Níu tindar Mosó eða "Mosfellsku Alparnir" á sumardaginn fyrsta
- Bára Agnes Ketilsdóttir

- 2 hours ago
- 6 min read
Tindferð nr. 357 fimmtudaginn 23. apríl 2026

Það komu hlýir og sólríkir vordagar í apríl eftir mikla snjókomu á skírdag í bænum árið 2026... en svo komu nokkrir dagar í miklum gráma þar sem grátt þokuloft lagðist yfir borgina og fjöllin öll í kringum hana með engu skyggni... en daginn fyrir sumardaginn fyrsta... var blár himinn yfir mosó-fjöllunum og þjálfarar vonuðu að það yrði skyggni á þessum fjöllum...

Fínasta veðurspá... logn og þægilega svalt... en skýjað... og vorleysingafæri í fjöllum... frábær moting... hún var framar vonum... alls 16 manns...
Við ákváðum að taka upphafsmynd... og endamynd...
Örn, Siggi, Gulla, Björg, Guðný Ester, Oddný, Silla, Sighvatur, Gunnar G., fanney, Inga,, Linda, Jón Odds. og Hjörtur... og Bára tók mynd og Batman og Kolka voru hundar dagsins...

Bára þjálfari fór þessa leið í fyrra... og studdist við tindahlaupin í Mosó sem Mosfellingar hafa með miklum myndarbrag komið á kortið... en leiðin var uppgötvunað vissu leyti því við höfum aldrei farið á alla þesa tinda í einu þó við höfum margoft gengið á þá alla sem staka tinda eða tvo, þrjá saman...

Lagt var af stað kl. 8:05... alveg lúxus... enginn akstur... bara beint í göngu á frídegi...

Úlfarsfellið var fyrst... upp tröppurnar á Skarhólamýrinni sem nú heitir Skarhólabraut...

Hey... það var að koma sól... skein á húsin í Mosó... en hún kom lítið til okkar...

Stórihnúkur...

Fyrsti tindurinn af níu... Úlfarsfell


Yfir á Litla Hnúk...

Og niður stíginn að Sólbakka austan megin...

Eini kaflinn á vegi fyrir utan smá kafla í restina gegnum Helgafellshverfið í Mósó... um Hafravatnsveginn að Hafrahlíð...


Hafrahlíðin framundan... Reykjaborg vinstra megin....

Upp stíginn á Hafrahlíð vestan megin...


Tindur tvö... Hafrahlíð (Lali)...



Yfir á Reykjaborg... Úlfarsfell í fjarska hægra megin...

Reykjaborg framundan... mjúkt og sumarlegt færi og engir keðjubroddar með í för... þetta var jú sumardagurinn fyrsti...


Tindur þrjú... Reykjaborg...

Hafrahlíð og Úlfarsfell að baki...




Borgarvatn og Bæjarfefll handan þess... það fékk ekki að vera með... frekar en Lágafell og Mosfell... en hægt að bæta þeim við og ná tólf tindum...

Grímmannsfell, Þverfell og Torfdalshryggur framundan...


Fórum framhjá Borgarvatni...

Nokkrir lækir á leiðinni fyrri hluta leiðarinnar...

Litið til baka... Borgarvatn og Reykjaborg...


Upp Þverfellið... sem var fjórði tindur dagsins...



Bjarnarvatn blasir við af Þverfelli og Torfdalshryggur er handa þess...


Nestispása eitt var við Bjarnarvatn...

Lækurinn sem Bára þjálfari áði við í iðandi sumarblíðu í júní í fyrra á þessari sömu leið... var allur undir snjó...



Kolka... yfirvegaðasti og líklega gáfaðasti hundur í sögu Toppfara... Bordercollíe hundar eru taldir gáfaðastir... og púðluhundar næst gáfaðastir... en Kolka er klárlega sú vitrasta...

Meðfram Bjarnarvatni á leið upp á Torfdalshrygg...

Fórum yfir girðinguna á snjó...


Torfdalshryggur... fimmti tindurinn... og sá eini sem er ekki með skilti merkt tindinum... en landslagslega séð er engin spurning að telja hann með sem einn af tindunum...


Miðjukafli leiðarinnar er erfiðastur... löng leið upp á Grímmannsfell... en af því búið var að vara við henni... þá reyndist hún lauflétt og skemmtileg...

Heilmikill snjór á köflum...

Kærleikurinn sigrar allt...

Farin að sjá yfir á heiðina að Henglinum...

