top of page
  • Facebook
  • Instagram
  • YouTube
  • Twitter

Vörðufell þar sem Hvítá safnar til sín Brúará, Tungufljóti og Stóru Laxá og breytist svo í Ölfusá samferða Soginu

Tindferð nr. 352 laugardaginn 7. febrúar 2026


Veðurblíðan árið 2025 heldur áfram veturinn 2026... stöðugleiki, úrkomuleysi, sólbirta, frost... er einkenni janúar og febrúar þar sem af er ári... og við þiggjum það með þökkum og náðum fjórðu tindferðinni á áætlun og það í góðu veðri í öllum göngunum... sem hefur aldrei gerst áður í 19 ára sögu klúbbsins... árið 2017 fórum við t.d. þrjár ferðir í janúar en aldrei í góðu veðri... og árið 2025 fórum við enga tindferð sökum slæmrar veðurspár allar helgarnar... en nú... árið 2026... er spáin stöðug eins og spá í Evrópuborg... sól, lygnt og útkomulaust.. ótrúlegt...


Vörðufellið er mjög umfangsmikið fjall... og það víðfeðmt að það var autt í suðurhlutanum og hvítt af snjó í norðurhlutanum... hér keyrt meðfram því á leið að bílastæðinu...


Ótrúleg mæting var í þessa göngu... alls 26 manns þar sem tveir bættust við um morguninn og einn hætti við... magnað alveg... og þar af voru nokkrir nýliðar og sjaldséðir hrafnar...


Upphafsstaður göngu var frá vel merktu bílastæði þar sem nóg pláss var fyrir bílana og slóðinn greinilegur til að byrja með...

Lagt af stað úr bænum kl. 09... og lagt af stað gangandi kl. 10:34... sem sé 1,5 klst. akstur með smá stoppi á Olís og/eða við Flúðaafleggjarann...


Höfðingjarnir Guðmundur Jón Og Katrín Kj. voru mætt en þau eru heiðursfélagar hópsins... á áttugasta aldursári og enn í góðu gönguformi en hafa þó kúplað sig út sökum heilsufars þar sem gönguhraði og mikið klettabrölt hentar þeim síður nú orðið... dásamlegt að fá þau til leiks...


Landslagið á Vörðufelli er óskaplega fallegt... fjölbreytt... og formfagurt...


Örn fann þessa geil fyrir tilviljun... stundum er gott að láta landslagið stýra sér en ekki gps-tækin... við eltum samtíning af þremur gps-slóðum frá fólki á wikiloc... þar sem við ákváðum að taka rangsælis hring á fjallinu og helst koma við í Úlfsgili og snerta Úlfsvatn...


Brúará hér fjær... og Hvítá hér nær... það var hreint út sagt magnað að sjá stóru árnar sem leikið hafa stór hlutverk í þverunarleggjunum síðustu tvö ár... koma svona saman fjórar alls...


Stóra Laxá að mæta lengst til hægri svo varla sést á þesari mynd samt...


Slydda gekk yfir suðvesturhornið sólarhring fyrir þessa göngu... á eins kurteisan máta og hugsast getur... þannig að það hvítnaði í fjöll... og rigndi í Reykjavík í nokkra klukkutíma... á Suðurlandinu gekk þessi úrkoma yfir aðfararnótt föstudags...


En við nutum góðs af þessu því þetta gaf okkur fjölbreytta ásýnd á Vörðufellið... og tæra fannhvíta og ferska fjallasýn allt i kring...


Sólin var mætt þegar við lögðum af stað í gönguna... en svo tóku skuggarnir við... þar til við hækkuðum okkur nægilega í norðurendanum til að fá hana ftur í fangið...


Brakandi ferskleikinn í frostinu var gefandi... og gjólan minnti okkur á að það er ekki komið sumar... þó halda mætti á stundum...


Á slóða á köflum en ekki allan tímann...


