top of page
  • Facebook
  • Instagram
  • YouTube
  • Twitter

Brandsgil, Hamragilstindur, SuðurSkalli, Hattur, Jökulgil, Þrengsli, Uppgönguhryggur, Skalli,Brandur

Tindferð 249 laugardaginn 13. ágúst 2022 #FjöllinaðFjallabaki


ree

Loksins var góð veðurspá heila helgi að Fjallabaki... og við áttum stefnumót við Landmannalaugar og hryggi, gil og tinda upp í Jökulgilið...


ree

Lagt var af stað úr bænum kl. 06 um morguninn eins og vanalega í þessum ferðum... nóg af jeppum og eftirvæntingin áþreifanleg... okkar árlega ganga um litríkt og formfagurt svæði Torfajökuls var að hefjast... og við vissum að okkar biðu fegurð eins og engin önnur á Íslandi...


ree

Helliskvíslin nokkuð vatnsmikil en vegurinn um Dómadal annars í ágætis ástandi...


ree

Mógilshöfðarnir... þeir bíða eftir því að vera gengnir og komast á fjallalista Toppfara... og það er ekki svo langt í það.... líklega árið 2025...


ree

Suðurnámur... ofan Frostastaðavatns... stórbrotið og litríkt fjall sem er ekki metið að verðleikum... jafn litrík og formfögur ganga og að fara að Grænahrygg en hvergi eins fræg...


ree

Lendingin frá hálsinum niður að Jökulgilskvíslinni og svo beygjan inn að Landmannalaugum er einn áhrifaríkasti staður á akstursleið á hálendi Íslands... Kirkjufellið, Halldórsfellið og Barmur standa sem útverðir...


ree

... og svo fanga Bláhnúkur og Brennisteinsalda athyglina strax á eftir...


ree

Fjöldi tjalda og bíla í Landmannalaugum er orðinn fastur liður... þetta er óumdeilanlega enn sérstakasti staður á Íslandi...


ree

Reykjakollur... fjöllin ofan Brandsgilja og Bláhnúkur.... Námskvíslin nær en hún er síðasta hindrunin á akstursleiðinni að Laugum... og var nokkuð djúp en allir komust yfir...


ree

Jeppaaksturinn eru ótrúlega skemmtileg viðbót við gönguferðirnar og órjúafnlegur hluti af hálendisferðunum okkar... rúta er jú mjög þægilegur ferðamáti... en akstursleiðin upplifist mun meira og betur þegar við þurfum sjálf að kljást við ár og torfærar leiðir...


ree

Við vorum lent kl. 8:38... aksturinn tók því rúma 2,5 klst. frá Reykjavík.... nóg að gera á tjaldstæði Landmannalauga... beint á wc áður en gangan hófst... Siggi og Linda gistu í Laugum um nóttina og voru búin að gefa okkur góða skýrslu um veðrið og færðina...


ree

Veðrið var með besta móti þennan dag... algert logn... svalt loft og hálfskýjað... það var búið að spá allt að 12 stiga hita í Laugum þennan dag... líklega náði hitinn almennt um 9 - 10 stigum en þap hlýnaði mjög fljótt ofan í giljunum ef sólin skein... en þegar hún hvarf bak við skýin þá hrundi hitastigið alltaf...


ree

Sjoppan á sínum stað...


ree

Lagt var af stað kl. 9:15 eftir stúss við bílana og á wc... þetta var afslappaður dagur og við vildum njóta landslagins sem mest... litum ekki á klukkuna fyrr en langt var liðið á daginn... og komumst reyndar þá að því að við vorum búin að ganga frá okkur tímann sem átti að var í heita lækinn og viðrun í Laugum eftir göngu... en það var allt í lagi... það var þess virði að dóla sér í þessum fjöllum og giljum í tíu klukkutíma...


ree

Þurrt og gætt færi... blauta færið og snjóskaflarnir sem haldið höfðu Laugasvæðinu í óspennandi ásigkomulegi fram eftir sumri var farið... loksins að sögn skálavarða...


ree

Gengið var meðfram Bláhnúk... og það var sérlega erfitt að taka ekki hægri beygju upp á hann... en við áttum erindi við Brandsgilin... sem við höfðum dáðst að árið 2015... og lofað okkur að skoða í návígi í einhvurri ferðinni... loksins var komið að því...


ree

Barmur og Reykjakollur og Jökulgilið þar á milli...


ree

Komin að mynni Brandsgiljanna beggja... þjálfarar hringdu í landverði degi fyrir ferðina og báru undir þau leiðina sem við vorum búin að reikna út... og þau sögðu okkur að lækirnir í Brandsgiljunum væru stiklanlegir... sem munaði miklu á leið inn eftir þeim öllum...


ree

Framundan var litríkt landslag... giljótt... stórskorið... bratt... formfagurt með meiru... við vorum komin í töfraheima Torfajökulssvæðisins...


ree

Hamrarnirí mynni Litla Brandsgils eru stórir og rauðbrúnir... við vissum ekkert hvað var handan þeirra... og hlökkuðum til að sjá...


ree

Uppi á þessum klettum efst leyndist einhvers staðar brúnin og kletturinn þar sem við stóðum svo síðar um daginn á útsýnistindi sem við nefndum Brand á sínum tíma árið 2015... og Björgólfur kom með betri tillögu... Giljabrand... þar sem hann vakir yfir báðum giljunum og vísar þannig til þeirra... en þar sem við vorum byrjuð að kalla hann Brand og hann er skráður þannig í fyrri sögum... þá látum við Brand standa... en sannarlega flott nafn... Giljabrandur... höfum það nafn með sem gælunafn... nú og ef staðarhaldarar vilja setja formlegt nafn á þennan tind annað en okkar nafntutlur... þá er það sannarlega vel þegið...