Heilmikil leið og þessi hluti er ekki á stíg.. frá Torfdalshrygg þar til stutt er á tindinn á Grímmannsfelli...

Mjög mikið útsýni... og við sáum að við vorum heppin með skyggni...

Sólin kom smávegis...

Tjarnir... pollar... drulla...



Já, þetta er heilmikil leið...


Komin á stíginn hér sem nær yfir báðar axlir Grímars...

Stígurinn frá tindinum að suðurhlutanum... hér áttum við eftir að ganga eftir tindinn á Grímmanni... skiltin voru missaga... Grímar... Gríman... Grímann.... Grímmann... á sínum tíma þegar þjálfarar byrjuðu með Toppfara árið 2007 þá vafðist þetta mikið fyrir okkur... og við enduðum á Grímmanni... manninum með grímuna...

Stutt í tindinn á Grímmannsfelli...

Miklar leysingar hér...


Sjötti tindurinn... Grímmannsfell... hæsti tindur leiðarinnar...



Ákveðinn áfangasigur... og snúningspunktur... búin með helminginn... og nú var bara að snúa til baka til byggða...

Hópmynd á hæsta tindi með snjóslegna Mosfellsheiðina í baksýn... hér sátum við og fengum okkur að borða...

Ótrúlega vetrarlegt um leið og farið er í einhverja hæð eða inn á heiðar...

Nú var farinn stígurinn að suðuröxlinni á Grímmannasfelli... sem ég fór vitlaust í fyrra... þess vegna er gps-slóðin eða ferillinn úr þessari ferð betri en sá frá 2025...

Suðuröxl Grímmannsfells... við enduðum á að fara á Hjálm sem er hnúkurinn þarna hælgra megin dökkur...

Sólin kom á þessum kafla...


Sjá stíginn markeraður í mosann ofar á mynd... slóðinn var undir snjósköflum reglulega á þessum kafla...


Sést vel hér...

Snjórinn brotnaði bókstaflega undan okkur...

Þýft og krefjandi færi á köflum en stígarnir gerðu þetta allt léttara...



Litil til baka á hæsta tind Grímmannsfells... Stórhól..


Við skutumst upp á Hjálm... en það er hægt að sleppa honum án samviskubits... þetta var óþarfa tindur í raun...


Lágskýjað á Esjunni... þoka uppi.... nyrðri öxl Grímmannsfells hér handan gilsins...

Mosfellið þarna í fjarska...


Aftur niður og á stíginn...

Hér er mikið útsýni og mjög flottur hluti af leiðinni...

Sjá hengjurnar / sprungurnar í skaflinum...

Hér renndu einhverjir sér niður... óvart eða viljandi :-)

Geggjað !


Smávegis áning... en annars var nesti þrjú ráðgert við Reykjafellið...


Stígurinn er samfelldur hér alla leið á Reykjafellið... mjög skemmtileg leið !



Síðasta vatnið á leiðinni... fyrir utan varmá í Helgafellshverfinu... þrír tindar enn eftir...

Litið til baka... brekkan okkar góða niður af Grímmannsfelli hér í baksýn...

Siggi fór á snjóbrú yfir en við hin stikluðum...


Rúmir 19 km búnir við síðasta vatnið...

Frá læknum á Reykjafellið er mýrlendur kafli sem tekur í... hvort sem það er sumar eða vor...


Stutt áning... wc stopp og svona...

Jamm... drullan...

Við tókum bara hláturskastið á þetta...

Hér hittum við konu á ferð með tvo hunda... en annars hittum við engan á leiðinni sem ég man eftir...


Og þegar við héldum að við gætum þvegið skóna í svona tilvöldum skafli.... þá beið okkar alltaf annað drullusvað lengra...


Reykjafellið framundan...

Stígamót... hér er farið í þrjár áttir... allt skilmerkilega merkt af Mosfellingum og til fyrirmyndar... þeir hampa sínum útivistarsvæðum og eru stoltir af því að vera úthverfi... Reykjabíkurborg mætti læra margt af Mosfellsingum... þeir eiga heiðurs kilið fyrir að meta verðmætin sín að verðleikum...



Tindur sjö... Reykjafell....


Það er hægt að fara beint af Reykjafelli um móann niður á Æsustaðafjall... styttra og beinna... en við tókum stíginnn... í von um skárri leið...

Nestispása á miðri drulluleið... okkur var drull... vildum bara borða í þriðja sinnið í göngunni...


