyjum á malbikuðum og svo sléttum malarvegi inn Veiðivötn að Fellsendavatni...


Það var Gunnari að þakka að við lögðum bílunum á bílastæðinu en ekki úti á kanti fyrr á akstursleiðinni... en þjálfarar höfðu keyrt þarna upp eftir fyrr í sumar og horft á tindinn úr fjalægð og ekki fundið bílastæði... ekki keyrt nægilega langt...


Sóin skein í gegnum skýin... logn... hlýtt... milt...


Þjálfarar nutu góðs af gps-slóðum frá wikiloc sem sýndu að menn fara almennt sunnan megin upp en þeir sem fara norðan megin (brattari leið) notast við kaðla eða vara sérstaklega við að leiðin sé kki fyrir lofthrædda... okkur sýndist leiðin fær á klöngri... en það þarf ekki nema eitt haft til að leiðin sé erfið án stuðnings af hjálpartækjum...


Vatnsfell... stikuð slóðuð leið er þar upp og útsýnið svakalegt... eins og af Þóristindi...


Skýjað yfir efstu tindum á Fjallabakinu... Hekla sást t.d. eingöngu hluta af deginum... en allt skýlaust hjá okkur...


Örn fór fljótlega beinustu leið upp á suðuröxl Þóristinds... og leiðin var grýtt í sandinum...


Fellsendavatn... Krókslón fjær... fjölllin í Dómadal að birtast...


Komin í mosann og hryggur Þóristinds að koma í ljós...


Heyrðu... það er stikuð leið hérna upp... það vissum við ekki... hefðum getað tekið stærri sveig og eltst við hana... en okkar leið var fín... og á wikiloc höfðum við séð að menn fóru jafnvel fyrr upp (eða niður) þá leið sem við komum...


Útsýnið var magnað þegar komið var upp á öxlina... Dálkur blasti dökkur við... og Hattur var enn í hvarfi á bak við hann...


Hryggur Þóristinds hér til suðurs...


Mjög gaman að koma hér upp...


Frábær mæting og sjaldséðir hrafnar eins og Jaana mættu sem var dásamlegt...


Kerlingarfjöll komin með smá snjóföl á sig...


Þórisvatn og Hofsjökull... þarna vorum við í júlí að þvera alndið í 34 km göngu að Svartá... og hér má sjá bílana niðri við veginn hægra megin...


Skyggnið var kristaltært...


Fjöllin til austurs... Veiðivötn þarna innar í landinu... við komum aftur hér og göngum um fjöll Veiðivatna þá...


Komin á stikaða slóðann...


Löðmundur (2017, 2023), Laufdalseggjar (2025), Sauðleysur (2024), Herbjarnarfell (2025), Hrafnabjörg (sem er á dagskrá í október) og Valahnúkar... Búrfell í Þjórsárdal svo flatt hægra megin líklega... nema þetta sé heiðin ofan við Áfangagil en líklega er Búrfellið að fletjast svona út...


Nærmynd af þessum fjöllum hér... Hekla er í skýjunum en sjá má hvítan koll hennar stíga upp úr skýjunum hægra megin NB... nær eru Krókslón og Fellsendavatn enn nær... sjá fallegt landslagið við Krókslón...


Gunnar velti því fyrir sér hovrt þvið værum að sjá Sveinstind við Langasjó í þessari átt... það var vel áætlað... sem þýðir að við vorum þá að horfa á gullfallegu fallstindana sem rísa sunnan við Langasjó... en við erum þar búin með Gjátind, Ljónstind og Hörðubreið fyrir utan sjálfan Sveinstind...


Dálkur... hann var svo næstur í röðinni eftir Þóristind...


Efsti kaflinn á Þóristind var smávegis brölt og klöngur en vel fært...


Mjög skemmtileg aðkoma...


Varlega hér...


Litið til baka...


Síðasti kaflinn...


Þóristindur mældist 836 m hár...


Ekki mikið pláss uppi en hægt að klöngrast um allan tindinn...


Til Veiðivatna og enn lengra til Langasjávar og fjallanna þar...

Tjarni

Vötnin þarna niðri nafnlaus...


Sjá hvernig einu sinni allt svæðið var umlukið vatni...


Til suðurs...


Þórisvatn, Kerlingarfjöll og Hofsjökull... bílarnir okkar þarna niðri við veginn...


