top of page
  • Facebook
  • Instagram
  • YouTube
  • Twitter

Bláfjöll um Bláfjallakvísl að Mýrdalsjökli á fjóra ólíka tinda

2 minutes ago
8 min read

Tindferð 368 laugardaginn 5. september 2026


Á hverju ári keyrum við upp Emstruleið og bætum við nýjum fjöllum sem skreyta Laugavegsgönguleiðina...


Tindar sem við höfum gengið á áður skreyta alla akstursleiðina... Tindfjallajökull hér... ljóst líparít kemur undan snjónum...


Flugvél á miðjum sandinum við Hattfell… það hefur ekki gerst áður… köstuðum á þá kveðju og þeir voru í góðum málum…


Jebb… aksturinn tók 3 klst… með stoppi á Hvolsvelli á leiðinni… sami aksturstími og í Landmannalaugar upp á mínútu… sérstakt…


Nóg af jeppum og engir jepplingar eins og í fyrra… dauðfegin þar sem leiðin er krefjandi en hún er samt fær jepplingum með herkjum…


Stórkonufell, Smáfjöll, Smáfjallarani… þarna vorum við í fyrra og hitteðfyrra… og þetta var bara byrjunin á sýn á fjöllin þarna í kring með minningum uppi á hverju einasta þeirra…


Bílum lagt við Bláfjallakvísl… Hvanngilshnausar handan árinnar… við eigum þá eftir…


Lagt af stað kl. 11:17… eftir akstur úr bænum kl. 8:00…


Upp með Bláfjallakvísl til að byrja með...


Stóra súla reis ofan við bílana… þar vorum við árið 2022…


Fljótlega tókum við beina stefnu á Bláfjöllin og fylgdum Bláfjallakvísl ekki lengur alveg beint…


Bláfjöllin komin í ljós... við fórum upp á þessa tvo hæstu sem hér sjást...


Smáfjallarani... þarna vorum við í fyrra...


Græni liturinn… svarti… blái… og hvíti… áttu sviðið þennan dag…


Þornaðir árfarvegir kvísluðum reglulega um göngulandið…


Græni liturinn sterkur og skær… tærleiki og skærir litir einkenndu daginn…


Þegar við keyrðum upp eftir var skýjað yfir fjöllunum og það var þoka kvöldið og nóttina áður… en eins og svo oft áður á þessu svæði… þá opnaðist allt við að fá sólina á loft…


Hér komum við að þornuðum árfarvegi… ekki dropi hér… en í bakaleiðinni uppgötvuðum við að hér um var farið að renna vatn úr Mýrdalsjökli…


Greinilega stutt síðan hér rann vatn...


Torfajökull að birtast...


Oddný Sif skráði sig í klúbbinn eftir að hafa mætt í þrjár magnðaðar tindferðir í röð...

Bláfjöll... hæsti vinstra megin... fórum á alla þessa þrjá og einn til sem var mun nær jöklinum...


Smáfjöll, Stórkonufell að hluta og Smáfjallarani…


Torfajökull kominn undan skýjunum... þarna vorum við árið 2021...


Kaldaklofsfjöll... þurfum að ganga á þau staka ferð einn daginn...


Þarna vorum við síðustu helgi... í Ljósártungum að skoða Ljósárfossana...


Stórasúla...


Bláfjöll framundan... hæsti tindur þarna vinstra megin...


Tveir seinni tindar dagsins hér...


Tindur 1... hæstur Bláfjalla...


Tindur 4...


Tindur 3...


Stóra súla.... Laufafell... Hvanngilshnausar... Kaldaklofsfjöll...


Tókum nesti hér við hraunið...


Jæja... lagt af stað aftur...


Fórum upp í skarðið milli fjalla...


Skemmtileg leið...


Litið til baka...


Allir sprækir í þessari göngu... gott að fá eina frekar létta göngu eftir það sem á undan var gengið...


Hér týndist Birgir Martin... en þjálfari fór til baka og fann hann... hann tafðist eftir nestið og fór svo upp í rangt skarð í leit að hópnum...


Óþægilegt að týna hópnum og gott að hitta alla aftur...


Mýrdalsjökull kom hér í ljós...