Hér má sjá útbreiðslu Vörðufells og hvernig það verður snjólítið í suðurhlutanum... þetta var eins og annað fjall í fjarskA... en þetta var allt saman Vörðufell... sjá Hestfjall hægra megin við Hvítá... það bíður eftir okkur í nóvembar... í lágri vetrarsól... og annað hvort snjó eða auðu færi... nú fer maður að vera forvitinn hvort veturnir fari að vera svona mildir framvegis... eða hvort þessi heyri til undantekninga... síðari kosturinn er líklegri... njótum á meðan er...


Þjálfarar ákváðu að koma sér út úr snjónum og taka fyrstu nestispásu í mosanum þarna niðri...


Yndislegt... kalt jú... en skjól og sólin vermdi upp að því marki sem hún getur fyrri hlutann í febrúar... bleika og bláa birta skammdegisins er horfin... guli litur hækkandi sólar er tekinn við... þangað til í nóvember...


Litið til baka...


Botnssúlurnar... Kálfstindarnir... Laugarvatnsfjall... Efstadalsfjall... Miðdalsfjall ofl...


Mosfellið í Biskupstungunum... við eigum það alltaf eftir... fjær eru Klukkutindar, Skriðutindar ofl...

Sólin lágt á lofti... og útsýnið alveg magnað...


Hækkunin í þessari ferð var 843 - 915 m eftir tækjum... enda heilmikið farið upp og niður... Hestfjall hér hægra megin... og Ingólfsfjall fjær hægra megin í endanum...


Þjálfarar voru að spá í að snúa til vesturs hér og fara að Úlfsvatni... en ákváðu að eltast við Úlfsgilið enn sunnar... og sáu ekki eftir því...

Þetta þýddi ágætis krók til suðurs... en þetta landslag birtist við það...


Og við ákváðum að flækja aðeins ferðina og fara alveg að gljúfrinu....


Niður gljúfrið... bærinn Birnustaðir þarna niðri...


Stórbrotið landslag á þessu ávala, saklausa fjalli...


Hér voru fremstu menn farnir að gljúfrinu... fjögur tímdu ekki að lækka sig og héldu sig ofar... og Elísa fékk teygjuvafning um hnéð þar sem hún fékk slæman hnykk á það við þúfuganginn...


Hópmynd við Úlfsgil:


Efri: Elísa, Ragnheiður, Siggi, Gunnar G., Tína, Silla, Linda, Davíð, Hjörtur, Kristjana, Sighvatur, Örn, Þorleifur.


Neðri: Agnar, Hermína, Guðný Ester, Inga, Oddný T., Kolbeinn, Sjöfn Kr. og Dina en Bára gók mynd og hundanir sjást hér alir; Brúní, Gutti, Batman, Kolka og Tíra.


Á mynd vantar Birgir, Frímann, Guðmund Jón og Katrínu Kjartans sem voru ofan við gilið.


Örn sá fína leið upp úr gilinu hinum megin við það og við ákváðum að fara niður í það og skoða...


Fín leið upp...


Smá sólbað hér og einhverjir fengu sér snöggvast smá nesti...


Mjög skemmtileg leið hér upp og það var hreinlega stígur... við vorum ekki þau einu sem farið hafa dáleiðst hér niður...


Uppi tók snjófölin við og nú eltumst við við hæsta tind...


Komin í vesturhluta fjallsins og nú breyttist útsýnið til Heklu og félaga...


Litið til baka...


Hekla... þarna vorum við 3. janúar... hún er í dauðafæri með að ganga á hana í febrúar... engin ófærð á akstursleið að Skjólkvíum líklega... galið að nýta það ekki... en einhvern veginn nenntum við ekki... hún er á dagskrá um páskana aftur... nýja leið suðvestan megin upp... vonandi árar svona vel í febrúar hvað varðar bílfærð eitthvurt næsta árið...


Tindfjallajökull og Eyjafjallajökull...