Fellsendavatn... hægra megin niðri er hjartalaga tjörn...


Nesti á tindinum og hægt að velja útsýni til allra átta...


Hágöngurnar á Sprengisandi... þarna vorum við mun nær þeim á þveruninni yfir landið í júlí...


Hvítur kollurinn á Heklu að koma upp úr skýjunum...


Mögnuð hópmyndin á Þóristindi:


Mættir voru 20 manns; Ása, Ásdís, Bára, Dina, Einar, Erik, Gulla, Guðný Ester, Guðrún G. gestur, Gunnar G., Hörður, Jaana, María Elísabet, Sighvatur, Sigríður Lísabet, Sigrún Bjarna, Silla, Sjöfn Kr., Stína, Örn og Batman og Myrra voru hundar dagsins...


Brattur tindur...


Niður sömu leið til að byrja með...


Hryggurinn er hluti af Þóristindi í raun...


Dálkur og Hattur biðu rólegir...


Smá brölt...


Í skarðinu beygðum við til austurs...


Magnað hálendislandslag...


Dálkur útbreiddur fyrir framan okkur...


Hópurinn þéttur... sumir fljótir niður og aðrir lengur...


Saklaus var hann Þóristindur frá þessum sjónarhóli...


Það var stuð...


Birtan í þessu háskýjaða veðri var óskaplega falleg...


Áleiðis að Dálki... Þóristindur hér þegar litið var til baka...


Létt söndugt landslag...


Strax komin í útsýni...


Þóristindur...


Nafnlausa vatnið milli Dálks og Þóristinds... synd að hafa ekki nafn á þessu...


Myrra, Batman og Loki... Loki er að sanna sig innan hópsins... það gengur það vel... þolinmæði þrautir vinnur allar...


Komin upp á Dálk... hæsti tindur norðar... H'agöngurnar hér báðar í fjarskanum...


Áleiðis á efsta tind...


Dálkur mældist 697 m hár...


Þóristindur austan megin...


Nyrðri hluti fjallshryggjarins frá Þóristindi...


Magnað útsýnið...


Skyggnir við Skyggnisvatn í Veiðivötnum...


Af veraldarvefnum: "Skyggnir er einn stærsti gígur landsins af svokallaðri Hverfjallagerð (eða öskugígur/sprengigígur). Hann myndaðist í miklu eldgosi á sprungureininni (gjarnan tengt Vatnaöldugosinu í kringum árið 871, sem skildi eftir sig hið þekkta Landnámslag."


Hann er kominn á vinnulistann 2027 eða 2028...

Til baka og niður austan megin að Hatti...


Hattur framundan...



Sjá Hattinn hægra megin... móbergsstapi í enda fjallshryggjarins... líklega stafar nafnið af honum... hefðum átt að skoða hann... ætluðum að fara til suðurs og taka hann á hringleið sem upphaflega var skrifuð upp í gps-tækinu... en sýnin að vötnunum uppi á Hatti afvegaleiddi okkur og breytti leiðarvali þjálfara til norðurs... og þar með misstum við af þessari klettaborg... en það var allt í lagi...


Litið til baka...


Það var heilmikið líf í sandinum... auðninni... hálendið ber vitni um harðgerð og þrautsegju... einhver sterk tilfinning og orkuhleðsla verður við að ganga í þessu umhverfi... áminning um að þrauka og gefast ekki upp...


Áfram létt yfirferð... þetta var létt ganga þó bröltið á Þóristindi væri ágætt...


Tókum fallega sveigju upp á Hatt...


Hattur mældist 665 m hár...


Algert logn... alger friður...


Nestispása hér... og aftur stóð valið um hvaða útsýni maður óskaði sér...


Til suðurs eftir Hatti... sjá klettinn í endanum... Sköflungur sunnar... við vorum næstum því að taka hann með... en ákváðum að bæta ekki 5 km við gönguna...


Þessi vötn toguðu þjálfara til sín og þeir ákváðu að fara til norðurs en ekki suðurs á hringleið á fjöllin við Þóristind...


Tærleikurinn...


Kletturinn sem líklega var hugmyndin að "Hatti"...


Hrafnabjörg kringum Hrafnabjargarvatn er á dagskrá í október... það verður síðasta hálendisferð ársins...


Örn fór á undan að kanna hvort niðurleiðin norðan megin væri fær...