ree

Komin að mynni beggja gilja þar sem þau aðskiljast... fjallgarðurinn milli giljanna beggja heitir "Milli Brandsgilja"... og er mikið réttnefni... og í stíl við aðrar nafngiftir á þessu svæði sbr. "Hryggurinn milli gilja" sem rís milli Jökulgils og Sveinsgils... og svo "Milli Hamragilja" sem við eigum eftir að ganga á í Hamragiljunum...


ree

Lilta Brandsgil virtist ekkert sérlega framandi upp á að fara inn og svo aftur út til að ná líka í Stóra Brandsgili... þannig að við létum nægja að skoða það yst... og héldum yfir í Stóra Brandsgil... en ætlum að ganga þetta Litla við tækifæri síðar... kannski á hraðferð yfir í Muggudali og Hamragil síðar meir...


Þórkatla samdi hvorki meira né minna en fimm limrur um þessa ferð... hér kemur sú fyrsta:

Limra 1 af 5 - Þórkatla Jónasdóttir:


Farin enn á Toppfara flandur

Fundin skal hann Gilja-Brandur

Vaðið yfir á

Aftur á ská

Úff, þetta er grófur sandur !


ree

Stóra Brandsgil var augljóslega stærra.... víðara... umfangsmeira...


ree

Hrikalegir grjótdrjólar risu úr hlíðunum... sem minntu á Þrengslin oftar en einu sinni...


ree

Litadýrðin var með ólíkindum... við vorum strax dáleidd og á valdi þessa landslag...


ree

Gengum upp gilið á flötum grýttum botni þess... margsinnis yfir lækjarsprænurnar... sem rétt sluppu með stiklun og smávegis skótávöðun...


ree

Allir litir í landslaginu... djúpir og sterkir og svo mildir og hlýir...


ree

Formin... sjá sveigjuna á berginu þar sem mosinn hefur svo náð að vaxa í smávegis yfirborði sem nær að fanga rigninguna...


ree

Sjá litina í botninum...


ree

Klettaverðir á stöku stað...


ree

Sjá skærgræna og svo djúpgræna litinn innst í Stóra-Brandsgili...


ree

Litið til baka... hamrarnir í Litla Brandsgili þarna yst...


ree

Hvílíkir klettar... litir... hvöss form...


ree

Það hlýnaði vel ofan í gilinu... þarna var besta veðrið...


ree

Áfram inn gilið og enn og aftur yfir lækinn...


ree

Engin leið að ná öllum fjallstindunum ofan okkar... þetta landslag rúmaðist ekki inni í myndavélum...


ree

Hjarta í grjótinu...


ree

Innar lágu enn snjóskaflar yfir lækjunum...


ree

Við gengum á þeim og sáum glitta í lækjarsprænurnar á köflum...


ree

Litið til baka...


ree

Komin að lokum þessa skafls...


ree

Hvílíkt landslag...


ree

Ekki annað hægt en taka hópmynd hér... magnaður hópur... sem er einmitt til í ný ævintýri... stöðugt á nýjum slóðum... tilraunakenndum leiðum... þar sem við vitum ekkert hvort og hvenær við komumst upp úr þessu gili... það var auðvitað aukaatriði...


ree

Erfitt að yfirgefa svona flottan stað... töfrarnir náðust ekki á mynd hér...


ree

Komin í vesturenda Stóra Brandsgils... hér ætluðum við upp ef fært væri... þjálfarar búnir að sjá út góðan skafl á myndum frá því 2015... en ekkert á vísan að róa með það... síbreytilegar aðstæður hér...


ree

Örn lagður af stað upp skaflinn...


ree

Ljós botninn á læknum...


ree

Þessi skafl lofaði góðu...


ree

Frábær leið... örugg á hörðum skaflinum...


ree

Vatnsmagnið rennandi undir skaflinu það lítið að ógnaði ekki öryggi m.t.t. þess að falla í gegnum skaflinn... sem er alltaf ákveðin áhætta á þessu svæði öllu....


ree

Vinstri beygjan á Stóra Brandsgili... við gerðum ráð fryir að það gil væri svipað og Litla Brandsgil... þröngt og lítið og endar í halla upp í hlíðarnar innst... þetta gil endar líka undir Skalla eins og Litla Brandsgil... við þurfum að skoða þessi bæði á göngu einn daginn... gott að eiga eitthvað eftir...


ree

Litið til baka frá skaflinum upp... litirnir svo fallegir... við þurfum að ganga á fjallgarðinn "Milli Brandsgilja" sem hér rís frá Litla yfir á Stóra Brandsgilið...


ree

Magnaði tindurinn sunnan við Stóra Brandsgil virðist nafnlaus... þessi sem rís milli Bláhnúks og Stóra Brandsgils... hann þarf að fá nafn... þegar við göngum á hann síðar... Giljabrandur... nafnið frá Björgólfi á mjög vel við hann... hann mótar vel landslag Stóra Brandsgils og gefur mikið útsýni niður í bæði Brandsgilin...


ree

Frábær leið upp... virtist greið og vandræðalaus alla leið...


ree

Sjá bláan botninn á Stóra Brandsgili... og fjallgarðinn "Milli Brandsgilja" hægra megin...


ree

Farið að sjást meira í gilið allt...


ree

Bláhnúkur lengst til vinstri blár... guli nafnlausi gnæfandi yfir Stóra Brandsgili... Brandur svo rauður innst í gilinu og enn fjær Barmur yfir Jökulgili... fjærst blá fjöllin við Veiðivötn eða Kýlinga... erfitt að segja... passar ekki bara mjög vel að hann heiti Giljabrandur ? ... endilega spáum í þetta saman... verra að hafa engin nöfn til aðgreiningar þar sem við erum sífellt að ganga nýjar leiðir hér og erfitt að átta sig ef allt er nafnlaust meira og minna...


