Sveinstindur og Eystri Hnappur í Öræfajökli með Asgard Beyond
- Bára Agnes Ketilsdóttir

- 6 minutes ago
- 5 min read
Tindferð 358 laugardaginn 9. maí 2026
Þeir félagar í Asgard Beyond buðu Toppförum upp á enn eina tæru snilldina í Vatnajökli og bættu óvænt Eystri Hnappi við í göngu með hópinn á Sveinstind og skilaði hópurinn sér himinlifandi til byggða eins og þeim einum er lagið félögunum. Þar sem þjálfarar voru ekki með í för fara hér á eftir lýsingar leiðangursmanna og ljósmyndir þeirra og leiðsögumanna Asgard Beyond.
Vinsamlegast látið mig vita ef einhver ljósmynd má ekki vera hér undir en lýsingar og ljósmyndir eru tær snilld þó aldrei sé hægt að fanga þessar ferðir nægilega á ljósmyndum né með orðum... maður þarf að upplifa á staðnum...

Frá Smára á fb:
Sveinstindur og Eystri Hnappur
Þá er minni fyrstu jöklagöngu lokið. Ekki með einum tindi í 100 hæstu heldur tveimur! Þvílík sæla.
Veðrið lék við okkur á leiðinni upp en fór svo eitthvað að rífa kjaft uppi í öskju en gekk svo gjörsamlega af göflunum uppi á Sveinstindi. Varð svo aftur ljúft á niðurleið. Fullkominn dagur.
Nú ætla ég að leyfa mér að vitna í fullyrðingu sem var viðhöfð á vefsíðunni okkar:
„Tilvalin jöklaferð fyrir þá sem ekki hafa farið áður.“ - , bein tilvitnun.
Gæti ekki verið meira sammála
Það er frábært að fara í sína fyrstu jöklaferð á Sveinstind og henda svo í einn Eystri Hnapp í leiðinni og vera sendur fremstur manna þangað upp, þurfandi að laga allskonar vandamál með línuna - hnút og línan að festast í lárétt grýlukerti aftur og aftur - allt á meðan leiðsögumennirnir góðu öskruðu óheyrilegar leiðbeiningar í gegnum rokið og röð af fólki að bíða eftir mér fyrir aftan.
Að öllu gamni slepptu. Vá, hvað ég er ánægður með þetta. Ég fór beisiklí úr vaðlauginni, ekki í djúpu laugina, heldur í sjóinn - og það úfinn! Ég er bara enn að melta þetta. En eitt er víst: ég vil gera þetta aftur.
Já, og ég vil þakka Fanney Sizemore fyrir andlegan stuðning á leiðinni upp á Eystri Hnapp.
Hér eru myndir sem ég tók og einhverjar frá hinum miklu meisturum úr Asgard Beyond.

Frá Sjöfn á fb:
Sveinstindur og Eystri-Hnappur
Þetta var alveg hörkuganga, bæði í góðu veðri og svo ekki jafngóðu veðri. Það var næstum peysuveður á leiðinni upp, bjart og fínt, en svo fór að fara til verri vegar þegar komið var upp á öskjubarminn. Skýin voru tekin að færast yfir og vindurinn var sterkur og magnaði kuldann. Gangan upp á Sveinstindinn var ansi sérstök, það var svo bálhvasst að hvað eftir annað fauk maður til hliðar. Ekki séns fyrir mig að taka myndir þarna, bara tilhugsunin að fara úr vettlíngunum var skelfileg.
Það var síðan glæsilegur bónus að fara á Eystri-Hnapp á heimleiðinni, og ég veit að það var ekkert sjálfgefið að ná því. Leiðin niður var björt og fín og manni leiddist ekki útsýnið.
Hópurinn var mjög góður og jafn, og Jón Heiðar og Robbi eru náttúrulega í sérflokki.
Takk fyrir daginn.

