Smérhnúkur, Háakast og Geirhnúkur við Vatnaleið á Snæfellsnesi
- Bára Agnes Ketilsdóttir

- 3 minutes ago
- 6 min read
Tindferð nr. 356 laugardaginn 18. apríl 2026

Eftir eina frestun og eina afboðun ákváðu þjálfarar að fara frekar á Smérhnúk og félaga á Snæfellsnes en og geyma Grafartinda í Dölunum lengra fram á vorið... í eltingarleik við þau fjöll sem við eigum ennþá eftir á þessu landsvæði... hér með alla tindana í safninu nú þegar... Hafrafell, Tvíhnúka, Ljúsufjöll, Skyrtunnu, Snjófjall, Svartatind og Hest...


Seljafellið... sem lumar á þremur tindum... ef hægt er að fullyrða slíkt... var snjólítið þennan apríldag... með alhvíta fjallstinda allt í kring... þetta var jú létt og stutt tindferð... Grímsfjallið hér hægra megin hvítt tvíhnúka...
Sméerhnúkur vinstra megin... Háakast í miðjunni og Geirhnúkur gostappinn hægra megin...

Skyldum við komast upp á hann ? Þegar þjálfari setti þessa göngu á dagskrá þá hafði hún eingöngu fundið upplýsingar fólks um göngu á Smérhnúk... ekki á Háakast né Geirhnúk... en kvöldið fyrir göngu þá fann hún skyndilega ljósmyndir úr ferð Leifs Hákonarsonar og fleira Útivistarfóilks á þessa þrjá tinda... og þau höfðu einnig notað þessi þrjú nöfn... en gengið frá gömlu Vatnaleiðinni... austan megin, ekki vestan megin frá nýju Vatnaleiðinni eins og við...
Leifur Hákonarson var einn af nokkrum fjallamönnum sem deildu greinagóðum upplýsingum um fjallamennsku sína á veraldarvefnum áður en samskiptamiðlar komu til sögunnar og þjálfarar nutu góðs af þegar þeir fóru fyrstu árin með Toppfara á fjöll... hin voru Ragnar Antoníusson og svo gátum við stundum nýtt bloggið hennar Kristjönu Bjarnadóttur sem skrifaði og skrifar mjög skemmtilega um sínar ferðir...
Kunnum við þeim of fleirum ávalt miklar þakkir fyrir. Mjög gaman var að geta enn einu sinni farið í smiðju Leifs og séð kvöldið fyrir göngu... að einhverjir höfðu gengið á Geirhnúk... þvi við héldum allt eins að við komumst ekki og vorum búin að búa hópinn undir það...

Sólin skein í heiði... bókstaflega... og algert logn ríkti á þessum tilvalda stað fyrir nokkra bíla... til að ganga á fjölllin þarna allt í kring... Smérhnúkur hér yfirgnæfandi...

Sýnin til Baulárvallavatns þar sem fjöllin Vatnafell og Horn blöstu við... þarna eigum við minningar frá árinu 2019 í sögulegri ferð þar sem við gengum á tærum, frosnum stöðuvötnum... Tindferð 166 Horn og Vatnafell S

Lagt af stað kl. 11:15... eftir akstur kl. 09 frá Rvík... Smérhnúkur framundan... einn af þremur tindum dagsins... við tókum jöklabroddana meðferðis... en skildum þá svo eftir í bílnum við fjallsrætur... það var augljóslega komið sumar á okkar gönguslóð...

Yndislegt veður... við byrjuðum fljótlega að fækka fötum...

Leiðin var tilraunakennd... teiknuð í gps-forritinu... við tókum sneiðing upp með llknum og fórum yfir á snjóbrú.. hugsanlega þarf að vaða hér að sumri til...

Handan við Vatnaleiðina í vestri... risu Elliðatindar... og Hóls- og Tröllatindar... hvílíkar ferðir að baka á þessum tindum... og það í fleiri en einni ferð á báðum fjallgörðum...

Sumarið átti vinninginn... þó halda mætti annað á þessari mynd...

Já... við vorum í stuði... enginn að benda fingri... enginn á lyklaborðinu... enginn að nöldra... allir að gleðjast... njóta... vera þakklátir...

Smérhnúkur framundan...

Já... það var svona gott veður... hlífabolur og stuttermabolir... en flest okkar pökkuðu ekki slíku... og hefðu viljað fækka meira fötum en gerðum...

Glæsilegur tindur...

Fötum fækkað...