ree

Þegar snjóskaflinum sleppti... tóku við harðar, grýttar skriður... þar sem Örn mótaði smá stíg fyrir okkur... grunnt svo hann hverfur í næstu vetrarleysingum... en ef ekki þá er þetta fínasta leið fyrir þá sem vilja fara þessa leið...


ree

Við vorum alsæl með leiðina hérna upp... vorum undir það búin að þurfa að leita meira að leið upp...


ree

Komin upp á hrygginn sem liggur frá meginlandi Bláhnúks...


ree

Hryggurinn sem við fundum á sínum tíma á leið okkar frá Bláhnúk yfir að Hamragiljunum... Bláhnúkur þarna efst hægra megin... Suðurnámur lengst í fjarska... Brennisteinskvísl vinstra megin hlý og gul...


ree

Mjög flott leið á þessum hryggjum...


ree

Takk fyrir okkur Stóra Brandsgil...


ree

Sólin var mætt og allt varð mjög bjart og hlýtt....


ree

Bestu göngufélagar í heimi...


ree

Háalda komin í ljós vinstra megin... verkefnið á næsta ári með Vondugiljum, Suðurnámum og fleiri spennandi fjöllum, hryggjum og giljum frá Landmannalaugum...


ree

Hér áðum við og fengum okkur nesti... Bláhnúkur þessi blái... nafnlaus þessi guli... Giljabrandur er viðeigandi nafn...


ree

Full af nestisorku... sólarorku... litaorku... héldum við upp á meginlandið í átt að kyngimögnuðum fjallsbrúnum Hamragils...


ree

... fallega og lungamjúka leið... í sólinni...


ree

Fimm gestir voru í þessari göngu... þeir stóðu sig allir vel í erfiðri og mjög langri dagsgöngu...


ree

Hugfangin af fegurðinni... ljósmyndarar klúbbsins máttu varla vera að því að ganga... eins og svo oft áður...


ree

Stóra Brandsgil þarna niðri...


ree

Litið til baka í átt til Landmannalauga og brekknanna upp frá þeim og framhjá brennisteinsöldu...


ree

Bláhnúkur, Giljabrandur, Brandur, Milli Brandsgilja... og aftar er Barmur...


ree

Við eigum ennþá eftir þrjá tinda á þessari mynd...


ree

Blíðskaparveður hér uppi í um 900 m hæð og ennþá logn...


ree

Heiðin að Hamragilsbrúnunum... hér gengum við greitt og spjölluðum mikið...


ree

Skaflar í giljum harðir og þægilegir...


ree

Hamragilstindur þarna lengst upp frá... við stefndum þangað...


ree

Þegar dró fyrir sólu kólnaði... það munar mikið um hana í þessari hæð...


ree

Þegar komið er fram á brúnir Hamragils tekur maður andann á lofti... Jökulgilsbotninn blasir við.... Kaldaklofsfjöllin, Reykjafjöllin og Hamragilin... meðal annars...


ree

Háskerðingur þarna í fjarska með hinum Kalkaklofsfjöllunu... á hann gengum við árið 2018 og fannst við uplifa fegursta útsýni landsins... en líklega er það næst fegursta útsýni landsins á ftir sýninni ofan af Kristínartindum... skákar útsýninu af jöklatindunum öllum í Vatnajökli að okkar mati... en þetta er auðvitað alltaf matsatriði hvers og eins... Tindferð 160 laugardaginn 25 (toppfarar.is)


Og þarna stutt frá vorum við í fyrra á Torfajökli og horfðum niður á Kaldaklofið sjálft.. magnað alveg ! Torfajökull 3ja tinda leið frá Strút um íshellinn og Krókagil til baka um upptök Brennivínskvíslar. (fjallgongur.is)


ree

Hæsti tindur Hamragiljabrúna aðeins lengra upp frá... nafnlaus svo við kölluðum hann Hamragilstind á sínum tíma árið 2015...


ree

Hamragilin þarna niðri... bíða okkar... og fjallgarðurinn á millin þeirra sem kallas "Milli Hamragilja"...


ree

Litið yfir farinn veg þennan dag... Bláhnúkur dökkur... Jökulgilið þarna sléttbotna... Suðurnámur... Barmur... magnað !


ree

Skalli þarna hægra megin... og syðri hluti Barms...


ree

Hér nutum við útsýnisins og gáfum okkur góðan tíma...


ree

Myndatökur og pælingar um landslagið... Reykjafjölliln þarna þrjú saman... Hrafntinnusker... Háuhverir... Laugavegsgöngufarar á ferð þarna einhvers staðar...


ree

Hey... komið aðeins út á klettanösina...


ree

Hæsti tindur Hamragilstinds mældist 1.020 m hár... fyrsti tindur dagsins af sjö þennan dag... en við munum og skrá Stóra Brandsgil í fjallasafnið sem viðkomustað þó það sé ekki "fjall" og eins Þrengslin... því við erum að safna giljum, hryggjum og tindum að Fjallabaki og þessi gil verða öll að vera með... #FjöllinaðFjallabaki


ree

Ofan af hæsta tindi mátti sjá hversu gular brúnir Hamragilja eru sunnan megin...


ree

Loksins komum við okkur aftur af stað... sjá hversu hátt við vorum í samhengi við Barm og Landmannalaugasvæðið... og það í logni...


ree

Næsti viðkomustaður var Suður-Skalli... niður hryggina af meginlandinu... Skalli hér vinstra megin...


ree

Mjög flott leið... um enn einn nafnlausa hrygginn... ekki hægt að setja nafn á alla þessa óteljandi hryggi um allt þarna...


ree

Suður-Skalli framundan hér... eftir öllum þessum hrygg...