Jú... fært þarna niður um mosaslegna klettana...


Mögnuð birta...


Smávegis klöngur en fínasta leið...


Komin niður á sandana að vötnunum...


Hér afvegaleiddi bílslóði okkur smávegis...


En við tókum fljótt hægri beygju að fyrra vatninu...


Skærgræn gróðurflækja föst í fjörunni...


Vötnin hentuðu hundunum vel...


Gengum meðfram vatninu...


Komum að þessum grjóttexta...


Já... spurning hvað stendur í miðið og niðri...


Fórum upp í skarð milli fjalla... litið hér til norðurs...


Frá skarðinu blasti Þóristindur aftur við og vestara nafnlausa vatnið...


Það var einhvern mildi og mýkt í þessari ferð... hún gaf manni ró sem varaði lengi á eftir...


Glæsileiki Þóristinds farin að sjást aftur...



Löðmundur milli Þóristinds og Dálks...


Litið til baka...


Vatnið til norðurs...


Þóristindur neðri hlutinn...


Fórum í skarðið norðan megin við Þóristind... þar sem menn koma upp þegar gengið er á hann norðan megin...


Litið til baka...


Dálkur...


Magnað formið í sandinum...


Ávali hlutinn á Þóristindi...


Örn sá eldrauðan blett í brekkunni fjær... og ákvaða ð fara og skoða hann... rautt lyng... ótrúlega fallegt...


Alveg í stíl við peysuna hennar Ásu...


Og þá var nú til valið að taka riddarapeysumynd...


Sjöfn, Örn, Ása, Bára, Jaana, Erik og Gulla... Batman hélt að hann ætti að vera með...


Hvílík fegurð... ekta Ísland... fegurð hins smáa engu síður en fegurð hins stóra...


Lengra upp í skarðið til norðurs áður en slóðinn fer svo niður til vesturs...


Úr skarðinu sáum við bílana... frábær hringleið...


Þegar ofar dró sást til efsta hluta Þóristinds...


Nyrðri tindurinn var lítið síðri...


Leiðin þarna efst upp á Þóristind virtist fær án hjálpartækja en ekki fyrir lofthrædda...


Við urðum að taka hópmynd af þessum tindi...


Guðný Ester, Sjöfn Kr., Hörður, Stína, Sigríður ísabet, Sigrún Bjarna., Jaana, Einar, Silla, Ásdís, María Elísabet, Erik, Ása, Guðrún G., Gulla, Sighvatur, Örn, Gunnar G. og Dina... Loki, Myrra og Batman dreifðu sér framan við myndina...


Og þá var ekkert annað eftir en snúa niður á stígnum sem var hér í skarðinu og þennan stutta spöl að bílunum...


Sjá bílana á sandinum við veginn...


Erik fékk þessa peysu gefins... falleg sagan á bak við þá gjöf... við erum lánsöm að hafa Erik innan okkar raða... hann talar ótrúlega góða íslensku og er með sama ævintýrahjartað og við...


Örn lítur til baka...


Þóristindur ofan við okkur.....


Stutt í bílana...


Litið til baka... skarðið þarna og nyrðri hluti fjallshryggjar Þóristinds...


Lending um kaffileytið í bílana... dásamlegt...


Þurftum að leggja bílunum bak við hina til að nýta plássið...


Alls 10,8 km á 5:11 klst. upp í 836 m á Þóristindi, 697 m á Dálki og 665 m á Hatti með alls 673 m hækkun úr 568 m upphafshæð... - látum stóra gps-tækið ráða en ekki úrin...


Þungbúið keyrandi heim og við keyrðum inn í rigninguna... enn einu sinni eigum við magnaðan dag á fjöllum og fáum á okkur rigninguna nánast um leið og sest er inn í bílinnn... svona er þetta búið að vera öll þessi ár í raun... ótrúlegt...


Vaðölduvirkjun...


Hekla var í skýjunum nánast alfarið þennan dag... það var mun þyngra yfir Fjallabakinu en var fyrr um daginn... við sluppum aldeilis vel með veður...




Takk innilega fyrir þessa ljúfu en um leið gææsilegu göngu... ef við erum heppin... þá náum við Syðri Jarlhettum fyrir veturinn... og já, það tókst ! Magnað haustið 2026 !

Comments


bottom of page