Hópmynd með öllum hópnum hér á hæsta tindi Vörðufells í 414 m hæð:


Efri: Frímann, Birgir, Gunnar G., Kolbeinn, Elísa, Ragnheiður, Kristjana, Inga, Davíð, Sjöfn Kr., Sighjvatur, Agnar, Silla, Katrín Kj., og Guðmundur Jón.


Neðri: Hjörtur, Örn, Siggi, Guðný Ester, Linda, Hermína, Oddný T., Þorleifur, Dina, Tína og Brúnó, Kolka og Gutti eru á mynd en vantar Tíru og Batman...

Eða var þessi tindur hærri ? Álfstaðaskyggnir er nafnið ?


Við allavega náðum honum með í göngunni og þeir voru svipaðir í hæð...


Ofan af seinni tindinum snerum við til vesturs að brúnunum glæsilegu sem gnæfa yfir Úlfsvatni... við gátum ekki sleppt vatninu...


Heilmikill snjór hér...


Komin á brúnirnar... sem heita Birnustaðaskyggnir...


Glæsilegt útsýni niður að vatninu...


Hópurinn á brúnunum... hér voru 3,5 km í beinni línu í bílana... og nánast enginn sagði af eða á með að ganga niður að vatninu og taka seinni formlega nestistímann áður en straujað yrði til baka... en við ákváðum að gera það enda stutt í raun eftir...


Mjög falleg leið niður að vatninu...


Litið til baka...


Sólin greinilega að vinna vel á snjónum þar sem hún ræður við það...


Fínasta nestispása í skjóli og sól...


Davíð var sá eini sem gekk út á vatnið... það var vel frosið... menn voru orðnir þreyttir og vildu fara að snúa í bílana enda vorum við komin fram yfir áætlaða vegalengd og tímalengd...


Leiðin til baka var gullfalleg... og öðruvísi en uppleiðin...


Ótrúlega víðfeðmt fjall...


Röskleg ganga enda farið að kólna með hnígandi sól...


Hér vorum við á stíg að hluta til...


Stutt eftir... ennþá ekki komin á sama stað og á uppleið...


Efstadalsfjall... Rauðafell... Brúarárskörð... Hlöðufell og Högnhöfði... smá sést í kálfstind lengst til hægri... magnað útsýni !


Kálfstindar og félagar... með Mosfellið nær... það þarf að komast á dagskrá... í desember eða janúar eitthvurt árið...


Hæsti tindur Högnhöfða, Kálfstindur og Miðfellið lítið nær... Bjarnarfellið svo hægra megin við miðja mynd og Jarlhetturnar allar... ótrúlegt !


Síðasti kaflinn... komin inn á uppgöngustíginn aftur...


Bílarnir í fjarska þarna niðri... fremstu menn voru 6:12 klst. og síðustu 6:26 klst... í rólegheitum og notalegheitum að njóta þessarar gullfallegu göngu...


Komin í bílana kringum fimmleytið... og þá beið okkar rúmlega 1 klst. akstur í bæinn... heimkoma því 2 klst. seinna en áætlað var... þessi ganga teygði vel úr sér... en við hefðum ekki viljað sleppa Úlfsgili né Úlfsvatni... og því voru allir sáttir... enda dásamlegur dagur !


Alls 14 km (Örn mældi þetta 16,5 - mikið ósamræmi) á 6:12 klst. upp í 414 m hæð með alls 843 m hækkun úr 60 m upphafshæð...


Hestfjallið vinkaði á heimleið úr þessari blómlegu sveit... og bíður fram í nóvember...


Vörðufellið vinkaði líka bless... reisulegt séð frá þjóðveginum á leið að F1 í suðri...


Gullfallegur og notalegur dagur sem reif ágætlega í... svona þegar maður var kominn heim og úr sturtu... ! Takk öll elskurnar fyrir yndissamveru í hæsta gæðaflokki !





Comments


bottom of page