Torfajökull hvítur efst á mynd... þarna stóðum við í fyrra... og gengum á alla þrjá tindana... mögnuð ferð !


ree

Sjá græna mosann í gilinu... alls staðar leyndust perlur... ef maður gaf þeim gaum...


ree

Litið til baka...


ree

Allir litir... mjúkir og harðir... sterkir og mildir...


ree

Við nutum hvers skrefs... ekki annað hægt...


ree

Bleiki hryggurinn...


ree

Litabrigðin í hryggjunum...


ree

Ef maður hleðst ekki orku við göngu í þessu landslagi með þessu dásamlega fólki... þá er eitthvað að...


ree

Bleiki hryggurinn í samhengi...


ree

Kaldaklofsfjöll með Háskerðingi efst á mynd...


ree

Litahugmynd í riddarapeysu... ?


ree

Suður-Skalli beið okkar...


ree

Litlu gilin... appelsínugul... græn... grá... blá... rauð... brún... allir litir...


ree

Suður-Skalli mældist 923 m hár...


ree

Kaldaklofsfjöll og Reykjafjöll... Háuhverir og Hamragilin...


ree

Litið til baka... hvílíkir litir... ekki hægt að fá nóg af þessu...


ree

Frá Suður-Skalla tók hryggurinn niður að Hatti við... nafnalaus... en við ætlum að nefna hann Hattarhryggur í stíl við Kattarhrygg... þar sem honum er oft sleppt vegna harðs færis... en hann er of flottur til að vera ekki á blaði né á lista...


ree

Smám saman opnaðist landslagið innst í Jökulgili fyrir augum okkar... og Torfajökullinn handan þess... með litríka hryggina alla niður af jökli í gil...


ree

Stórbrotið landslag... og svo víðfeðmt...


ree

Hattur kominn í ljós... hann er svipmikill og stelur senunni á svæðinu.. enn eitt magnaða náttúrufyrirbrigðið hérna...


Limra 2 af 5 - Þórkatla Jónasdóttir:


Haldið var svo næst á Hatt

Helvíti var það bratt

Þræddi mjóa slóð

Skjálfandi og rjóð

Það hafðist, alveg satt !


ree

Hattarhryggur efri hér framundan... sumir höfðu áhyggjur af honum... höfðu lent í að komast hann ekki vegna glerharðs færis þar sem snúið va rfrá honum... við sáum spor fólks þar sem hann var s niðgenginn og fariðn niður um gilin... en Örn hélt af stað óhikandi... og við eltum...


ree

Örugg leið niður gilin ef menn vilja sleppa Hatti og Hattarhrygg... en það er mikil synd að missa af þessum kafla...


ree

Skyndilega sáum við hlaupahóp koma skokkandi upp Jökulgilið og að Hatti... þjálfarar fóru á flug... þetta er önnur leiðn til að uplifa þetta landslag... utanvegahlaupin hafa margfaldast að vinsældum sóiðustu ár... seinna um daginn í Landmannalaugum hittum við tvo hlaupara úr hópnum sem við þekktum... og komumst að því að þarna var Hlaupahópur FH á ferð... magnað hjá þeim !


ree

Hattarhryggur var saklaus yfirferðar... nokkuð harður en samt gott hald... og sumum fannst gott að hafa stafina til stuðnings...


ree

Mergjuð leið !


ree

Flottasti hluti gönguleiðar dagsins að mati sumra...


ree

Allir stóðu sig vel á þessum kafla og varla var hik á mönnum... rétt fram hjálparhönd ef menn þurftu smá öryggi eða aðstoð... flestir nutu þes að ganga hér niður...


ree

Sjá vel mótaðan stíginn... fáir farið hér um í sumar fannst okkur. á sandinum... erfitt sumar... hryggurinn var lítið mótaður... en eftir okkur 25 manns var kominn góður slóði...


ree

Sjá leiðina ef menn velja gilið... Jökulgilið svo fallegt... Hábarmur þarna vinstra megin... Torfajökull hægra megin...


ree

Sveigjan framhjá klettinum á miðjum hryggnum var ekkert mál...


ree

Örn mótaði góðan slóða...


ree

Hér var nokkuð tæpt á kafla en alls staðar gott hald samt... lítið um slóða utan í Hatti að sjá... mótaði fyrir smá slóða sem virtist koma undan vetri...


ree

Örn skoðaði undir klettinum... og þar var fínn slóði... við fórum þar síðast árið 2015... Tindferð 121 (toppfarar.is)


ree

Fyrstu menn komnir af stað undir klettinum...


ree

Hábarmur... Jökulgilið... og aurarnar að Uppgönguhrygg...


ree

Fínasta leið og betri en áhorfðist neðan frá...


ree

Komin að neðri Hattarhgygg... hér áðum við meðan þeir sem vildu fóru alla leið upp á Hatt...


ree

Doddi, Kolbeinn og Örn enduðu á að vera eingöngu þrír sem það gerðu... eins og síðast fóru fáir...


ree

Fyrst var að rifja upp hvaða leið var farin síðast... og svo fundu þeir eina færa upp bratt klöngur...


ree

Dýrð Jökulgils...


ree

Hlaupahópur FH að koma sér frá Hatti að Uppgönguhrygg...


ree

Strákarnir að fara upp tindinn á Hatti...


ree

Meðan strákarnir tóku Hatt... bauð Bára upp á bratta leið beint niður af Hatti í glerh0rðum skriðunum... Sæbjörn fór skárri leið niður nær klettunum... en svo þveruðu allir á eftir Báru neðar og skemmtu sér konunglega við verkefnið... gaman að ögra sér smá og velja ekki alltaf léttustu leiðina...