Frá Anítu á fb:
Þegar Toppfarar vakna 03:45 og framundan er dagur með Asgard Beyond þá er bókað að ævintýri eru framundan.
Sveinstindur um Hnappavallaleið var á planinu og veðurspáin svona ‘alltílagi’.
Bjuggumst við -10 til -12 með vindkælingu og dagurinn byrjaði snilldarvel.
Sól og sumar við sólarupprás og allir happý og jollý að kvarta yfir hita á jöklinum .
Spólum aðeins áfram… þegar komið var upp á öskjubrún er bara gargað… allir í ÖLL fötin.
Vindurinn margfaldur miðað við spár og ekkert í stöðunni nema strauja áfram á strunshraða.
Við erum að tala um hrímuð andlit, naglakul, krapdrykki og frosið snarl.
Alpapásurnar urðu að 2gja sek pásum… ekkert væl og áfram gakk
Sveinstindur bókstaflega gólaði.
Síðasta brekkan varð ágætis afrek þar sem hífandi rokið reyndi að henda okkur í klakann og rífa pokana af bakinu.
Og við hefðum verið sátt við verkefni dagsins. Klappað okkur á bakið. Næst hæsti tindur landsins… vel gert.
Þetta átti að vera VERKEFNI dagsins.
En nei.
Augljóslega vöknuðu leiðsögumenn okkar þann daginn með önnur plön í huga.
Ævintýri skal það vera.
Allt í einu varð Sveinstindur upphitunarverkefni.
Eystri-Hnappur 1758m
Einn af 100 hæstu.
Vanalega óaðgengilegur vegna risavaxinna jökulsprungna og ekki eitthvað sem hægt er að láta sig dreyma um nema með alvöru fólki.
En djöfull vorum við heppin.
Nokkur okkar höfðu verið að gjóa augunum á nærliggjandi toppa allan daginn… er dagurinn nokkuð búinn fílíngur…
Og á leiðinni til baka eftir að hafa þrætt framhjá sprungum sem voru meira eins og hyldýpi…
Þá tökum við eftir að leiðsögumenn eru að stúdera Eystri Hnapp.
Og ég hugsa…
Ókei… þeir eru örugglega að plana einhverja ævintýraferð með öðrum heppnum villingum.
En nei…
Allt í einu eru ísskrúfurnar teknar til og gírínn preppaður.
Við ætlum upp.
Það ískraði í okkur nokkrum sem hafa verið í allmörgum Asgard ævintýrum…
Enn einn ævintýradagurinn í bankann.
Takk Asgard Beyond.

Frá Fanneyju á fb:
Sveinstindur og Eystri Hnappur Öræfajökli
Ævintýri helgarinnar var nú heldur ekki amalegt. Keyrði í Svínafell ásamt nokkrum Toppförum á föstudag þar sem við komum um kvöldmatarleitið. Ég sló upp tjaldi í fyrsta skiptið á þessu ári og ekki lítið spennt fyrir því að komast loksins í útilegu. Um kvöldið hittum við svo Jón Heiðar og Robba frá @asgardbeyond enda planið að ganga á Sveinstind 2044m, næst hæsta tind landsins daginn eftir.
Við vöknuðum svívirðilega snemma enda lagt af stað kl 4:30 eins og oftast er gert í þessum jöklagöngum. Ég svaf príðilega í tjaldinu nema náði að týna annari linsunni þegar ég setti í mig linsurnar...og ekki með auka linsur með mér aldrei þessu vant! Eftir nett panik mód þar sem ég eyddi dýrmætum morguntíma í að leita að linsunni þá ákvað ég að það yrði bara að hafa það. Ég er með -4 þannig annað augað var bara mega blörrí og hitt í lagi. Heilinn vandist þessu þó fljótt og ég sá vel frá mér, verra þegar ég var að brasa eitthvað nálægt mér.
Allavega, við keyrðum svo upp í um 600m hæð og hófum gönguna á Sveinstind þaðan. Fyrst var fínasta skyggni og gott veður þó dáldill kuldi en svo dró fyrir sólu og fór að hvessa. Þá varð alveg drullukalt og maður var ekkert mikið að fara úr vettlingunum eða að borða. Algjört skítaveður á toppnum og ég hugsaði með mér, já kannski þetta sé bara síðasta jöklaferðin mín. Fínt að ná þessum toppi en leiðinlegt að vera lengi í línu.
Svo höldum við áfram niður aðra leið og stöndum allt í einu fyrir framan Eystri Hnapp 1784m. Snarbratt kvikindi sem fáir ganga á því að það er svo erfitt að komast að honum vegna risastórra sprungna. En við vorum í kjöraðstæðum og Jón Heiðar og Robbi settu upp línu og upp fórum við. Það var magnað að vera þarna uppi í skítaveðri, horfa yfir allar risastóru sprungurnar, þurfa að klöngrast og brasa og ég hugsaði: Nú man ég afhverju mér finnst þetta gaman. Þannig þetta endaði sem svakalega gott ævintýri.
Við urðum nokkur eftir í Svínafelli þar sem við grilluðum og fengum okkur bjór og við Sjöfn vorum síðastar úr partýinu en við vorum rotaðar rétt rúmlega 9. Ég vil meina að ég sé sennilega eina manneskjan sem hefur toppað Eystri Hnapp með hálfa sjón.
Fleiri ljósmyndir leiðangursmanna og leiðsögumanna hér, því miður í belg og biðu því myndirnar raðast ekki rétt upp þar sem þeim er hlaðið af veraldarvefnum og ekkert hægt að tjónka við niðurröðunina:



























































----------------------------
Myndband frá Smára: 19. maí 2026
Bæti við myndbandi frá Anítu ef það kemur !
Takk öll fyrir frábærar lýsingar og ljósmyndir, þessi ferð var greinilega alveg mergjuð og enn ein rósin í hnappagat þessa meistara hjá Asgard Beyond, ótrúlega flottir og faglegir fjallaleiðsögumenn sem hafa farið með okkur í ótal jöklaferðir þar sem einmitt líðanin og upplifunin hér að ofan hefur setið eftir þær ferðir. Hvílík verðmæti... hvílík saga með þessum mönnum og þessu fólki !
Hjartansþakkir #AsgardBeyond !




Comments