Það var freistandi að eltast við alla tinda Bláfjalla… en þjálfarar vildu halda áætlun með vegalengd og tímalengd… og héldu sig við hæsta hlutann hérna megin… þar sem aðrir þrír tindar voru enn eftir og einn við jökulinn… og hér var ennþá ætlunin að ganga alveg að jöklinum… og því var ekki tími til að fara á lægri tvo tindana við þennan hærri hér… og sem betur fer slepptum við þeim því það lengdist úr þessum degi eins og svo oft áður…


Þessir tveir sem við slepptum...


Mjög flott leið hér upp...


Stórkonufell og Smáfjöll að koma í ljós ásamt Hattfelli ofl…


Stórasúla og Laufafell og Ljósárfjöll o.m.fl…


Það var lengra í Mýrdalsjökul en við áttum von  á… enduðum á að fara á fellið lengst til vinstri hér… það hæsta næst jöklinum fyrir utan söndugu nýju tindana sem eru að brjótast undan ísnum…


Klöngruðumst upp hér...


Stutt í hæsta tind...


Ákváðum að fara fyrst að suðurbrúnum áður en stefnan var tekin á hæsta tind á þessu fjalli…


Strútur og Mælifell á Mælifellssandi að birtast hér...


Blátt keilulaga vatn birtist okkur hér… það var á korti og þjálfarar sáu fyrir sér að við myndum ganga að því á okkar gönguleið… fegurð þess kom á óvart… túrkísblár litur…


Nafnlaust því  miður… það má færa rök fyrir því að það sé skömm að því… kannski verður það tímabundið… en okkur grunar ekki… það þyrfti að fá nafn… og þegar þjálfari sett mynd af því á veraldarvefinn á opnu Fjallgöngur.is & Toppfarar.is fb-síðuna… þá nefndi einn sem við þekkjum ekki að vatnið hefði verið kallað “Keiluvatn” og er það réttnefni… keilulaga var það… en gárungar í göngunni sem höfðu ekki hugmynd af því nafni nefndu “Skráargat” sem hefði verið góð hugmynd en Keiluvatn er það !


Eftir fegurð Keiluvatns... tókum við hæsta tind þessa fjalls Bláfjalla... þetta fjall mældist 803 m hátt... og var hæst allra á svæðinu...


Fallegasta Bláfjallið… með fullri virðingu fyrir þeim hærri og glæsilegri… þessi græni slikja yfir fellinu töfraði okkur upp úr skónum… það endaði sem þriðji tindur dagsins af fjórum…


Andakt...


Klöngur hér upp á efsta tind...


Tært útsýni... enn einu sinni á þessu svæði.. haustið er besti tíminn...


Stórkostlegt... það var eina rétta orðið...


Út á yztu nöf... tindur tvö hér hægra megin svo eftir þennan...


Smáfjöll, Stórkonufell, Hattfell, Smáfjallarani, Illasúla í hvarfi, Stóra Grænafjall…


Stórasúla og Laufafell...


Hæsti tindur Bláfjalla næst... Kaldaklofsfjöll í skýjunum fjærst hægra megin...


Torfajökull og okkar tindur þrjú hinn fagri...


Hvílík fegurð...


Með tindi tvö og Keiluvatni ásamt auðvitað Mýrdalsjökli...


Fyrri hópmynd dagsins... alls 21 manns...


Bratt brölt niður... svipaða leið og af Smáfjallarana í fyrra...


Best í heimi… að kanna nýjar slóðir… og vita ekki hvað bíður okkar… hvernig landslagið lítur út… né hvort við komumst þá leið sem við ætluðum…


Fjall 2 af 4 þennan dag þarna með skaflinn í sér nær jöklinum...


Bratt og hollt...


Líf í grjótinu...


Tókum okkur góðan tíma hér niður..,.


Fegurð hins smáa...


Loksins komin niður... og létt framundan...


Örkuðum að næsta Bláfjalli...


Ávalt og létt uppgöngu...


Litið til baka á fyrsta tindinn af fjórum… annar af tveimur alvöru ”tindum” í Bláfjöllum… en það má vel færa rök fyrir öðru !