ree

Sjá graslendið þar sem sléttlendis nýtur... og rigningarvatn nær að staldra við og gefa gróðri smá tækifæri... dugnaðurinn aðdáunarverður á þessu kalda svæði sem er undirlagt snjó og vindi og kulda stóran hluta ársins...


ree

Neðri Hattarhryggurinn er mjög fallegur yfirferðar.. og þess virði ef menn leggja ekki í efri hluta hryggjarins að ganga þennan kafla neðan við Hatt...


ree

Hópurinn að koma frá Hatti...


ree

Skuggi stóð sig mjög vel í þessari ferð... reynsluboltinn Batman og hann voru góðir vinir og Skuggi gaf ekkert eftir... nema í ánum í Jökulgili... en þær voru heldur ekki fyrir hunda...


ree

Forréttindi að eiga hund... sem nýtur útiverunnar með manni af öllu hjarta... og stendur eins og klettur með manni ef eitthvað er...


ree

Farið að sjást í Uppgönguhrygg... uppáhaldshryggur þjálfara á þessu svæði fyrir utan Hrygginn milli gilja sem er þeirra allra flottastur... en hryggurinn sá er brattur og ekki fyrir lofthrædda... og því miður hvergi nærri eins frægur og Grænihryggur.... sem er eiginlega of vinsæll þessa dagana... varla þverfótað fyrir fólki þar í kring... eins og við áttum eftir að upplifa síðar um daginn...


ree

Hryggurinn vestan við Uppgöngyhrygg er einnig fagur að sjá... og virtist fær alla leið upp... þurfum að kynnast honum einn daginn... sérstaklega ef mikil umferð af fólki er á sama tíma og við á svæðinu... breyttir tímar frá því sem áður var... en ekki getum við verið að nöldra... við vorum ekkert skárri... 25 manns á ferð sem er heilmikill fjöldi...


ree

Þessi dagur giljóttur og hryggjóttur með eindæmum...


ree

Sjá hvernig Jökulgilskvíslin dreifir úr sér um gilbotninn...


ree

Síðasti kaflinn... en ekki síðasta beygjan...


ree

Hattverið þarna niðri... gróðurvin í eyðimörk Jökulgils... töfrar náttúrunnar...


ree

Gróðurinn er að vinna í þessu.... jöklarnir að hverfa smám saman af svæðinu og vatnsmagnið fer minnkandi...


ree

Einstakur staður að heimsækja...


ree

Við eltum kindagötur...

ree

Fegurðin í Hattveri fangast vel á þessari mynd... gróður og vatn í öllu þessu grjóti...


ree

Litið til baka á Hatt og hrygginn hans...


ree

Frændur Hattar allt í kring...


ree

Við ákváðum að ganga niður Jökulgilið að fyrstu ánni og fá okkur nestispásu þar og nýta hana til að far aí vaðskóna...


ree

Litið til baka... Hattur þarna svipmikill og stakur í sínu landslagi...


ree

Gróðurinn í lækjunum...


ree

Hvílík fegurð...


ree

Gengið niður í Þrengslin...


ree

Eins og ekki af þessum heimi...


ree

Erfitt að slíta sig frá þessari fegurð...


ree

Hábarmur gnæfandi yfir öllu svæðinu... þaðan eigum við einstakar minningar...


ree

Þessi var sposkur á svip í einum læknum...


ree

Stiklað yfir nokkrar sprænur niður eftir...


ree

Við enduðum á að velja góðan stað í grasi vaxinni hlíð hér...


ree

Það var enn lengra í vaðárnar... en þessi staður hentaði vel til setu...


ree

Við fylgdumst með mjög stórum hópi ganga eftir brúnunum ofan Jökulgils þar sem Grænihryggur lúrir... Hábarmur þarna svo yfir... hann átti eftir að fylgja okkur í humátt upp Uppgönguhrygg og um Skalla síðar um daginn...


ree

Eftir nestið héldum við áfram niður eftir... og fegurðin í þvergiljunum var allt í kring... alls kyns töfraheimar sem maður veit ekki af fyrr en maður kemur nær...


ree

Sauðfé á nokkrum stöðum í gilinu... ekki mikil beit... dugnaðurinn í þeim...


ree

Gráuhryggir... mögnuð náttúrusmíð !


ree

Við gengum heil lengi niður eftir áður en vöðun hófs...


Limra 3 af 5 - Þórkatla Jónasdóttir:


Farið var í Þrengslin fögur

Flæðandi áin var þungur löður

Yfir hana óð

Og óð og óð

Um ferðina verða sagðar sögur !


ree

... með smávegis stiklunum... sjá Hatt í baksýn...


ree

Komin að fyrstu árþveruninni...


ree

Allir í vaðskó og ekkekrt mál... ískalt og aðeins straumhart... en tært niður í botn og engin úlfúð í rennslinu...


ree

Hundurinn Batman lagði ekki í vaðið og Örn tók hann í fangið...



ree

Bára gekk fyrir ofan til að minnka strauminn... en í vaði þrjú prófuðum við að láta hann vaða sjálfan með því að halda höfðinu upp úr vantinu og þá synti hann vel yfir...


ree

Njáll óð yfir allar árnar með Skugga í fanginu... það var meira en að segja það...


ree

Mjög gaman að þræða gilið svona og upplifa lækjarsprænurnar og stærri árnar liðast niður eftir...


ree

Litadýrð Þrengslanna opnaðist smám saman fyrir okkur...


ree

... og við gerðum okkur grein fyrir forréttindunum...


ree

Klettastríturnar um allt...


ree

Vað tvö...


ree

Upp fyrir hné á köflum...