Brakandi friðurinn þennan dag... fangast vel á mynd hér... hvílík gæfa að vera á fjöllum á svona degi... og hafa heilsu til þess atarna...

Spjall og gefandi samvera...

Batman og Kolka voru hundar dagsins... og elskuðu þetta eins og við...

Baulárvallavatn nær og Hraunsfjarðarvatn fjær... Krákuhyrna og Gjafi... þau verða gengin næstu tvö árin... Horn sem við gengum á árið 2019... Eyrarfjall sem við gengum á árið 2018 Bjarnarhafnarfjall sem við gengum á árið 2014 og loks kúlurnar nær hægra megin við við gengið á í nóvember í fyrra í lágri vetrarsól... snaefellsnesfjollin | Toppfarar

Hafrafell og Kerlingarfjall... sem eru á dagskrá í nóvember á þessu ári... Grímsfjall sem var gengið árið 2024... Grímsfjall lyginni líkast

Jötunsfell og Svelgsárkúla sem við gengið á árið 2023... Svelgsárkúla og Jötunsfell í könnunarleiðangri á Snæfellsnesi ... Hreggnasi og Rauðakúla sem við gengum á árið 2016... Ljósufjöll sem við höfum gengið á oftar en einu sinni og Skyrtunna sem var gengin árið 2013...

Sólin varð sífellt sterkari...

Uppgangan á Smérhnúk var léttari en við áttum von á... í mjúkum snjó ofan á mosanum...

Smérhnúkur mældist 585 m hár og var hæsti tindur dagsins...

Magnað útsýnið af honum...

Þræddum okkur alla leið á efsta tind...

Elliðatindar og Hóls- og Tröllatindar í fjarska hér...


Hvílíkt útsýni...

Hafursfellið svo fagurt þarna í fjarska...

Ofurkonurnar Silla og Linda... ótrúlegar konur... sjötugar á árinu... ásamt Björgu...

Helgi missti keðjubroddana sína í kassanum sem rúllaði niður brekkurnar...

Notaleg nestispása í sólinni...

Bára þjálfari skaust niður að ná í keðjubroddana hans Helga... passaði að horfa á þá þar til þeir stoppuðu og stefndi svo á þann stað... þeir voru ansi líkir landslaginu en biðu á þeim stað sem miðað var á...

Jæja... best að ganga á hina tvo tindana...

Jón Oddsson er einn af þeim örfáu... eiginlega bara tveimur á wikiloc sem eiga slóðir á sjaldafarin fjöll... hann og Ísleifur koma stundum upp þegar við erum að glöggva okkur á óþekktum fjöllum og búa til leiðir... það er heiður að ganga með Jóni eða Nonna... og grátlegt að ganga allt of sjaldan með Ísleifi... vonandi rætist það síðar...

Frábær mæting þennan dag... tvær langar göngur í apríl og tvær stuttar... þetta var sú seinni stutta...
Mættir voru 15 manns: Birgir, Hermína, Gulla, Oddný, Helgi, Björg, Linda, Silla, Hjörtur, Örn, Jón Odds., Sjöfn Kr., Guðný Ester og Fanney en B´ra tók mynd og Batma og Kolka voru hundar dagsins...

Háakast hér framundan... með fjallgarðinn kringum Ljósufjöll beggja vegna allt í kring...

Nær er lægri hnúkurinn á Smérhnúki... fjær vinstra megin er Háakast... það telst sértindur að okkar mati þar sem okkur fannst Seljafell vera í raun fjallið sem Smérhnúkur trónir ofan á...

Lægri tindur Smérhnúkur...

Heiðskírt var allan þennan dag... og fjallasýnin óskert...

Frábært fólk á ferð og mikið spjallað...

Háakast hér framundan... fyrst var að koma sér niður af Smérhnúki...

Heilmikill snjór milli fjalla...

... og tjarnir á milli...

Fegurðin þennan dag...



Háakast mældist 541 m m hátt...

Ofan af Háakasti sáum við til Geirhnúks... Hafursfellið hér vinstra megin...

Við stefndum á hann...

Fagur tindur jann Geirhnúkur...

Hér með Rauðukúlu, Kattareyra (sést smávegis í), Botna-Skyrtunnu, Ljósufjöll, Skyrtunnu, smá sést í Snjófjall og loks Svartatind vinstra megin við Geirhnúk...

Já... er hann nokkuð fær vestan eða norðan megin... við gátum ekki séð það...

Upp suðvestan megin...

Allt orðið snjólaust sunnan megin...