Sumir lögðu sig smá... það var góð hugmynd...

Já... færið var svona á ótal köflum...

Enda voru skórnir þaktir leir þegar heim var komið...

Jæja.. yfir á Æsustaðafjall...

Búin að fara hér ótal sinnum...

Reykjafell að baki...

Svo eru þessi listaverk á tindunum í Mosó... gerum okkar litlu hluti... til að gera heiminn betri...

Tindur átta... Æsustaðafjall...



Þessar þrjár eru eitthvað annað... víla ekki fyrir sér að ganga 31 km á 10,5 klst...með 1.400 m hækkun... og ekki bara það... heldur brosandi og glaðar allan tímann... engin neikvæðni... ekkert væl... engar úrtölur... bara gleði, bros og hlátur... enda allar á leið í alls kyns ævintýralegar ferðir um allan heim í sumar... pant ná að feta í þeirra fótspor...



Jæja... síðasti tindurinn af níu... allir orðnir þreyttir... en mjög stutt eftir... þjálfari giskaði á 45 mínútur... Linda á klukkutíma... var ekki oddný með í þessu veðmáli ? ... Jón Odds á 1,5 klukkustund... og Jón vann veðmálið !


Helgafellið tók í eftir allt sem var að baki... Æsustaðafjall hér nær og Grímmannsfell fjær..

Reyndum að fara eins stutta og þægilega leið yfir Helgafellið og við gátum...

Níundi tindur dagsins... Helgafell í Mosó... !



Jey ! Nú var bara að koma sér í bílana !


Helgafellshverfið hér neðan við Helgafellið... það krefst smá útsjónarsemi að fara sem einföldustu leiðina gegnum hverfið og sem minnst á malbiki... með lausa hunda... en Kolka fór reyndar í band... Batman var svo þreyttur að hann vék ekki frá Erni og var í losýnilegu bandi...


Ofan við hestagerðið hér...


Gamlir stígar og náttúran allt umlykjandi í þessu hverfi... magnað alveg...

Komin á malbik...

Fallegar götur og einstök götunöfn þar sem Halldór Laxnes og sögupersónur hans ráða ríkjum...


Strax komin á fallegt útivistarsvæði Varmár sem rennur í gegnum hverfið... hvílík perla í þessum bæ...


Orðin g þreytt en stutt eftir...

Sigurinn var algjör... enginn bilbugur á mönnum... hér skildu leiðir og Mosfellingar gengu bókstaflega heim til sín... Inga og Linda... og þess vegna var lokamyndin tekin áður en göngu lauk alveg...

Smá kafli hér í gegnum iðnaðarhverfið í norðurhlíðunum..

Það eru hestar á beit um allan Mosfellsbæ... hvílík verðmæti... þeir fylgdust grannt með þessum hópi göngumanna farra framhjá... en högguðust ekki...


Komin á Skarhólabrautina sjálfa sem liggur að bílunum við Úlfarsfell þar sem við lögðum af stað um morguninn...

Gengum á hitastokknum á kafla...

Lent við bílana klukkan 18:45... eftir mun lengri göngu en við áttum von á... enda dóluðum við okkur allan daginnn... því miður náði Fanney ekki sundinu... það var synd... munaði ekki miklu... opið til kl. 19 í Mosó... hefði verið svo tilvalið...

En við vorum himinlifandi og sigurinn var algjör ! ... alls 29,9 - 33,1 km eftir tækjum... og við létum 31,6 km ráða á 10:39 - 10:41 klst. upp í 498 m hæstu hæð meða lls 1.478 m hækkun úr 99 m upphafshæð...

Hvílíkur sigur ! Mögnuðn frammistaða ! Nú vita menn að þeir geta gen gið rúmlega 30 km... og farið enn lengra enn lengra en það... Ofurgöngurnar eru ekki fyrir útvalda... þær eru fyrir alla sem ganga á fjöll allt árið og víla ekki fyrir sér að vera þreyttir en halda áfram og sigra fjallið eða leiðina... þjálfarar taka ofan fyrir þeim sem mættu... þetta var virkilega vel gert !
Gps-slóðin hér: https://loc.wiki/t/261902077?wa=sc
Myndbandið hér: Níu tindar Mosó - "Mosfellsku Alparnir" 31 km
Við erum að spá í að hafa aftur svona míní "ofurgöngu" nálægt höfuðborginni á næsta ári... erum þegar byrjuð að kokka spennandi leið...




Comments