ree

Svo komu langir auðir kaflar...


ree

Vað þrjú... þar þurfti að leita færis þar sem áin sléttist mest úr sér... mjög straumhart var í álum og þar sem um þrengdist...


ree

Ólýsanlegt landslag allt í kring...


ree

Loksins kynntumst við Þrengslunum í návígi..


ree

Þornaðir farvegir...


ree

Þarna hefði verið hægt að vera í langan tíma og upplifa alla fegrðina í hlíðunum allt í kring...


ree

Komin í enda Þrengslanna og farið að sjást niður eftir gilinu að Sveinsgilskjafti...


ree

Við gengum eins langt og við komumst upp með án þess að vaða í fjórða sinnið...


ree

Komin að enda við ána þar sem hún liðast eftir hlíðunum... búin að ganga 2,6 kílómetra niður Jökulgilið...


ree

Þarna opnast gilið aftur og Þrengslin eru að baki... við ákváðum að láta hér við sitja og snúa við þar sem við áttum eftir að vaða allt saman aftur til baka... og ganga heilmikið áður en til Landmannalauga yrði komið...


ree

Sjá klettinn þarna sléttan og stakan... þjálfari myndaði ekki nærri allt sem fyrir augu bar í gilinu... það var svo mikið í gangi á þessari leið að það náðist ekki...


ree

Hópmynd hér við enda göngunnar í Þrengslunum:


Efri: Jóhann Smári gestur, Auður E. Jóhannsdóttir gestur,, Njóla, Jaana, Arna, Njáll, Guðný Ester, Björgólfur, Ögn, Sæbjörn Guðmundsson gestur, Sigga Lár. og Þórkatla.


Neðri: Siggi, Doddi, hundurinn Batman, Oddný, Inga Guðrún, Edwin Árnason, hundurinn Skuggi, Fanney, Elísa, Kolbeinn, Linda, Bjarni, Sofia Johannsdóttir og Sigga Bjarna en Bára tók mynd.


ree

Hér önduðum við að okkur orkunni úr litunum og klettunum...


ree

... og snerum svo við með semingi úr þessari fegurð... gegnum Þrengslin öll aftur...


ree

... með fegurðina hátt og lágt...


ree

Aftur vaðið þrisvar yfir Jökulgilskvíslina... og mörgum sinnum yfir minni sprænur..


ree

Minna í ánni en árið 2019 þegar við óðum Jökulgilið frá Sveinsgilskjafti... als 9 sinnum yfir stóru ána og 9 sinnum yfir minni ár... = 18 sinnum... og lentum í meiri hrakningum en þennan dag... enda var þá farið að bregða birtu af degi... og endað í rökkri... og vöðunin sú var í lok langrar göngu frá Kirkjufellsvatni á Habarm að Grænahrygg og um allan Hrygginn milli gilja... ógleymanleg ferð sem trónir á topppnum yfir allar ferðir á þessu svæði hvað vaðrar erfiðleikastig og ævintýri... jebb... því erfiðari ferðir.. því sætari og eftirminnilegri eru þessar ferðir... þesar auðveldu þar sem farið er á stíg um troðnar slóðir allan tímann... gefa ekki nærri því eins mikið og þessar þar sem finna þarf leiðir og leysa úr landslaginu á staðnum... Tindferð 175 Hábarmur (toppfarar.is)


ree

Snillingar þetta lið... ekkert hik.. bara látið sig hafa það... og notið ævintýrisins...


ree

Heiður að vera hér...


ree

Fimmta vaðið...


ree

... og enn var Njáll berandi hundinn Skugga...


ree

Síðasta vaðið... furðulega auðvelt að gera þetta... kaldur og dofinn á fótunum.. en ef menn voru vel klæddir að ofan í hlýjum peysum og buxurnar voru ekki að detta niður og blotna... og vaðskórnir með þéttum botni... eins og þjálfari lagði upp með fyrir ferðina... þá voru menn í góðum málum...


ree

Örfáir voru í hefðbundnum vaðskóm sem þjálfari hafði ekki mælt með að vera í... og fundu menn fyrir því í grýtinu milli vöðunarinnar... þetta var jú 5,4 kílómetra kafli alls... en við gátum samt farið seinna í vaðskóna og fyrr úr þeim en ella þar sem vatnslítið var í Jökulgilskvíslinni þennan dag svo þetta slapp ágætlega...


ree

Litið til baka...


ree

Hér skiptum við aftur í gönguskó... ofar var smávegis umferð af fólki að koma og fara að Grænahrygg... og stóri hópurinn sem við sáum ofan á hryggjunum var að vaða yfir Jökulgilskvíslina á sama tíma talsvert ofan við Þrengslin...


ree

Heilmikill lærdómur felst í svona vöðun... hver ferð kennir manni og skerpir á vinnubrögðum með hvernig er best að gera þetta.. strigaskór, vera í háum ullarsokkum smá þurrklútur, þurrir sokkar til skiptanna, fæturnir frískast við vaðið, manni hlýnar fljo´tt aftur á göngu, gott að vera vel klæddur að ofan á svona vaðkafla... sömu lexíur og árið 2019...


ree

Tveir útlendingar á leið að Grænahrygg...


ree

Takk fyrir okkur Þrengsli og Jökulgil...


ree

Falleg leiðin aftur í átt að Hatti og inn að Uppgönguhrygg...


ree

Uppgönguhryggur er talsvert innarlega...


ree

Hér komin framhjá stóra gönguhópnum sem reyndust vera Fjallavinir á ferð í einni af nokkrum ferðum sínum hvert sumar þessa sömu leið um Grænahrygg...


ree

Uppgönguhryggur hér framundan lágur og hógvær til að byrja með...