Gott fyrir hundana að fá vatn…


Gegnum skaflana hér í hörðum jarðvegi en allt vel fært...


Keiluvatn þarna við fyrsta tindinn sem er hægra megin... nú sást til Mófellshnausa og Stóra Mófells...


Eltumst við hæsta punkt...


Fórum að suðurbrúnum...


Hér ákváðum við að vera ekki að eltast við að snerta jökulinn… búin með 9 km og eftir að ganga á tvo tinda og fara alla leið til baka… enda enginn að sjá jökul í fyrsta sinn…


Ný fjöll að birtast...


Strútur og Mælifell...


Vinkonurnar Oddný T., Gulla og Ása...


Stórkostlegt útsýni...


Hæsti tindur Bláfjalla ásamt Keiluvatni... Stóra súla hægra megin...


Tókum nú stefnuna á næstu tvo tinda Bláfjalla í bakaleið fallegan hring um þessi fjöll…


Þetta annað Bláfjall af fjórum mældist 746 m hátt...

Tindur 1, 3 og 4 hér framundan frá tindi 2…


Mjög skorið og giljótt landslag...


Skjótfarið yfir sandinn...


Litið til baka...


Þjálfarar ákváðu að taka gíginn rauða sem var milli okkar og þess næst hæsta sem átti að vera síðasti tindur dagsins… og höfðu ekki hugmynd um að þar með værum við að ganga á fallegasta fjallið… þetta með grænu slikjunni sem skreytt hafði gönguna fyrr um daginn…


Hæsta Bláfjallið... þarna vorum við fyrr um daginn...


Sjá grænu slikjuna góðu sem við höfðum dáðst svo mikið að allan daginn…  á fjallinu sem við vorum stödd á… magnað !


Smáfjallarani… Stóra súla… næst hæsti tindur Bláfjalla…


Þessi mældist 713 m hár...


Hvílík fegurð !


Nú var tekin stefna á síðasta tind dagsins...


Sérkennileg birta var á þessum kafla dagsins… það þyngdi yfir Mýrdalsjökli og tók af okkur sólina á kafla… en svo birti aftur til…


Stórkonufell og Smáfjallarani... Stóra Grænafjall þarna lengst til hægri...


Þjálfarar veltu fyrir sér að fara beint upp á mosagróna tindinn eða taka hrygginn þar sem lausamöl ofan á móbergi er ekki skemmtilegt gönguland… við enduðum á að taka miðja vegu á milli… en hefðum betur farið beint upp á mosahöfuðið því þar var algert logn… brúnalogn… sem við samt nutum svo vel eftir nestið… sem var tekið í skarðinu í smá gjólu… erfitt að veðja á brúnalogn…


Upp í skarðið...


Hæsti tindur Bláfjalla...


Fórum austan megin við hrygginn...


Nesti hér í kyngimögnuðu útsýni...


Stutt í tindinn eftir nestið...


Þetta var eins og að koma inn í stofu… beint í dúnmjúkan sófa… alveg magnaður tindur !


Og útsýnið... engin orð lýsa því...


Tindur 3, 2 og 1...


Örn valdi strax niðurleið um geilina beint af tindinum...


En það var svo gott veður þarna uppi… og mosinn svo mjúkur… og algert logn… og sólin komin aftur… að það var ekki annað hægt en leggjast í mosann og njóta í nokkrar mínútur…


Við skildum ekki hvernig lækir gátu runnið beggja vegna fjallanna sem við vorum stödd á en aldrei höfðum við stiklað né vaðað yfir læki á innleið… hvernig mátti það vera ? Þetta var ráðgáta… og það var eins og lækirnir stöðvuðust og enduðu á miðjum sandinum… við ákváðum að skoða þetta betur í bakaleiðinni…


Hvernig gátum við komist á Bláfjöll án þess að hafa vaðið þennan læk sem þarna sást renna ? Það passaði ekki.


Hópmynd dagsins:


Efst: Björg, Hjörtur, Guðný Ester, Sighvatur, Áslaug B., Birgir Martin, Inga.