Létt brölt til að byrja með og svo smá klöngur efst...

Örn fór upp sunnan megin... Bára kannaði aðeins austurhliðina en hún var ekki fær... nema hugsanlega hér upp þessa geil... en þetta var ókleifara en áhorfist á þessari mynd...

Jú... við klöngruðumst auðvitað hér upp... skildum bakpokana eftir niðri...

Hundarnir komust ekki... Kolka sneri við og Batman var í vandræðum en Bára ýtti honum upp á tveimur stöðum og þá var hann ekki lengi að koma sér upp...

Oddný í essinu sínu hér...

Þetta var geggjað gaman !

Ekki mikið pláss uppi sen nóg samt fyrir heilan skólabekk...

Algert logn og stórkostlegt útsýni... Geirhnúkur reyndist vera 494 m hár...

Þessi hópur er algert æði !

Bekkur 19... 19 ár á fjöllum... það er ómetanlegt...
Efri: Helgi, Oddný, Linda, Silla, Örn, Sjöfn Kr., Hjörtur.
Neðri: Gulla, Fanney, Hermína, Björg, Birgir Martin og Jón Odds.
Bára tók mynd og Guðný Ester var niðri að fá sér nesti... Kolka var og niðri og Batman einhvers staðar þarna...

Þetta var stund til að hugleiða og vera þakklátur... ætli Hjörtur hafi séð til síns heima frá tindinum ? Varla samt...

Ofurkonurnar þrjár... Björg, Silla og Linda... engin neiðkvæðni, engar úrtölur... bara gleði, bros og hlátur... alla leiðina upp og alla leiðina niður... allar á leið í magnaðar ferðir um allan heim á árinu... Björg að fara í þar næstu viku Jakobsveginn í 33 ja daga gönguferð...

Toppagleði...

Svakalegt útsýnið til austurs...

Til norðausturs...

Til norðvesturs....

Til vestnorðvesturs...

Til vesturs...

Niðurleiðin gekk betur en við áttum von á...

Smá haft þarna sem þurfti að taka...

Algerir snillingar þetta fólk !

Nestispása tvö eftir þriðja og síðasta tindinn...

Dásamlegt...

Útsýnið til suðurs...

Bestu göngufélagar í heimi !



Kattareyra er á dagskrá 1. maí... búin með hin fjöllin...

Jæja... best að koma sér niður og til baka...

Þessi ganga var mjög sumarleg...

Þrætt undir Geirhnúki...



Hópmynd undir glæsilegasta tindi dagsins...



Heilandi bakaleið tók við um heiðina norðan tindanna...



Takk fyrir okkur Geirhnúkur...






Ljósbaugur kom skyndilega á bakaleiðinni og við vorum dolfallin...


Þessi víðátta er svo heilandi...



Ljósbaugurinn fylgdi okkur...


Grímsfjall...


Litið til Háakasts...




Smérhnúkur að baki...


Komin inn á uppgönguleiðina...


Komin að Vatnaleiðinni efst á heiðinni þar sem bílunum var lagt á þessu stað…

Horn...

Við vorum lengur að keyra en við reiknuðum með… vorum 1:45 klst. En ekki 1,5 klst. og með wc-stoppi í Borgarnesi er dagurinn enn lengri… en okkur var alveg sama… við vorum alsæl með daginn !

Örn flaug yfir og virtist vera að virða okkur fyrir sér...



Ljósufjöll á leið heim… Meirabröltið gekk á Miðtind þennan sama dag í þessu magnaða veðri… frábært hjá þeim !

Okkar fjöll frá akstursleiðinni… nú erum við loksins búin með þessa þrjá tinda á Vatnaleið… takk fyrir okkur Seljafell og félagar !

Hinn Geirhnúkurinn… sem er miklu þekktari… og er á göngu-Vatnaleiðinni ofan Hítarvatns minnti á sig þegar við keyrðum heim… við eigum hann nefnilega eftir… og hann bankar á dyrnar á dagskránni 2026…
Frábær dagur upp á 11,5 km á 5:10 klst. Upp í 585 m, 541 m og 494 m hæð með alls 598 m hækkun úr 224 m upphafshæð… dásamlegt að ná svona fallegri og notalegri göngu… hún endaði á að vera ein af fjórum sem voru gengnar í apríl…
Gps-slóðin hér: https://loc.wiki/u/77475?wa=uc
Myndbandið hér: Smérhnúkur, Háakast og Geirhnúkur í Seljafelli 180426




Comments