ree

Klárlega ekki síðra fyrirbæri en Grænihryggur og annars eðlis... hægt að ganga hann allan... skiptandi litum.. langur og hlykkjóttur... magnað fyrirbæri...


ree

Litir Uppgönguhryggjar... allir ljósu og mildu litirnir á svæðinu...


ree

Töfrar frá fyrsta skrefi til þess síðasta...


ree

Litið til baka... Fjallavinir að nálgast okkur... þau líklega jafn sammála okkur um að vera ekki öll á sama tíma á hryggnum...


ree

Nú tók við litaveisla sem er engu lík...


ree

... við nutum litanna allt í kring...


ree

Hópurinn þéttur reglulega og dólað upp í rólegheitunum..


ree

Ólýsanleg fegurð !


ree

Skörp litaskil...


ree

Margbreytileiki...


ree

Birtubreytingar...


ree

Formbreytingar...


ree

Ægileg fegurð í kring...


ree

Skorin brött gil um allt...


ree

Hlykkjótt leið...


ree

Stígurinn í stakasta lagi og hvergi tæpt að ganga... mun greiðfærari en hryggurinn að Hatti sem er þessi misserin mun minna genginn greinilega...


ree

Áfram svona skör skil milli lita... eins og penslað landslag... sama fyrirbærið og á hrænahrygg þar sem heill hryggur er sterkgrænn... og annar karrýgulur við hliðina á honum...


ree

Fjallavinir að koma þarna upp... fallegt að sjá þau liðast eftir hryggnum...


ree

Brúna grjótið ljóst þegar það brotnaði...


ree

Torfajökull þarna efst á mynd... og nær Uppgönguhryggurinn liðandi eins og ormur...


ree

... en hann heldur áfram upp eftir...


ree

... alla leið upp á meginland Skalla...


ree

Við reyndum að ná mynd af okkur með Uppgönguhrygginn og Torfajökul í baksýn... ómetanleg hópmynd...


ree

Riddarapeysumynd dagsins...


ree

Fjallavinir... mjög flott nafnið á þeirra hópi... alger snilld... Fjallavinir :-) :-) :-)

ree

Gengið í málverki eða konfektkassa náttúrunnar...


ree

Hvernig er hægt að lýsa þessu öðruvísi.... ?


ree

Sjá hvernig hryggurinn nær enn lengra upp eftir... beygir svo enn einu sinni og tengist meginlandinu...


ree

Síðasti kaflinn...


ree

Litið til baka...


ree

Komin að endalokum Uppgönguhryggjar... alls tæplega 1,5 kílómetra kafli á þessum hrygg...


ree

Kaldaklofsfjöllin þarna þrjú...


ree

Takk fyrir okkur Uppgönguhryggur !


ree

Auðvitað gengum við á Skalla og létum ekki stíginn afvegaleiða okkur framhjá honum... það tók því nú ekki að sleppa þeim stórkostlega útsýnisstað yfir allt þetta svæði...


ree

Við bara gleymdum okkur á spjallinu og vorum enga stund upp...


ree

Skalli mældist 1.030 m hár þennan dag...


Limra 4 af 5 - Þórkatla Jónasdóttir:


Skundaði næst upp á Skalla

Eftir snæðingi var búin að kalla

Niður sest

Að njóta "rest"

Og sýnar til allra þessara fjalla !


ree

Algert logn... mikið útsýni... en svolítið mistur... sem var ekki hægt að skýra með moldroki... né hitamistri því lofthitinn var kaldur... var þetta gosmóða ?... erfitt að segja...


ree

Torfajökull...


ree

Kaldaklofsfjöll og Hrafntinnusker...


ree

Til Landmannalauga og Löðmunds o.m.fl...


ree

Hundarnir orðnir þreyttir... þetta var alvöru ferð...


ree

Eftir góða nestispásu héldum við niður af Skalla stystu leið...


ree

Örn og við... fengum að launum þennan góða skafl niður sem gaf mýkt og röska niðurgöngu... fyrir að velja bara beinustu leið niður af Sjalla... sömu og við fórum árið 2015 þegar ekki var komin svona skýr leið um Skalla frá hryggjunum til Lauga...


ree

Frábær leið niður og talsvert bratt...


ree

Sumir renndu sér og hvíldu hnén...


ree

Og svo var komið sér yfir á stíginn... fjölfarna... sem var ekki skemmtilegt... við erum ekki vön að ganga í svona miklu kraðaki... munum það næst að velja aðrar leikðir allan tímann... en Bára þjálfari sá fína leið niður um Litla Brnadsgil en náði ekki að bera það undir Örn sem var kominn nokkuð langt niður á þessum kafla...

ree

Og við hefðum eftir á að hyggja einnig getað gengið fjöllin "Milli Brandsgilja"... en það er eitthvað notalegt við að eiga þann fjallgarð eftir... árið 2024... með Hamragiljum og nýjum tindum og hryggjum... eftir Háöldu og félaga árið 2023... nóg að gera næstu árin sko !


ree

Ein af fjallsrótum Skalla leiddi okkur niður að Vörðuhnúk...


ree

Sjá Skalla og skaflinn okkar niður...geggjuð leið !


ree

Hlökkum til að fara milli Brandsgilja og um Litla Brandsgil sem við eigum þá ennþá eftir að skoða í návígi...


ree

Vesturbarmur eða hvað... þriðji hæsti tindurinn á þessum kafla þar sem stígurinn liggur í gegnum...


ree

Við þvældumst svo upp á þann næst hæsta stuttu síðar... sem mældist 869 m hár... og nýttum þar nafnið Vörðuhnúkur af kortum... ef það reynist rétt.. en hærri tindur er ofar sem virðist vera 880 m hár... skoðum það betur næst !