Miðjan: Berta, Fanney, Sjöfn Kr., Helgi, Oddný T.,


Fremst: Oddný T., Guðrún Geirsdóttir gestur, María Elísabet, Silla, Gulla, Ása og Örn. Kolka er þarna í miðjum hópnum... en Batman og Myrra á þvælingi og Bára tók mynd...


Þá var það niðurleiðin um geilina...


Tók smá tíma… sumir enga stund hér niður… aðrir fóru varlega… en vel gekk þetta og var betra en áhorfðist ofan frá…


Litið til baka...


Gekk vel hér niður...


Búin með fjögur Bláfjöll... akr um sandinn til baka framundan... og könnun á þessum lækjum sem áttu ekki að vera þarna...


Tókum því ekki beina stefnu í bílana... eltumst við slóðina okkar upp eftir um morguninn...


... og komum að leiðinni fyfrr um daginnn... með rennandi vatni þar sem þá var þurrt...


Ótrúlegt...


Sporin frá morgninum...


Hiti dagsins greinilega komið þessu af stað...


Við trúðum þessu ekki fyrr en við sáum sporin...


Við ákváðum að elta vatnið því það var eins og það endaði á sandi og vatnslausum kafla þegar við horfðum á sprænurnar ofan af fjórða tindinum…


En fljótlega vildum við bara fara yfir sprænuna og taka stefnuna á bílana… langt liðið á daginn og sprænurnar fóru ekki beinustu leið…


Önnur hér...


Við mundum ekki eftir því að hafa farið yfir þessa um morguninn en hljótum að hafa gert það...


Fallegur staður...


Bláfjöllin að fjarlægjast...


Strákamynd... og Myrraa sló eign sinni á þá !


Það var drjúgt til baka… og við vorum hálftíma lengur en við ætluðum… þrjár tafir í göngunni en allir slakir og voru að njóta í botn… það skipti engu hvað klukkan var…


Bílarnir voru við Stórusúlu...


Þarna beið fjölskyldan hennar Chri en þau gistu þarna nóttina á undan…


Lending kl. 17:43...


Alls 16,3 km á 6:27 klst. upp í 803 m hæð hæst með alls 656 m hækkun úr 572 m upphafshæð… 2 km lengri vegalengd og 30 mín lengri göngutími… virkilega vel af sér vikið !


Teygjur, nesti, slökun, viðrun, þakklæti, knús...


Það er auðvelt að fá far… erfiðara að vera bílstjórinn… þó sumir vilja alltaf keyra… 3 klst. Akstur x 2 + gangan… mikils virði að það eru aftur fleiri sem eiga jeppa í klúbbnum en á tímabili… minnir á gömlu góðu dagana… þökk sé þeim sem eiga jeppa… verða svona ferðir að veruleika…


Hattfell...


Hálendið kvatt... Hattfell, Stórkonufell, Stóra Mófell… og félagar… allt komið í safnið nema Útigönguhöfðar og hluti Mófellshnausa og Litla Mófell… Strútur og Mælifell líka eftir… Hvanngilshnausar… Súlutindar… en á næsta ári… ætlum við hringleið kringum Álftavatn á Brattháls og Torfatinda að Torfahlaupi… það verður sama veislan og var þennan dag… eins og alla hina á þessu svæði… gæfan er okkar… svo lengi sem við höfum heilsu of líkamlegt form til þess arna…


Rjúpnafell og félagar… við erum lengi búin að hafa augastað á fjöllunum innst við jökulinn… vonandi verða þjálfarar komnir á jeppa næsta sumar… þá komast árlegu Þórsmerkurferðirnar aftur á…


Búin með Rjúpnafell... hin bíða spennt...


Eyjafjallajökull… alltaf jafn fagur… við ætlum ekki aftur á hann… búin að fara  nokkrum sinnum… nú eru góð ráð dýr… að ná öllum fjöllunum sem við eigum ennþá eftir…


Takk elskur fyrir að mæta… fyrir að skaffa jeppa og keyra okkur öll alla leiðina upp eftir… fyrir dásamlegan félagsskapinn… vináttuna, vinsemdina og jákvæðnina… verum þakklát númer eitt…




Allar ferðirnar um Laugavegsfjöllin hér: fjollin_ad_fjallabaki | Toppfarar

Comments


bottom of page