ree

Jökulgilið nær Laugum og Barmur í allri sinni dýrð... hann eigum við líka eftir... Fjallavinir hér ofan af næst hæsta tindinum...


ree

Litið upp eftir...


ree

Hér skildu leiðir okkar og allra hinna á sömu leið... við áttum stefnumót við útsýnistindinn Brand...


ree

Smá útúrdúr sem flestir létu sig hafa að taka á þessum langa degi...


ree

Litla Brandsgil... og Skalli efst hægra megin... hluti Torfajökuls í miðið og Hábarmur vinstra megin...7

ree

Brandur kallast á við Bláhnúk og vakir yfir giljunum sínum tveimur... í glæsilegum brúnum og klettum sem gefa mikill svip úr giljunum...


ree

... og þvílíkt útsýni yfir farinn veg um morguninn... Stóra Brandsgil hér... Giljabrandur þá hægra megin... og "Milli Brandsgilja" vinstra megin...


ree

Mögnuð sýn á leið okkar í byrjun dags... yfir allar þessar slrænur inn eftir Stóra Brandsgili... og upp snjóskaflinn..

ree

Gefandi endir á stórkostlegum göngudegi...


ree

Ekki hægt annað en taka hópmynd...


ree

Sextán af 25 manns...


Limra 5 af 5 - Þórkatla Jónasdóttir:


Loks var lokið þessu randi

Og leit að Gilja-Brandi

Við fyrsta gil

Hér um bil

Líst mér á að hann standi !


ree

Takk fyrir okkur Brandsgil... við eigum sannarlega eftir að sjá ykkur oftar...


ree

Héðan biðu okkar Laugar... hvíld... viðrun... fögnuður... akstur heim... víma næstu daga... alsæla með lygilega fagran dag... enn einu sinni á þessu svæði...


ree

Við héldum bara áfram sama sólinu... löngubúin að ganga frá okkur tímann sem við ætluðum að fara í heitalækinn og fá okkur tvo kalda og mat... það var allt í lagi...


ree

... við tímdum ekki heim... því fegurðin hélt áfram... nornabaugar hér á miðri leið frá Brandi að stígnum niður í Laugar... +

ree

Hjarta í miðjum nornabaugnum...


ree

En landið hafði ekki sagt sitt síðasta...


ree

Hélt áfram að segja okkur sögur af ólýsanlegri fegurð... og óendanleika... möguleikum og fjölbreytileika... sem engin mannshugur nær að kalla fram af sjálfsdáðum...


ree

Stórkostleikuirnn hélt áfram alla leið niður á áraurar Brandsgiljanna...


ree

... og við fengum sólina með í för...


ree

... og við lukum okkar för jafn agndofa og í byrjun dags...


ree

... yfir víðfeðmi þessa landslags sem Torfajökullinn hefur skapað...


ree

... með öllum sínum hryggjum... tindum.. og giljum...


ree

Reyndum jafnvel að hrista af okkur mestu ölvunina þegar komið var til byggða... svona til að raunveruleikatengjast aftur...


ree

... ef við þá tímdum því... var maður ökufær eftir svona sælu ?


ree

Bláhnúkur er sama stórkostlega fyrirbærið og Grænihryggur... stakur litur samankominn á heilu náttúrufyrirbæri... heilu fjalli... þetta fjall er stórfenglegt... og ætti að vera fyrsta fjall allra sem ganga á þessu svæði... tekur rúmar 20 mínútur fyrir stálpaðan dreng að fara þetta með foreldrum sínum... mögnuð fjölskylduferð... og hæg tað fara um Grænagil í bakaleiðinni og ná þannig hring til Landmannalauga... á kannski tveimur klukkustundum á rólegu dóli að upplifa og ana að sér öllu sem fyrir ber...


ree

Sólin endaði gönguna með okkur...


ree

... og hlýjaði allt í kring... í logni og friði kvöldhúmsins...


ree

Það var skrítið að sjá að við höfum verið tíu klukkustundir á göngu... þetta leið eins og klukkutími...


ree

Lending í Landmannalaugum... hingað verðum við að koma á hverju ári... ekki spurning...


ree

Barmur, Jökulgilið, Reykjaköllur og Vörðuhnúkur...


ree

Vi'ð gáfum okkur góðan tíma þegar í bílana var komið til að viðra ferðina, nærast og spá í það sem var að baki...


ree

Alls 22,5 km á 10:05 - 10:09 klst. upp í 1.030 m hæst með alls 1.076 m hækkun úr 596 m upphafshæð... mismunandi tölur í öllum tækjum en þetta var lendingin hjá þjálfurum... tölurnar eru meira misvísandi nú en áður... og við vitum ekki skýringuna á því...


ree

Fjórir af sex gestur ferðarinnar... með Ingu Guðrúnu og Siggu Lár Toppförum.. gestirnir stóðu sig allir mjög vel í þessari mjög svo krefjandi göngu... þetta var langt og strangt í vegalengd, tíma og yfirferð... virkilega vel gert !


ree

Við tímdum ekki heim í sólinni og sælunni...


ree

Dásamlegur endir á deginum...


ree

Bestu félagar í heimi...


ree

Riddarapeysurnar í snakkinu... gott að fá smá kartöfluflögur í lok svona göngu !


ree

Við tók akstur heim í tvo og hálfan klukkutíma... allir komu heilir heim... þessir dagar eru langir... en margfalt þess virði...


ree

Höldum áfram að safna öllum tindum, fjöllum, hryggjum, dölum, vötnum og giljum Friðlandsins að Fjallabaki... búin með níu ferðir... og margar spennandi framundan næstu ári... #FjöllinaðFjallabaki



Myndband af ferðinni:

 
 
 

Comments


bottom of page